Vikan

Issue

Vikan - 06.12.1973, Page 39

Vikan - 06.12.1973, Page 39
 Smásaga eftir Helmut Busch. Þaö vissi Jónas ekki neldur. Hann var sjálfur litið hrifinn af svinakjöti, vildi miklu heldur pylsur með frönskum kartöflum, með miklu sinnepi og tómatsösu. Emma frænka stundi þungan og fór i kápuna. Hún ætlaði út til að verzla. Hún ætlaði að kaupa það sem hún þyrfti á að halda yfir hátiðina, svo hún losnaði við að fara út aftur, og hún ætlaði að láta senda vörunar heim. Jónas fylgdi henni. niður stig- ann. 1 honum miðjum mættu þau Almqvist gamla, sem staulaðist með erfiðismunum upp stigann og reyndi að hitta á skráargatið með skjálfandi fingrum. Hann kinkaði kolli og tautaði ein- hverja kveðju. Fyrir utan stóð Johnson. Hann stóð þarna alltaf við aðaldyrnar og virti fyrir sér fólkið, sem gekk fram hjá. Hann fór ekki inn, fyrr en honum var orðið svo kalt, að hann varð að fá sér kaffisopa, til að ylja sér á. Hann kinkaði kolli i kveðju- skini, svo var eins og hann ætlaði að segja eitthvað, sem ekkert varð úr. Já, hugsaði Jónas, gamalt fólk er kyndugt. bað kinkaði bara kolli og tautaði eitthvað fyrir munni sér, en talaði vist aldrei saman. Eins og til dæmis hún frú Frederiksen á þriðju hæð, og samt var hún sifellt að kvarta. undan þvi, að enginn kærði sig neitt um hana. Og karlinn með valbrána, hann hét Valmér, en hann kinkaði ekki einu sinni kolli eða bauð góðan dag. Mamma Jónasar var ennþá meira önnum kafin en venjulega, þegarhún kom heim. Það var svo margt, sem hún þurfti að gera fyrir jólin, svo margt, sem hún þurfti að pakka inn og setja niður i töskur, þvi að þau ætluöu öll að vera hjá foreldrum hennar, afa og ömmu, um jólin. —• Það er þó dásamlegt að þurfa ekkiaðelda mat.andvarpaði hún, en hún var samt ekkert glaöleg. Pabbi myndi koma á eftir þeim, hann hafði svo mikið að gera. Allir höfðu mikið að gera, þegar leið að jólum. Jónas hefði ekki verið neitt hrifinn af jólunum, ef ekki væru þaö jólagjafirnar. Full- orðna fólkið var eitthvaö svo taugaveiklað fyrir jól og alls ekki vingjarnlegt. Það var nú annars skrýtið, hvernig þaö breyttist svo á sjálfum jólunum. — Getum við ekki tekið Emmu frænku með okkur til afa og 49. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.