Vikan


Vikan - 07.03.1974, Side 18

Vikan - 07.03.1974, Side 18
VERÐl BLESSVÐ GOAN GOÐ... Me&an ljóöiö lék vi& Pál létt af söng og æsku, öllum fannst hin fyllta skál flóa af drottins gæsku. Svo kveöur Stephan G. Stephansson um Pál Ólafsson, en fá skáld hafa ort af meiri hjartans einlægni og ljúfmennsku en hann. Gunnar Gunnarsson segir i inn- gangi aö ljóömælum Páls: „Laus viö hverskonar fordild og tepru- skap færir PáH i hljóöstafi allt þaö, er fyrir augu og eyru ber og I hugann kemur.” Og um viöhorf sitt til skáldskaparins segir Páll sjálfur i bréfi til bróöur sins, Jóns Ólafssonar: „Éghef aldrei kveöiö neina visu i þeim tilgangi aö láta prenta hana né til aö troöa mér inn I skálda tölu, heldur eins og þú veizt af þvi, aö ég hef aldrei unaö viö annaö og aldrei getaö haldiö mér saman, likt og spóinn.” Viö skulum rifja upp fáeinar stökur eftir Pál Ólafsson i þessum þætti. Kunnugt er, hversu góöar ástir voru milli Páls og konu hans, Ragnhildar. Hér koma nokkrar af fjölmörgum visum, sem hann orti til hennar: Astin þin er ekki dyggð, ekki skylda heldur, hún er ekki heldur tryggö, hún er bara eldur. Minnisstæö er myndin þin mér á nótt og degi. Hún var eina unun min á ævilöngum degi. Mjúkar hepdur hefurðu, hálsinn minn þá vefuröu, góöa kossa gefuröu, hjá gamla Páli sefuröu. Ó, aö þú gætir sofið svona sveipuö fast aö hjarta mér, og allra þinna óska og vona uppfylling ég væri þér. Séröu ekki aö dagur dvin? Dregur yfir húmiö. Kossarika konan min komdu nú i rúmiö. Höndin þin svo heit og smá, hún meö fingra máli báegir öllu böli frá brjóstinu á Páli. Brosin þin og bllöu orö brjóstiö fylla vonum og fleygja öllu fyrir borö fjandans áhyggjonuin. Fjör og heilsu finn ég dofna, feigö og ellin sækir mig. En fyrr skal blessuö sólin sofna en sál min hætti aö elska þig. Nú er þorrinn liöinn, og þótt ekki þurfi ýkja mikla karl- mennsku og kjark til aö þreyja hann nú á dögum, höfum viö þó fundiö meir en oft áöur fyrir frosthörku hans og veöragrimmd. Páll Ólafsson kvaddi þottann eitt sinn meö svohljóöándi eftirmæl- um: Hús og þekjur þorrinn Skók, þá gekk flest I sundur. Heyin min og tööur tók, tannaöi eins og hundur. Kjötiö beinum fló hann frá fákum, ánum, kúnum, en holdin skildi hann eftir á einum hesti brúnum. Eitt hann hefur verkið verst vunniö Austurlandi: Hann hefur á fjöllin fest fannir ókljúfandi. Flesta brestur bændur mjöl og björg af ýmsu tagi, ' og þeim er öllum þrotiö öl. Þaö var mér nú bagi. Þorrinn svona þurrt og vott þreif úr bænda höndum. Engri skepnu geröi hann gott, > gekk sem ljón með ströndum. Isum þakti eyjaband allri björg að varna, og hvergi sleppt’ann hval á land helvitið aö tarna. Fari hann nú i fjandans rass og fái skjótan bana. Veröi góa verra skasS verður aö jafna um hana. Þorra sárin góan grætt getur strax I vetur, eins og vóndan bónda bætt bezta kona getur. Sjálfur get ég sannaö þaö og sýnt á allar lundir. Heföi ég ráðum hennar aö hallazt allar stundir, hefb’ún getað gert úr mér góöan mann um siðir, en þorra lundin leiö og þvær langt of sjaldan hlýöir. Þá eru kveðin þorra ljóö og það I mestu bræði. Veröi blessuð góan góð geri ég betra kvæði. VÍSNAÞÁTTUR VIKUNNAR Jón ólafsson gaf út ljóömæli bróöur sins, i tveim bindurti. Hið fyrra korrt út áriö 1899, en hið siöara árið 1900. Þriöja bindiö var boöað, en kom aldrei. Siöar hefur sitthvað fleira af ljóöum og stök- um Páls komizt á prent, til dæmis I safni, sem Páll Hermannsson, , fyrrum alþingismaður, Sá um og kom út 1955, og núna fyrir örfáum árum voru dregin fram I dags- ljósiö áöuróbirt ástaljóö til Ragn- hildar og vöktu mikla athygli. Bezti kveöskapur Páls er meö þvi móti, aö margir læra hann og muna, án þess aö hafa mikiö fyrir þvi. Þess vegna liföi fjöldi visna i minni manna, jafnvel heil kvæöi, — og lifir enn. En litum á nokkrar lausavisur: UM UNGASTÚLKU Ekki tala máliö mælt má viö svanna ungan, þá er eins og stálið stælt .strax i henni tungan. UR LOÐMUNDARFIRÐI Vináttan I vorum firði væri, að ég held, ekki meira en álnarvirði, ef hún væri seld. BRENNIVINIÐ BÆTIR Finnst þér lifið fúlt og kalt, fullt er þaö með lygi og róg, en brennivinið bætir allt,. bara að það sé drukkið nóg. ORBRÆÐRAMESSU Meðan nokkurt tár er til og tappinn næst úr stútnum, syngjantH ég sitja vil hjá sextán potta kútnum. STAKA Standa þakin björgin blá , bindur klaki völlinn. Sandi vaka öldur á, undir taka fjöllin. MJALTAKONAN Laglega hún gengið gat, gutlaðist upp úr fötunni. Aumingjarnir eiga mat eftir hana á götunni. DANARFREGN Séra Bergvin sagður er sina holu kominn i. Tittlingarnir, truðu mér, tárast varla yfir þvi. VIÐ VILHJALM ODDSEN Taug er engin til i mér, treysta sem að megi. Veit þó einn, sem verri er: Vilhjálm bónda.i Teigi. LAUSAVISA Þessi krummi kroppar mig, kannske af gömlum vana. Hans er lundin söm viö sig, sezt á aumingjana. VISA Þó séu br.ot til sekta nóg og syndir margfaldaðar, I himnariki held ég þó þeir holi mér einhvers staðar. Við skulum kveðja Pál ólafsson meö ofurlitilli sögu, sem er að finna I formála að ljóðabók hans 1955 eftir Pál Hermannsson: „Páil er börnunum góður fé- lagi. Hann kann þá sjaldgæfu list aö leika sér eins og barn, eðlilega og innilega... Settu nú rjómann og sykrið I bollann, svolitið koniak, hrærðu svo i, kysstu mig siðan og kærðu þig skollann, þótt Kristin og mamma þin hlæi aö þvi Þannig sagði Páll litilli stúlku ■til verka, er. bar góðgeröir fyrir géstinn. Varla hefur hánn þá grunaö, að þessi litla stúlka eign- aöist sibar son, er sæti við hlið Páls Ólafssonar meðan vinsael- asta kvæði hans verður sungiö I landinu. Sonur hennar var Ingi T. Lárusson, tónskáld.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.