Vikan - 07.03.1974, Side 24
nefnilega aldrei að syngja neitt og
það likaði honum ekki. Þar fyrir
utan gat hann hvort eð er ekkert'
spilað á orgelið, sem hann átti þá.
Á árinu 1967 svaraði hann auglýs-
ingu, þar sem auglýst var eftir
lagasmiðum. Hann var ráðinn og
fékk 10 pund á viku. Bernie
Taupin var einnig ráðinn til sama
fyrirtækisins um svipað leyti.
Bernie er eins og allir ættu að
vita, sá er samið hefur alla text-
ana fyrir Elton. 1 þætti, sem birt-
ist hér um haustið 1972, var grein
um Elton John. Þar var vitnað i
Elton John: ,,Ég kynntist Bernie
aldrei fyrsta árið, sem við unnum
fyrir sama fyrirtækið. Hann átti
heima uppi sveit og þaðan kom
hann öðru hvoru i bæinn með einn
kassa af textum”.
En hvernig sem samstarfið hef-
ur nú verið, þá bar það að lokum
árangur og ákveðið var að Elton
John gerði sina fyrstu plötu. Hún
hlaut nafnið Empty Sky og hlaut
ágætar viðtökur. Siðan hefur veg-
ur hans farið stöðugt vaxandi.
Allur ferill Elton hefur verið
vandlega skipulagður. Hann hef-
ur farið varlega i sakirnar, en
aukið hraðann hægt og hægt. Há-
punkturinn var svo siðast liðið ár
og albúmið Goodby Yellow Brick
Road.
Vinnan við Goodby Yellow
Brick Road hófst snemma á sið-
asta ári. Þegar i april mánuði
hefur Elton lokið við tvö eða þrjú
lög, þ.á.m. Bennie and the Jets og
Sweet Painted Ladies. Bernie
Taupin hafði þá, að áliti Elton
John, komið fram með bestu
texta, sem hann hafði fram að þvi
gert. Það var spenna i loftinu. 1
mai fór Elton ásamt hljómsveit
sinni til Kingston á Jamaica. Þar
átti að hefja upptökur, en ekkert
gekk- og þeir sneru aftur til
Chateau d’Herouville, sem er litið
þorp i Frakklandi. Þar er gott
stúdió staðsett, stúdió sem frægt
er orðið vegna þess aðElton John
hefur hljóðritað þar. Ein L.P.
platan hans, Honky Chateau, var
nefnd eftir þorpinu, en auk henn-
ar, hafði hann m.a. þljóðritað
,,Don’t shoot me” þar. í Frakk-
landi dvaldist Elton svo i mai og
fram i júni, en þá hélt hann til
Englands og eyddi tveimur vik-
um i stúdiói við stjórnun á upp-
töku söngkonunnar Kiki Dee. íjúli
er Elton kominn til Los Angeles,
þar s.em hann leigir sér villu i
Beverley Hills. Þar voru lögð á
ráðin um stofnun nýs hljómplötu-
fyrirtækis, Rocket eða Rakettu-
hljómplötur. Einnig notaði hann
timann til þess að fara i gegnum
200 nýjar plötur, sem komið höfðu
út þann tima, sem hann hafði vec-
ið i stúdiói. Elton fylgdist ákaf-
lega vel með öllu þvi, sem út
kemur á hljómplötu, enda segir
hann sjálfur. „Rætur minar
liggja i enskum hljómplötum”.
Með öðrum orðum, hann hljómar
eins og þverskurður af hljóm-
plötusafni.
,t ágúst er hann kominn aftur til
London og þar er hljómleikaferð-
in um Bandarikin skipulögð, sú
áttunda i röðinni. í þetta skipti
átti hún að verða eins stór um sig
og hægt var. Heimsækja átti 42
Framhald á bls. 41
ELTON JOHN
ár frægð-
arinnar.
1973.
Ef ætti að benda á eitthvert á-
kveðið timabil á ferli Elton Johh,
sem talist gæti það áhrifamesta á
ferli hans, þá yrðu allir sammála
um árið 1973. Á siðasta ári varð
Elton John raunveruleg súper-
stjarna. 1 lok ársins sendi hann
frá sér tvöfalt albúm, sem hefur
verið borið saman við Sgt. Pepper
að mikilvægi. Hann fór i hljóm-
leikaferð um Bandaríkin, og sló
öll sölumet bæði Rolling Ston.es og
Elvjs Presley. Það sannar ekki
aðeins verðleika hans sem lista-
manns, heldur einnig algjöra fórn
hans á sjálfum sér i þágu tón-
listarinnar og frægðarinnar.
Reginald Kenneth Dwight heit-
ir hann réttu nafni og hefur spilað
á pianó frá þvi hann man eftir
sér. Hann byrjaði i sinni fyrstu
hljómsveit þegar hann var ungur
að árum, árið 1964. Sú hét Blue-
sology. Þar toldi hann i þrjú ár
eða þangað til hann hætti vegna
þess að hinir i hljómsveitinni voru
frekari en hann. Elton fékk
HLJÓMLEIKAR I
r r
HASKOLABIOI
Kinhverjir mestu hljómleikar, sem haidnir
verða á þessu ári, vcrða væntanlega í Háskóla-
biói þann 12. marz n.k. þar munu koma fram sig-
urvegarar i vinsjældakosningu þáttarins, ásamt
fjölmennum hópi aðstoðarhljóðfæraleikara.
Sigurvegararnir eru eins og allir vita hljóm-
sveitirnar Hljómar, Brimkló og Change
(Magnús og Jóhann) og Jóhann G. Jóhannsson.
Hljómar, sem kosnir voru „bjartasta vonin
1974”, munu flytja lög af væntanlegri L.P. plötu
sinni, sem hljóðrituð var I Bandarikjunum fyrr í
vetúr. Jóhann G. Jóhannsson Change og
Brimkló munu einnig flytja frumsamið efni ein-
göngu. Hljómsveitunum og Jóhanni til aðstoðar
verða um 10 hljóðfæraleikarar aðrir, blásarar,
pianóleikarar og fl. Magnús og Jóhann, sem
unnu kosninguna um vinsælustu 2ja laga plöt-
una, Candy Girl, munu væntanlega flytja það lag
og siðan það besta úr hinu mikla lagasafni sinu,
en þeir æfa nú stlft fyrir frekari hljómplötuupp-
tökur i vor. Brimkló, sem kosin var vinsælasta
hljómsveitin 1973, koma fram án sérstaks söng-
vara, en þeir sem eftir eru i hljómsveitinni munu
syngja allir jafnt, og engvir aukvisar i söngnum.
Jóhann G. Jóhannsson kemur fram i fyrsta
skipti opinberlega um nokkurra ára bil og er
mikil eftirvænting rikjandi eftir frammistöðu
Jóhanns á siðasta ári, en hann var kosinn vin-
sæiasti lagasmiðurinn og vinsælasti söngvarinn.
Er ekki að efa, að þessir hljómleikar, verða
mesta framlag poppara á árinu til heilsubótar
tónlístarlifi ungs fólks.
24 VIKAN 10. TBL.