Vikan - 03.01.1974, Qupperneq 7
9 l»ú «M t sannfærður um,að sjórnmálaskoðunþín
sé su eina rétta. Kn nú bregður svo við, að efst-
ur a lista flokks þins i þinu kjördæmi hefur
verið settur maður, sem þú hefur alls enga trú
á. Ætlarðu samt að kjósa listann?
a) ,Já
b) Nei
10. vliturðu sjálfan þig vera sérstæðan persónu-
leika?
a) Já
b) Nei
11. Þú ert fluttur i nýtt hverfi og nýju nágrann-
arnir hafa þegar reynzt þér hjálpsamir og
þægilegir. Þess vegna býður þú þeim heim til
þin i svolitla veizlu og veitir þeim vin. Einn
þeirra tekur með sér gamlan vin sinn, sem er
enginn annar en lögreglustjóri bæjarins. Þeg-
ar liða tekur á samkvæmið, gerast gestir ölv-
aðir, og fyllstur allra er lögreglustjórinn. Hvað
mundir þú gera?
a) gæta þess vel, að hann færi sér ekki að
voða, og panta loks leigubil og aka honum
heim
b) láta hann aka heim i sinum eigin bil, af þvi
að þú þekktir hann sama sem ekkert.
c) hringja i lögregluna og kæra hann
12. Lestu viðskiptadálka blaðanna daglega, enda
þótt þú eigir ekki hlutabréf i einu einasta fyrir-
tæki?
a) Já
b) Nei
13. Finnst þér sumarfriið þitt vera:
a) of langt
b) of stutt
c) hæfilega langt?
14. Ef þú hittir á óskastund á árinu 1974, hvort
vildir þú þá heldur:
a) erfa tiu milljónir króna
b) verða tvitugur aftur?
15. Hér er sumarfriið þitt aftur til umræðu. Hvort
vildir þú heldur:
a) fá uppfylltan draum þinn um hið fullkomna
sumarleyfi á hvitri baðströnd með pálma-
trjám og glaðasólskini dag eftir dag.
b) eða dveljast á leiðinlegum herragarði
fjarri lifsins lystisemdum, af þvi að gestgjaf-
arnir, sem buðu þér, eru frægasta og valda-
mesta fólk landsins?
16. Hú ert að aka heim á leið eftir auðum vegi
klukkan krjú um nótt. Þá bilar billinn. Þú ert
ilia staddur langt fjarri mannabyggð i versta
veðri. Þá gerist undrið: Annar bill kemur ak-
andi, hann stanzar, og þér er boðið far heim.
En þvi miður kemur i íjós, að ökumaðurinn er
einn af fáum raunverulegum óvinum þinum.
Þú fyrirlitur hann. En mundirðu samt þiggja
far með honum heim?
a) Já
b) Nei
17. Verzlunin hans Jóns á horninu gengur ekki
sem bezt. Vöruúrvalið er ekki mikið, enda hús-
rými litið. Þar að auki er komin ný kjörbúð
rétt hjá honum. Þér er þess vegna vel ljóst, að
framtíð búðarholunnar byggist á þér og ná-
grönnum þinum. Hvað ætlarðu að gera?
a) halda áfram að verzla hjá Jóni eins og þú
hefur gert
b) fara að verzla i kjörbúðinni, þar sem vöru-
úrvalið er miklu meira og allt er svo fint
c) verzla á báðum stöðunum?
18. Gætir þú ef nauðsyn krefði lifað á tónstunda-
starfi þinu?
a) Já
b) Nei
c) hef ekkert tómstundastarf
19. Nágrannakona þin er i peningavandræðum.
Það er búið að loka fyrir rafmagnið hjá henni,
og hún er alveg í öngum sinum. i neyð sinni
kemur hún til þin og biður þig að kaupa af sér
málverk, sem hún á, fyrir tvöþúsund krónur,
svo að hún geti borgað rafmagnið. Þú sérð hins
vegar það sem hún veit ekki, að þetta er eitt af
verkum „gömlu meistaranna” og er að
minnsta kosti 150 þúsund króna virði. Hvað
myndir þú gera?:
a) segja henni strax hvers virði málverkið er
b) segja henni, að málverkið sé verðmætt,
greiða henni 50 þúsund fyrir það, en selja það
siðan sjálfur á 150 þúsund.
c) borga henni tvöþúsund krónur eins og hún
bað um?
— o—
1. TBL. VIKAN 7