Vikan - 07.03.1974, Síða 5
ekki sem verst, en þó neyöist
Pósturinn til að áminna þig
stranglega um aö skrifa á BIRTA
en ekki byrta. Þá á aö segja =g
vil en ekki ÉG VILL. Vatnsbera-
strák og hrútsstelpu er spáö
þokkalegu lifshlaupi saman og
sama er að segja um vatnsbera-
stelpu og krabbastrák.
HÆKKAR VIKAN
ÓEÐLILEG MIKIÐ?
Elsku Póstur!
Ég vona, að þú getir frætt mig
um það helzta, sem ég vil fá að
vita, en fyrst ætla ég að leyfa mér
að þakka Vikunni fyrir frábærar
framhaldssögur og mjög góðar
smágreinar.
Jæja, þá er að demba sér i
spurningarnar:
1. Hvað getur þú sagt mér og
frætt mig um Jun Crose?
2. Hvað helduröu, að ég sé göm-
ul?
3. Hvernig fara bogmaðurinn
(strákur) og krabbinn (stelpa)
saman?
4. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni?
5. Hvers vegna hækkar Vikan
svona ört og mikiö i verði?
6. Hvaða vintegund finnst þér
bezt?
Fyrirgefðu, ef þessi siðasta er
of persónuleg.
Bið að heilsa þér og þinum.
Astarkveðja.
Krabbamein.
Mikið eru þessi bréf meö núm-
eruöum spurningum hvimleið.
Þau minna á þá daga« er Póstur-
inn sat kófsveittur viö að leysa úr
spurningum, sem lærifeður hans
höfðu soöið sainan, að þvi er virt-
ist i þeim tilgangi einum að hrella
hann. En úr þvi að bréfritarar eru
svona mikiö fyrir að töiusetja
spurningar sinar, þýðir ekkert
annað fyrir Póstinn en tölusetja
svörin, svo að allt fari ekki i einn
allsherjar rugling og enginn botni
neitt i ncinu.
1. Pósturinn hefur aldrei heyrt
þessarar persónu getið fyrr.
2. Þú segir i upphafi bréfsins,
að þú vonir að Pósturinn geti
frætt þig um það heizta, sem þú
vilt fá að vita. Spurðu mömmu
þina, hvað þú sért gömul.
3. Þau eiga mikla hamingju
fyrir höndum, cf þau binda trúss
sitt saman.
4. Skriftin er þokkaleg og bend-
ir til nokkuö sérstæörar kimni-
gáfu.
5. Mikil óöaverðbólga tröllriður
öllu þjóðlifinu og Vikan hefur ekki
einu sinni fylgt veröbólgunni,
hvað þá meira.
6. ískalt Islenzkt brennivin. (Og
það á vitaskuld ekki að blanda i
gosdrykkjum frekar en annaö
vin).
mmmi
FÓSTUREYÐINGAR
Kæri Póstur!
Mig langar til að vita, hvort
fóstureyðingar séu almennt not-
aðar hér á landi? Þar með er ekki
• sagt, að ég þurfi á eyðingu að
halda. Ég vona, að þetta lendi
ekki i ruslakörfunni.
Bless.
G.B.
Löggjöf um fóstureyöingar er i
endurskoðun og lagt hefur verið
fram frumvarp á alþingi, sem
gerir ráð fyrir frjálslegri fóstur-
cyðingalöggjöf, cn viö höfum haft
til þessa. Fóstureyðingar hafa
ekki verið almennar hér á landi
hingað til og vonandi þurfa þær
aldrei að verða það.
SVAR TIL EINNAR
ÖRVILNAÐRAR
Hafðu engar áhyggjur. Þetta er
ósköp cðlilegt og hefur hrjáð
marga stúlkuna á undan þér og
kemur engum við nema þér einni.
Þú þarft hetdur ekki að hafa á-
hyggjur af þvi að piltarnir hafi
sagt frá þessu. Svoleiðis nokkru
þegja þeir yfir. Segöu piltinum,
sem þú ert hrifin af alian sann-
leikann, og hann mun skiija þig.
Ef hann gerir það ekki, áttu sjálf-
sagt ekki eftir að sjá lengi eftir
þvi að binda endi á kunningsskap
ykkar.
sre^
■AV,
\y>
ATHUGASEMD
Okkur láðist að geta þess, aö
forsiðan á 6. tbl. var tekin af Jóni
Armanni Heðinssyni, alþingis-
manni, en hann er forseti Sigl-
ingasambands tslands. Myndin
er tekin á ytri höfninni i Reykja-
vik um borð i Blæsvöiunni, sem er
eign Siglingaklúbbsins Óðins i
Kópavogi.
-Afsakið hvað viö
’vomuTD seint, það er
svo erfitt að ’coma
FaLLa af' stað.'
MI»A
PIIIATIV
10. TBL. VIKAN 5