Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.12.1973, Side 27

Vikan - 06.12.1973, Side 27
ÞEGAR EG ÁTSLÖNGUNA Jónas Guðmundsson bregður upp svipmynd af einum degi í la Sieba i Honduras. ur og hrumleikinn var mestur i augnaráðinu og hvitu hárinu. Hann var að baða sig á bryggj- unni. Vatnsleiðslan var eitt fet frá bryggjunni. Þetta var sver leiðsla og glutraði vatn úr opnum endan- um. Þarna tók sá gamli sjer bað fyrir allra augum, kviknakinn og spengilegur. Hann nuddaði öllum likamsfleti sinum, höfði, baki, löppum, handarkrikum og rass- opi inn i rörið og að lokum stakk hann getnaðarlimnum inn i rörið og þá leið honum best og hann brosti, svo það skein i hvitar tenn- urnar. Svo fór hann i buxurnar og setti bananaknippi á bakið og fór heim að sofa. Við áttum fri eftir hádegi, ég og min vakt, og nú hvrjaði að rigna. Aldrei áður hafði rignt svona mikið, þetta var einsog að sautjánda júni hefði borið upp á sunnudag hvað það snerti og vatnið streymdi úr himninum. Við ætluðum i land, Zambrano og ég, en nú urðum við að biða eftir uppstyttu, til að geta hlaupið upp lánga bryggjuna og inn 1 bæ- inn, sem rotnaði i sólinni og regn- inu. Ef við kæmumst upp i bæinn, væri okkur borgið, þvi þar gátum við leitað skjóls undir pálma- trjánum, eða sólskyggnum hús- anna og þurftum ekki að láta okkur rigna niður. Og svo þegar uppstytta kom, hlupum við upp bryggjuna einsog reiðir fuglar og ég fann blóðbragðið i kverkunum. A skipum hleypur einginn neitt og nota bara innyflin af likamanum. Hausinn og útlimina ekkert og þvi geta þeir ekki hlaupið neitt, nema fá blóð i kverkarnar, — og við mörðum það gegnum hliðið og undir griðarstóra pálma, sem stóðu við bryggjusporðinn. Þar var mikið af svörtu fólki, rauðu fólki og brúnu fólki, sem ætlaði út á skipin, þegar gufuflautan segði þvi, að törnin væri byrjuö eftir si- estuna. Fólkið horfði á mig einsog horft er á sýslumenn i sveitum á Is- landi, logagylltan meö skúf á .öxl- um, en Zambrano var hinsvegar algengari útlits, þvi hann var Suðurá'meriku-Indiani, blandaður út i blóði manna, sem lagt höfðu undir sig mikil úthöf á smáum

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.