Vikan

Útgáva

Vikan - 06.12.1973, Síða 56

Vikan - 06.12.1973, Síða 56
— Hefurðu alltaf næg verkefni? — Mig vantar aldrei verkefni. Ég vinn að vfsu ekki alltaf eftir pöntun, margt af þessu geri ég bara fyrir sjálfan mig og veit ekki, hvort ég get nokkurn tima selt það. — Er glermyndlist ekki frekar notuð til skreytinga I opinberum byggingum en einkahúsum? — Fyrst og fremst er þetta list, sem opin- berar byggingar hafa notað sér. Emnú á sið- ari árum hefur hún þó nokkuð birzt inni á heimilum. Fólk virðist hrifið af þvi að hengja steindar glermyndir i glugga hjá sér, og einnig er nokkuð farið að tiðkast að gera steindar glermyndir á vegg með ljósi á bak við. Ég gerði t.d, myndirnar,-sem nú skreyta barinn i Þjóðleikhúskjallarnum og i Súlna- salnum á Hótel Sögu. Einnig lauk ég nýlega við glermyndavegg i nýja Landsbankahúsinu á Húsavik. — Ég hélt satt að segja, að þessa list væri naumast annarsstaðar að finna en i kirkjum og á söfnum. — Þannig var það til skamms tima. — Eru bankarnir kannski alveg að taka við af kirkjunum með alls konar list? Maður sér þar málverk og höggmyndir, og svo segirðu, að glermyndlistin sé að_Halda innreið sina i bankana. — Já, og1 mér likar það vel. List, hverju nafni, sem hún nefnist, á heima, þar sem fólkið er, t.d. i skólurh og alls konar sam- komuhúsum. Þvi ekki að fá listina t.d. inn i bióin? Það fara svo margir i bió. — Vinnurðu þin verk, t.d. heila glugga, aldrei i samvinnu við arkitekta bygginganna, sem sagt frá byrjun? — Nei, ég hef aldrei haft tækifæri til að vinna á þann hátt, en mig langar einmitt mjög mikið til þess. Ég hafði samband við nokkra arkitekta, þegár ég kom heim frá námi, en það varð ekki úr neins konar sam- vinnu. E.t.v. ætti ég að leita meira eftir því, en það er svona með alla myndlist, hún kem- ur alltaf á eftir. Mósaík er t.d. vegglist og ætti að vera hluti af arkitektúrnum, en hún kemur alltaf eftir á. Það er raunar rétt að byrja að brydda á samvinnu arkitekta og listamanna, eins og við skreytingu Sigurjóns Ölafssonar á Búrfellsvirkjun og einhver fleiri verk. Þetta hlýtur að vera framtiðin. Steint gler er lika list fy'rir stórbyggingar og ætti að vera hluti af arkitektúrnum. — Við vorum sammála um það i upphafi, að þessi listgrein væri lftt þekkt. Hefurðu ekki hugleitt að kynna hana betur? — Jú, mig langar einmitt til þess. Ég hélt sýningu á verkum minum fyrir fjórum árum, og nú stefni ég að sýningu i vor. Mig langar mikið til þess að sýna i Myndlistarhúsinu á Miklatúni, en það er raunverulega eini staö- urinn, þar sem ég get sýnt vegna glugga og birtu. Einnig hefði ég hug á að kynna það, sem er aðgerast i þessari listgrein hérlendis. Ég tók mikið af myndum á ferðalögum min- um i sumar, og ég vildi gjarna sýna þær myndir hér á sýningunni. — Allt, sem ég sé hérna á vinnustofunni hjá þér, er abstrakt. Vinnurðu aldrei figúra- tivar myndir? — Ég gerði glugga i Fossvogskapellu i figúrativu, og eitthvað fleira hef ég gert áf sllku, en þaö er miklu minna. — Þú hafðir ekkert kynnzt glermyndlist, áður en þú fórst i Myndlistarskólann. Hvaöa listgrein átti þá helzt hug þinn? Málaralistin? — Já, ág fór I frjálsa myndlist. En ég þurfti ekki að velta vöngum, eftir að ég hafði kynnzt glermyndlistinni. — Og hefur málverkið aldrei freistað þin? , — Jú, einstöku sinnum, en ekkert upp á siðkastiö. Ég held mér sé óhætt að skrifa undir það, að ég hafi valið mér réttu hilluna í lifinu. Ég er mjög ánægður með mina list- grein, hún gefur mér ákaflega mikiö, er fjöl- breyttogspennandi. Það er alltaf eitthvað aö gerast hjá mér. Þannig á þaö að vera.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.