Vikan

Issue

Vikan - 06.12.1973, Page 19

Vikan - 06.12.1973, Page 19
um framhaldslif og dulræn efni. IRÞÚÁ MHALDSLÍF? Árni Bergmann, blaðamaður. 1. Hjá ýmsum mætum mönnum má lesa rök- semdafærslur um það, aö maðurinn komist ekki af iheldur andsnúnum heimi nema hann trúi á persónulegt framhaldslif. .Um þessa skoðun verður þvi miður ekkert annað ságt en það, aö menn sem svo hugsa þurfa á hramhaldslifi að halda. Þetta er mjög per- sónuleg þörf og ætti að fara meö hana sem einkamál og leyndardóm. 2. Ég geri ráð fyrir að hér sé fiskað eftir reynslu manna annaðhvort af þjóðlegri draugatrú eða spiritisma, nema hvort- tveggja sé. Svarið er neitandi. Ofangreind fyrirbæri eru mér aöeins mismunandi skemmtisögur söguefni og upplýsing um þann sem segir frá. Þvi miður er skemmtun- in mjög á úndanhaldi i hinu yfirnáttúrulega tali á Islandi, á undanhaldi fyrir mærðarfullu daðri viö öll trúarbrögð og allar eilifðar- kenningar. Maður freistast til að taka undir við Georg gamla Brandes, sem kvaðst aldrei hafa reynt neitt yfirnáttúrulegt á sinni ævi. Ásgerður ólafsdóttir, kennari. 1. Ég á erfitt meö að imynda mér, aö lif okkar hér á jörðu sé það eina lif, sem við lifum. Ég lit fremur á jarölffið sem hlekk i langri keðju. Að visu er erfitt að gera sér i hugarlund, hvaö tekur við eftir dauða likamans, en mér finnst liklegast að við höldum áfram að lifa okkar andlega lifi og verðum áfram sem hugsana- verur, þó 'að likaminn deyi. Mér þykir trú- legast að lifið eftir dauðann lúti allt öðrum lögmálum en lifiö hér á jörðinni, en ég trúi að það sé til að minnsta kosti á meðan annað veröur ekki sannað. 2. Sjálf hef ég aldrei orðið vör við framliðiö fólk, en ég er sannfærð um að ég hef notið hjálpar „andalæknis”, þó að ég telji ástæðu- laust að rekja það nánar hér. Ævar R. Kvaran, ritstjóri timaritsins Morguns. 1. Fyrri spurningunni svara ég hiklaust ját- andi. Þykist ég hafa fengiö persónulegar sannanir fyrir þvi, þótt ekki verði greint frá þeim hér. Þeir, sem ekki trúa á annað lif veröa aö horfast i augu viö afleiðingar þeirr- ar skoðunar, aö þá er llfiö með öllu tilgangs- laust og auk þess getur þá ekkert réttlæti veriö til. I þessu jarðlifi gætir svo gífurlegs misréttis og gæfumunur er svo óskaplegur, að þetta eina lif sýndi rikjandi magnaöasta óréttlæti og riúgulreið i tilveru mannsins. Nei, það er einungis likami mannsins, sem leysist upp við svonefndan „dauða”, en and- inn er eilifur i eðli sinu. 2. Slöari spurningunni svara ég einnig ját- andi. En það sem komið hefur fyrir mig I þeim efnum er svo persónulegs eðlis, að ég hef ekki I hyggju aö birta það á prenti. En vegna þess hvernig spurningin er orðuö, vil ég geta þess, að ég álit ekki neitt til sem er „yfirnátturlegt”. Það getur ekkert veriö yfirnáttúrlegt. Allt er háð náttúrlegum lög- málum. Þar sem fólk talar um yfirnáttúrleg fyrirbæri, er aðeins um að ræða verkanir afla, sem enn eru ókunn visindunum. Þau munu smátt og smátt verða afhjúpuð á Vesturlöndum, þegar menn hafa losaö sig betur úr viðjum efnishyggjunnar. 49. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.