Vikan

Issue

Vikan - 06.12.1973, Page 33

Vikan - 06.12.1973, Page 33
HYER ER LAUREL? Claire Rayner Hún horfði á hávaxna manninn, sem sat á hækjum sér fyrir framan hana. — Sunny, sagði hann. Hún hafði aldrei séð hann áður. En samt var eitthvað i djúpi hugans, sem minnti á hann... Sunny... Sunny... — Þú getur ekki imyndaö þér hvernig þaö er, aö geta ekki munaö neitt frá fortiö sinni, ekki einu sinni æskuárin, aö finna til sektar i hvert sinn, sem maður horfir á eiginmann sinn og barn, að muna einhver brot, sem svo hverfa jafnskjótt. Að búa viö þann hræöilega ótta, að þetta geti alltaf skeð aftur hvenær sem er, aö finna allt þurrkast út i minnis- leysi.... Myra var oröin náföl, svo Laurel ákvað aö segja henni ekki frá lifshræöslu sinni. Þaö gat lika hljómaö illa, ekki sizt þegar tekiö var tillit til þess, að hún var að koma heim af geðspitala. — Hamingjan hjálpi mer, Laurel, ég get varla trúað þessu! Getur lækuirinn ekki gert eitt- hváö fyrir þig. Jú, hann er að reyna það. Ég á aö fara vikulega til hans og segja honum ævisögu njina, þetta litla sem ég man. Og svo lét hann mig hafa lukkutöflur. Hún brosti biturlega. — Það er ekkert smáræöi, sem þú hefir oröið aö þola, þennan tima siöan þú vaknaöir þarna i eyðimörkinni, tautaði Myra. — Nú förum viö inn og sækjum Jimmy. Hann getur sjálfsagt gert meira fyrir þig en allir læknar samanlagt. Jimmy haföi stækkaö og það þurfti lika aö klippa hann. Hann sat á gólfinu i dagstofunni hjá Colleen með þumalfingur i munn inum og ók plastbil yfir fótleggina á Sherrie. — Jimmy! Hann leit upp og sá hana standa i dyrunum milli Colleen og Myru, en hann hreyfði sig ekki. Laurel fann sáran sting fyrir brjóstinu, þegar hún sá svipinn á honum. Hann þekkti hana alls ekki. Hann treysti henni ekki lengur. Þetta varekkieins og hún haföi hugsaö sér endurfundi þeirra og henni leiö illa. — Jimmy, nú er mamma komin heim aftur og ætlar aö vera hjá þér, sagöi hún bliðlega og settist hjá honum á gólfið. Myra og Colleen fóru fram i eldhús og tóku Sherrie með sér. — Nú förum viö heim til aö boröa. Hann lét eins og hann sæi ekki útrétta hönd hennar, en stóö samt upp og gekk fram aö dyrum. Jimmy haföi ekki eingöngu hækkað i lofti,meöan hun var I burtu, hann haföi lika elzt, hann var ekki eins háöur henni og áður. Þaö gat ekki veriö of seint, ekki ennþá. Hún varö aö reyna að finna sjálfa sig og geta allt til aö fá minnið aftur, finna aftur árin, sem hún haföi glataö. Hún varö aö gera þaö, hvaö sem tautaði og raulaði. Hún gæti aldrei lifað lifinu, svona eins og hálf mann- eskja. Hún mátti heldur ekki gera það Jimmys vegna. Vegna Jimmys og Michaels. Hún vonaöi aöeins, aö henni gæfist tóm til þess. Aö ekkert kæmi fyrir hana, áöur en hún yröi nógu sterk til aö taka þvi, sem aö höndum bæri, nógu sterk til aö mæta- hætt- unni.!.. Ekkert hafði tekiö breytingum T litla húsinu I fjarveru hennar. Allt var svo ...eðlilegt. Jimmy stóð hjá henni meö þumalinn i munninum. Hún gekk fram i eldhús og smurði handa honum ostasamloku. Þegar Jimmy hafði boröaö brauðiö og drukkið mjólkurglas, fór hann aftur að sjúga puttann. Hann hafði ekki sagt eitt einasta orö við hana, ekki sent henni bros, ekki sýnt neina ánægju yfir þvi,aö hún væri komin heim. Hun fékk að hátta hann, en svo klifraöi hann sjálfur upp I rúmið og sneri viö henni baki, til að sofna miðdegis- blundinn. Hún hafði gert sitt bezta, til að leyna þvi hve vonsvikin hún var, reynt að vera glaöleg. En þetta varð henni ofraun, hún gekk fram I baöherbergið og grét sáran, en réyndi að kæfa grátinn með hand- klæðinu, svo hann heyrði ekki til hennar. Að