Vikan


Vikan - 07.03.1974, Blaðsíða 10

Vikan - 07.03.1974, Blaðsíða 10
Kvöldið var dásamlega fagurt, allt umhverfið tindraði og snjór- inn virtistsjálflýsandi. Fólkið var á fljúgandi ferð, fram og aftur, og snjórinn þyrlaðist undan skiðun- um. Við Julian virtum þetta allt fyrir okkur og hann hélt um axlir mér. Snjórinn var allt i kringum okkur og innra með mér fann ég þessa innri glóð og var það ljóst, að Julian fann það lika. Mér var funheittog ég vissi að ég var rjóð, bæði af kuldanum og þessum nýja innri hita, og þegar Julian lagði af stað niður Devils Drop, fylgdi ég eftir. Ég tók beygjurnar alveg eins og Julian og fannst það alls ekki erfitt, enda gat ég notað förin hans. Mér fannst ég vera örugg' og sterk og fær i flestan sjó. beg- ar við komum niður á jafnsléttu, beið Shan okkar þar. — Hefurðu séð Stuart? spurði ég. Hún svaraði stuttaralega: — Hvar heldurðu að hann sé? Að sjálfsögðu einhversstaðar þarna uppi. Liklega milli stjarnanna. Þegar hann er þarna uppi i hæð- unum, snertir hann yfirleitt ekki jörðina. Julian, ég er með hræöi- legan höfuðverk. Viltu koma með mér inn i skiðaskálann? — Viltu kannski fara heim? spurði hann og var aftur kominn með allan hugann við systur sina. — Nei, náðu b'ara i borð fyrir okkur og pantaðu kaffi. Ef ég tek eina aspirintöflu batnar mér strax. Ég vil ekki eyðileggja á- nægjuna'fyrir þér. — Vilt þú koma inn liká? spurði Julian mig, um leið og hánn beygði sig niður, til að taka af sér skiðin. Ég hristi höfuðið. Ég vildi held- ur vera útj og horfa á fólkið i brekkunum* blanda mér 1 fjöld- ann og njóta þess að vera á skið- um. Finna ánægjuna hjá hinu fólkinu og gleyma áhyggjunum um stund. Gleyma áhyggjum minum af Stuart. Þegar þau voru farin inn, fór ég af stað aftur, ýtti méráfram meðskiðastöfunum og naut kvöldloftsins. Ég haföi aldrei getað gert þetta áður en ég hit.ti Julian. Nú var ég lika orðin heilluð af þessari veröid. Ég hrökk við, þegar Clay renndi sér upp að hliðinni á mér. Hann greip um arm minn, til að stöðva mig. — Ég þarf að tala við þig, sagði hann. Ég horfði á hann efablandin. — Shán var með höfuðverk. Julian verður liklega hjá henni stundar- korn, en svo kemur hann aftur til min. — Það er ekki vist að það verði fyrsta kastið. Ég bað Shan að lokka hann frá þér og halda i hann um stund, svo ég gæti talað við þig. Taktu af þér skiðin, ég veit um stað, þar sem við getum talað saman i næði. Hann leiddi mig upp að litlu timburhúsi meö háu þaki og þeg- ar hann opnaði dyrnar, sá ég að þetta var kapellan. Rauðaviðar- veggir náðu upp unþir þak, en þar voru rimlar, til að koma skiðum fyrir. Hálnipokum var raðað upp I staö bekkja, báðum megin við ganginn i miðjunni. begar Clay lokaði dyrunum að baki okkar, Ipwwifr ■ý&y 's - í a > :í Hrævareldur ll.hluti Eftir Phyllis A. Whitney 10 VIKAN 10. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.