Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.12.1973, Side 67

Vikan - 06.12.1973, Side 67
hlaupast á brott, mig langaöi bara ekki til aö hitta hður. — Hvers vegna ekki? — Vegna þess, aö mér geðjast ■allsekkiaðyöur.Efégá aö segja álit mitt, þá finnst mér aö þér séuð alveg óþolandi. — A hvaöa hátt? Það var ekkert aö merkja á röddinni, annaö en forvitni. — 1 fyrsta lagi litur út fyrir aö þér haldið yöur geta fengiö hvaö sem er, meöþvi einu, aö láta iljósósk yöar. Reiðin var nú að ná á henni tökum,— En eittætla ég aö segja yöur, þér getið ekki fengið Beau. Hann hló lágt. — Þar skjátlast yður, ég keypti hann núna siö- degis. Hún stóð á öndinni af undrun. En svo rak hún upp reiðióp kreppti hnefann og reyndi aö ná upp til að gefa honum utan undir. Hann greip miskunnarlaust um úlnliö hennar og dró hana að sér, beygöi sig niöur og kyssti hana fast á munninn og nokkuö rudda- lega. — Jæja, það getur verið aö yöur sé ljóst, að ég ætla lika aö eignast yöur, sagði hann, þegar hann að lokum sleppti henni. Símon iðraðist þess að selja Beau, eiginlega um leið og hann skrifaöi kvittun fyrir greiöslunni. Hann hafði gert þaö i augnábliks reiöi i garð Miu, fyrir þaö að hún skyldi taka upp á þessum kjána- skap og gera hann hlægilegan, að þvi er honum fannst. Brett vildi kaupa folann, jafnvel þótt hann hefði ekki skoðað hann og hann hafði komið Simon á óvart, þegar hann bauð i hann, miklu hærra verð, en Simon hafði hugsað sér að setja upp, eða gert sér vonir um að fá fyrir hann i Sydney. Og þegar hann bauöst til að ganga frá kaupunumii.staðnum. fannst Simon ekki að hann gæti gengiö a bak oröa sinna. Þegar Brett var farinn, fór Simon inn i skrifstofu sina og kveið þvi augnabliki, þegarMia kæmi heim og heyrði hvað gerzt hafði. Hún kom eins og hvirfilvindur inn i húsið og heimtaði að fá strax að vita hvar Simon héldi sig. Marion var undrandi yfir hegðun hennar og flýtti sér til móts við hana. — Hvað hefir komið fyrir? spurði hún. — Hvar er hann? Segðu honum að koma strax og standa fyrir máli sinu! Eða skammast hann sin, svo hann vill ekki standa frammi fyrir mér. Simon heyrði hávaðann og kom fram í dyrnar. — Heyrðu nú, Mia... — Hvernig gaztu gert þetta? hrópaði hún æst. — Hvernig gaztu fengið af þér að gera þetta, þegar ég var ekki heima? — Vill ekki einhver segja mér, hvað um er að vera? sagði Marion. — Mia, reyndu að vera róleg. — Hann seldi Brett Pellew Beau! — Simon, ég trúi þvi ekki! Simon rétti úr sér, þar sem hann stóð andspænis þeim báðum. — Ja. þvi skyldi ég ekki gera það? sagði hann — Beau var reiðubúinn lil sölu og Brett bauð gott verð fyrir hann, svo það var ekkert eðlilegra en að taka þvi boði. Þetta var að sjálfsögðu ekki allur sannleikurinn, en nægilegt til að skara eld að reiði Miu. — Jæja svo það er ástæðan! Gott verö! Þú hugsar ekki um annað en þessa andstyggilegu peninga! — Hvað annað, ég el upp hesta, til að selja þá, ekki mér til gamans. — Simon, faröu nú að skiptaum föt og leyfðu mér að tala við Miu i ró og næði, sagði Marion rólega. — Það þarf ekki að ræða þetta mál frekar, sagði Mia biturlega. — Beau hefir verið seldur og Brett Pellew keypti hann. Ég vissi auövitaö, að hann yrði seld- ur, en ekki svona fljótt og ekki þessum manni. Hún beið ekki eft- ir svari, en snéri sér við og hljóp upp á loft. Simon horfði undrandi á Marion. — Hvað hefir hún á móti Brett Pellew? spurði hann. — Mér lizt ljómandi vel á manninn. — Góði Simon minn, það er'svo margt, sem þú ekki veizt um kon- ur, sagði konan hans með til- finningu. Simon var hneykslaður og fór til að finna Charles. Mia brazt i grát um leið og hún kom inn i herbergið sitt. Hún hafði verið i svo mikilli tauga- spennu siðasta hálfa klukku- timann, að það var mikill léttir, aö þurfa ekki að halda aftur af tárunum lengur. Þeir tveir, sem hún elskaði mest i þessu lifi, höfðu verið hrifnir frá henni og þessa stundina fannst henni engin von framar. Hún leit ekki einu sinni upp, þegar Marion kom inn i herbergið til hennar. H A N S A - gluggatjöld HANSA-kappar HANSA-veizlubakkar Vönduð íslenzk framleiðsla. Umboðsmenn um allt land. PIERPOINT - OMEGA og margar fleiri svissneskar úrategundir. Sendum gegn póstkröfu um land allt. Maonns BeniamínssonSGo Veltusundi 3, Reykjavík 49. TBL. VIKAN 71

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.