Vikan


Vikan - 03.01.1974, Síða 26

Vikan - 03.01.1974, Síða 26
Völva Vikunnar vakti athygli alþjóðar i fyrra HUN REYNDIST SANNSPÁ Engum viðmælanda Vikunnar á árinu 1973 hlotnaðist viðlika frægð og völvunni okkar, sem spáði ýmsu ótrúlegu i 1. tölu- blaðinu. Mörgum hefur eflaust farið svo, að þeir höfðu gaman af spánni, en hugsuðu ekki frekar um hana. Það var ekki fyrr en gosið i Vestmannaeyjum hófst, að völva Vikunnar komst á allra varir, þvi margir þóttust sjá, að þar rættist spá hennar um nátt- úruhamfarir og spjöll, sem hún vildi ekki staðsetja til þess að vekja ekki ótta. Siðan rak hvern atburðinn annan, sem staðfesti spádóms- gáfu þessarar hógværi völvu, sem ekki vill fyrir nokkra muni láta uppskátt opinberlega, hver hún sé. Við hér á Vikunni höfum naumast haft stundlegan frið fyrir spurningum um hana. Flestir fjölmiðlar landsins, og jafnvel erlendir lika, hafa sýnt völvunni ómældan áhuga og reynt hvað eftir annað að fá upp úr okkur eitthvað um hana. Og æ ofan i æ hefur fólk hringt til okk- ar og sagzt hafa frétt eitt og ann- að, sem völvan hafi séð fyrir, og jafnvel haldið þvi fram, að það þekkti hana og hefði talað við hana. Það hefur aldrei haft við 26 VIKAN l.TBL. rök að styðjast, og meðan hún kýs þessa algjöru leynd, munum við ekki bregða trúnaði við hana Við skulum rétt rifja upp sitt af hverju úr spádómi hennar, sem reyndist svo furðulega glöggur. Lýsing hennar á veður- fari ársins reyndist hárrétt, svo og spádómar hennar um afla- brögð og heyskap. Hún spáði þvi einnig, að bændur mundu ekki allir minnast ársins 1973 að góðu einu, þvi að sjúkdómur i sauðfé mundi valda nokkrum þeirra þungum búsifjum. Það gekk eftir, eins og þeir muna, sem fylgzt hafa með fréttum af striði norðlenzkra bænda, einkum ey- firzkra, við riðuveikina, en þar hafa þeir jafnvel á stöku bæjum þurft að skera niður allt sitt fé vegna veikinnar. Efnahagsmálin kvaðst hún vilja eftirláta stjórnendum landsins, en öfunda þá litt af þvi að fást við þau og þeim mun minna, sem lengra liði á árið. Hins vegar spáði hún þvi, að rikisstjórnin mundi sitja áfram, hvað sem á dyndi, þrátt fyrir harða gagnrýni og innbyrðis á- tök. Niðurstöður viðræðna um herstöðvarmálið mundu ekki liggja fyrir á árinu, sagði völv- an, en kannski finnst einhverjum litið hafa orðið úr spá hennar um mótmælagöngur og fundi i tengslum við það mál, þrátt fyrir gönguna og fundinn i júni og fleiri tilburði i þessa átt. Þá reyndist völvan sannspá um lausn landhelgisdeilunnar, þegar hún sagði: „Landhelgis- I

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.