Vikan - 06.12.1973, Síða 43
| Auk þessa er svo herbergi, sem hvort sem
vill getur fylgt litlu ibúðinni eða húsinu
sjálfu, og þaðhefur nú til umráða yngri systir
Þórunnar, Sigrún, sem er nýflutt heim og
ætlar að vera eitthvað hjá þeim hjónum við
ýmsa sýslan, sem fylgir starfi húsbóndans.
Húsið virðist mjög stórt utan frá, og af
stærð þess og búnaði hafa vist gengið nokkr-
ar sögur. Það virðist þó hvorki sérlegá stórt
né iburðarmikið, þegar inn er komið, heldur
fyrst og fremst heinlilislegt og fallega og
hagkvæmt innréttað. Ég hafði orð á þessu við
Þórunni, og hún hló við.
— Já, okkur hafa svo sem borizt til eyrna
sögur um stærð og iburð, það er talað um
heilan konsertsal og annað eftir þvi. Húsið er
eitthvað nálægt 500 fermetrum að stærð, en
það verður að taka með i reikninginn, að
þetta er ekki bara heimili, heldur einnig
vinnustaður mannsins mins og byggt með til-
Í liti til þess. Auk þess fáum við svo oft gesti,
j t.d. listamenn, og við sáum, að það var nauð-
Isynlegt að geta boðið þeim upp á eitthvað al-
mennilegt.
- — Gátuð þið sjálf séð um innréttingar, val á
P viði, flisum, teppum og þess háttar?
— Já, hamingjan góða, ég varð að gera það
sjálf. Það var náttúrlega óskaplega litill timi.
t 3 dagar hér og 3 dagar þar. En ég er alveg
hissa, hvað þetta hefur blessast.
— Og þið kunnið vel við ykkur hér?
— Við erum ekki búin að vera nógu lengi i
húsinu til þess að geta eiginlega nokkuð sagt
um það. Við vorum hér einn mánuð i vor, og
þá var alit á öðrum endanum, iðnaðarmenn á
Litið inn hjá Askenazy-fjölskyldunni
Borðstofan er ákaflega falleg. Gluggar eru
alveg á eina hlið, eu aðrir veggir eru klæddir
palisander, dökkbrúnum með sem næst hvít-
um rákum. Borðstofusettið er einnig úr palis-
ander, og gólfið er kiætt ljósu teppi eins og i
stofunni. Á heila veggnum gegnt glugga-
veggnum er sérkennilegur járnskúlptúr, sem
Þórunn kvaðst hafa kcypt í New York. Úr
horðstofunni er gengt niður i æfingasal hús
bóndans.
Stofan er stór, en ákaflega hlýleg. Á góifinu
er ljóst, einlitt teppi út í horn og ofan á því tvö
minni og eitt skinn. Einn vegginn prýða
skápar undir hljómplötur og hókahillur úr
tckki, en Þórunn kvaðst vilja skipta á þeim
fyrir aðrar stærri og grófgerðari. Tvær setu-
grúppur eru i stofunni, i annarri er mjög
glæsilegt sófasett úr dökkbrúnu leðri, hitt
sófasettið er með dökkgrænu áklæði. Loftið i
stofunni setur á hana sérstæðan svip. Risið á
þakinu er látið halda sér og klætt ljósri furu
og minnir þannig á baðstofu. Niður úr
„rjáfrinu” hanga þrjár ijósakrónur,
myndaðar úr þremur mismunandi stórum
glerkúlum.
49. TBL. VIKAN 43