Vikan - 24.01.1974, Qupperneq 31
MIÐDEGISVERÐURINN
i EINU FORMI
Auðvelt er að nýta allskonar
afganga á eftirfarandi hátt. Allt
mögulegt er hægt að leggja i
smurt eldfast form. T.d. má taka
kjötbollur eða buff i sósu og
brytja smátt og drýgja með
steiktum lauk og setja i form til
skiptis með soðnum kartöflum
sem skornar eru i sneiðar og kar-
töflulag haft efst. Þá má einnig
setja baunir inn á milli eða
bl. 'grænmeti og setjið smjör-
likisbita ofan á. Einnig má nýta
svona alls konar pylsur og kjöt-
farsafganga á þennan máta.
Fylgist með að ekki þornj i
forminu. Ef það virðist ætla að
þorna i forminu má setja teninga-
soð i fatið. Ef eitthvað er ekki
soðið sem notað er i svona
afgangamat, þarf að áætla lengri
steikingartima.
LJÓS BAUNASÚPA
2 msk. hveiti
2 msk. smjörliki eða smjör
1 liter soð
1/2 dós niðursoðnar baunir
1/2 laukur
salt pipar
2 eggjarauður
2 msk. rjómi
steinselja
Meðlæti:
franskbrauð, smjör rifinn ostur.
Bakið súpuna upp á venjulegan
máta. Allt sett úr baunadósinni
úti, ásamt fintsöxuðum lauk, salti
og pipar og látið sjóða um stund.
Hrærið saman eggjarauðu og
rjóma og þeytið þvi úti súpuna
rétt áður en hún er borin fram. 1
stað þess að bera fram brauð og
smjör á hefðbundinn hátt, eru að
þessu sinni skornir. niður fransk-
brauðsteningar og brúnaðir létt i
smjöri á pönnu og rifna ostinum
stráð yfir.
SOÐKRAFTUR MED
PAPRIKU OG EGGI
Byrjið með að steikja rauða pap-
riku i 1/2 msk. smjöri i potti. Hún
á ekki að brúnast. Hellið á 1 ltr. áf
kjötkrafti. Látið sjóða. Setjið eitt-
hvað grænt úti t.d. steinselju og
gjarnan skvettu af sherry. Berið
fram með eggi, annað hvort lin-
soðnu, harðsoðnu, eða soðnu i
soðinu. Berið brauð með.
EGGJAKAKA
Aætlið 1 egg á mann og 1 msk. af
vatiii eða rjóma, ögn af salti.
Sláið vél i sundur. Setjið smjör-
bita á pönnu og hafið ekki of
sterkan hita. Látið hræruna stifna
dálitið fyrst. Þegar massinn er
aðeins byrjaður að stifna, farið þá
með gaffli eftir botninum, þá
rennur það sem ekki er stifnað
niður á botninn. Þegar eggja-
kakan er stifnuð að neðan og eins
og kremkennd að ofan má setja i
hana fyllingu t.d. einhverskonar
afganga. Þá má brjóta hana
saman og fylla með einhvers-
konar góðri berjasultu.
4. TBL. VIKAN 31