Vikan - 24.01.1974, Blaðsíða 7
Mao á;göngunni löngu”
nokkurs konar leirrúm. 1 þvi svaf
öll fjölskyldan.
Nokkrar krukkur undir saltað
kálmeti, eitt eða tvö eggjárn og
ein hrifa var allt, sem flestir
bændanna áttu. Margir þeirra
áttu ekki einu sinni dráttardýr.
Ég sá oft tvo menn beita sér fyrir
plóginn, þegar akrarnir voru
plægðir. Japanirnir höfðu haft
mest allan búpeninginn á burt
með sér. Bændurnir urðu sjálfir
að troða vatnshjólin.
Hins vegar var ég, eini útlend-
ingurinn, vel sett. Stjórnin sá mér
fyrir helli með ritvél og oliu-
lampa. I augum flestra þar um
slóðir voru þessir gripir heilt
furðuverk.
Ég vann i tannviðgeröar-
stofnun, sem ekki var staðsett i
helli, heldur i peningshúsi. Hús-
búnaðinn hafði smiður nokkur úr
borginni smiðað. Þar fór mest
fyrir stól, gerðum úr tré og járni.
Fyrri hluta dagsins leiðbeindi ég
nemendum minum, en siðdegis
vann ég við læknishjálpina.
t rauninni var miklu meiri þörf
á augna- eða hitabeltissér-
fræðingi en mér. Margir sjúkling-
anna þjáðust af sjúkdómum, sem
Magdalena Robitscher-Hahn
ásamt aðstoðarkonu, túlki og
matreiðslumanni i Jenan.
Magdalena Robitscher-Hahn býr
nú i Frankfurt.
ég þekkti ekki nema úr ke'nnslu-
bókunum. Samt sem áður var
heilbrigðisástand fólksins á
„rauða” svæðinu i tniklu betra
ásigkomulagi en á yfirráðasvæði
Schang-Kai-scheks. Þar drógust
allir ibúar heilu þorpanna upp.
Læknarnir á sjúkrahúsunum,
þar sem allir sjúklingar fengu
meöhöndlun og umönnun sér að
kostnaðariausu, voru undan-
tekningarlaust duglegir og lögðu
sig alla fram. Þeir höfðu ráöið
niðurlögum margra alvarlegra
sjúkdóma og ungbarnadauði
hafði minnkaö til mikilla muna.
Einu sinni vorum við boöin til
málsverðar hjá stjórninni. Sjú
Teh, hershöföingi, yfirmaður
Rauöa hersins, tók á móti okkur.
Mao Tse-tung og Sjú En-lai voru
þar lika. Af þessu tilefni klæddust
þeir ekki venjulegu bláu
einkennisbúningunum, heldur
brúnum i þeirra stað. Þessir
búningar voru sniðnir úr fyrsta
dúknum, sem ofinn var i Jenan.
Þetta var i eina skiptið, sem ég
sá tilbreytingu i klæðaburöi.
Yfirleitt voru allir i eins bláum
bómullarfötum eða fóðruðum
jökkum. Engin merki eða oröur
voru til. Það var þvi harla erfitt
að gera greinarmun á bónda,
lækni, prófessori og rithöfundi.
Mao Tse-tung geislaði af
rósemi og jafnaðargeði, sem
hafði áhrif á alla viöstadda. 1
rauninni er andlit hans ekki sér-
lega kinverskt. Vitaskuld hefur
Framhald á bls. 26
4. TBL. VIKAN 7