sjálfsögðu hafði honum fundizt að hún heföi svikið hann. Hann haföi treyst henni, og hann þurfti svo á henni að halda. Michael kom snemma heim. Meðan þau sátu við matborðið, fannst henni báðir feðgarnir hafa á henni gætúr, eins og til að vera á verði, ef hún hagaði sér eitthvaö undarlega. Eftir matinn settist Michael meö blöðin, en Laurel baðáöi Jimmy og las fyrir hann sögu. Hann var stifur, þegar hún bar hann inn i svefnherbergið hans. En þegar hún beygði sig yfir rúmiö, fann hún allt i einu mjúka arma hans um hálsinn, og hann þrýsti sér að henni, fast og inni- lega, svo að hún var næstum búin að missa jafnvægið. En þá settist hún meö hann i fanginu á rúmið sitt, kyssti hann og andaði að sér ilminum af nýþvegnum barnslikamanum, sem hana haföi dreymt um og þráð svo heitt, meðan hún var á sjúkrahúsinu. Hún þoröi ekki að segja neitt, af ótta við að hann yrði kannski hræddur við aö heyra rödd hennar, og draga sig aftur inn i skel sina. Þau sátu þarna i rúman klukkutima, i notalegu rökkrinu, jafnvel eftir að Jimmy var búinn að lina á takinu og hallaði sér mjúklega að barmi hennar, stein- sofandi. Þrátt fyrir verkinn I öxlinni, hefði hún viljaö sitja svona alla nóttina, með Jimmy i faðminum. En þá kom Michael i dyragættina. Hann lyfti Jimmy varlega úr faðmi hennar og lagði hann i rúmið hans og lagði svo bangsann við hlið hans. Svo tók hann um olnboga Laurel og leiddi hana út úr herberginu. — Hann elskar mig ennþá, sagði Laurel og þurrkaði burt tárin með handarbakinu. — Hann vissi ekki hvers vegna þú fórst. Lurel, hann er of litill til að skilja þetta. En hún gat ekki hætt að gráta. Þegar hún gekk fram I eldhúsið, til að vera i einrúmi, fylgdi hann á eftir henni. Þau helltu sameigin- lega upp á könnuna, en þegar þau voru setzt með kaffibollana inn i dagstofuna, voru þau jafn vand- ræðaleg og þau höfðu verið á sjúkrahúsinu. Hún þakkaði honum fyrir bilinn, en hann yppti aðeins öxlum. — Ég náði loksins sambandi viö foreldra þina i gærkvöldi. Þeir hafa verið i Kanada. Faðir þinn sagði, að móðir þin kæmi kannski aö heilsa upp á þig fyrir jólin. Viltu það? — Það gæti kannski hjálpað upp á minnið, ef ég sé hana og get talað við hana.... En skyndilega fannst Laurel þetta ekki svo áhugavert lengur. Michael beygði sig til aö bursta rykkorn af skónum sinum, eins og til að losna við að horfa á hana. — Það... það hefir sjálfsagt verið erfitt fyrir þig að búa hér hjá mér, þar sem þú þekkir mig raunar ekki... — Það hefir verið ennþá erfiðara, að þekkja ekki sjálfa mig .... vita alls ekki hver eða hvernig ég er. Tárin runnu niður kinnar hennar, og hann lagði um hana arminn, þrýsti henni blið- lega að sér og lofaði henni að gráta i friði. Daginn eftir kom Michael með stóran pappakassa. Jimmy, sem var orðinn sjálfum sér likur, dansaði i kringum hann, þangað til Michael setti kassann á gólf- ið. Laurel og Jimmy lögöust á kné við kassann. A gráum teppis- bleðli sat loðinn hvitur hvolpur. Svartur blettur viö annað augað gerði hann svolitið kátbroslegan. — Má ég taka hann? spurði Jimmy og greip um hálsinn á dýrinu, sem stritaðist á móti. — Ekki svona, Jimmy. Michael, hann er of litill til að eiga hund, ég er hrædd um að hann kyrki hvolpinn. Ekki litill! sagði Jimmy ákveðinn. Hvolpurinn þaut eftir gólfinu, út I eldhúsið, inn i herbergi Jimmys og svo aftur inn i dag- stofuna, sigeltandi. Jimmy æpti af ákafa og Laurel reyndi árangurslaust, að bjarga hvolp- inum undan drengnum. Þegar hún þaut fram hjá Michael, heyrði hún aö hann hló glaðlega. — Þú skalt svei mér fá það! 11. hluti 49. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.