Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.12.1973, Side 45

Vikan - 06.12.1973, Side 45
eldri'börnin alltaf með okkur, þangað til þau fóru að ganga i skóla, og nú er sá yngsti alltaf með okkur á ferðalögum. — Hvar i heiminum heldurðu, að þið eyðið mestu af ykkar tima? I loftinu kannski? — Stundum finnst mér við dvelja lengst af i flughöfnum. Staðir eins og London Airport og Kennedyvöllurinn i New York eru orðnir eins og annað heimili fyrir okkur, þessi endalausa bið getur verið óskaplega þreytandi stund- um. Annars erum við liklega mest um kyrrt i London, vegna þess að þar spilar maðurinn minn inn á plötur, hann er á samningi hjá Decca. — Ætlið þið ekkert að fara að minnka við ykkur ferðalögin? — Jú, við viljum reyna að skipuleggja þetta betur, þannig að við séum heima lengri tima i einu. Það er nauðsynlegt, þegar börnin eru bundin við skóla hér heima. — Eru þau hneigð fyrir tónlist? — Stefán byrjaði að læra á flygil 6 árá. Við otuðum honum ekki út i það. Hann ep.mjög músíkalskur, en ég veit ekki, hvort það V'erð- ur nokkuð alvarlegt. Nadja byrjaði i tónlist- arskólanum i haust. Hún er reyndar ekkert spennt fyrir þvi, en mér finnst tónlist hrein- Þórunn Jóhannsdpttir ásamt Dimitri Þór og Nödju Lisu. lega eiga að vera liður i allri undirstoðu- menntun, og hún lærir þarna söng og að lesa nótur. Það þýðir ekki, að húri eigi að verða músikant, alls ekki. Annars er hún i ball^tt og er voða spennt fyrir þvi. Heimili Askenazyf jölskyldunnar ber greinilega með sér, að hljómlistin skipar þar ÖDdvegi. Fjögur magnarakerfi eru i húsinu, eitt i stofunni, eitt i stúdióinu, eitt i leikher- berginu óg eitt i hjónaherberginu. — Við erum alls staðar meðmúsik, m.a.s. i svefnherberginu- Nú, þetta, er i lifi manns hvort eð er, segir Þórunn. Veggirog hillur i æfingasal Askenazys eru úr ljósum viði, og dökkblágrænar sessur eru á bekkjunum. Flugvélamódelin, sem skreyta allar hillur i herbcrginu, eru skemmtiiega táknræn fyrir það lif„sem þessi fjölskylda lif- ir. ur. Auk þess, sem upp er talið, er flygill i einu horni stofunnar og „quadro" hljómflutnings tæki. Dökkbrúnt lcðursófasett og lágt sófaborð meö glerplötu mynda aðra setugrúppuna. A veggnum cr ofið teppi eftir Asgerði Búadótt- 49. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.