Vikan - 07.03.1974, Síða 28
Eg var
aldrei neinn
síldarkóngur
dæmi, vegna þess að þar er ég
kunnugastur, þá gefur hver ein-
asti stjórnmálaflokkur þar út sitt
málgagn og öll eiga þessi blöð við
mikil fjárhagsvandræði að striða.
tJtvarpsstöð á staðnum gæti flutt
öll sjónarmið og yrði miklu ódýr-
ari i rekstri en öll þessi blöð.
Landshlutaútvarpsstöðvar hefðu
lika þann kost, að þær yrðu hver
um sig tengiliður byggðarlagsins
við ríkisútvarpið.
— Fyrst þú ert farinn að tala
um framfarir á sviði fjölmiðlun-
ar, langar mig til að spyrja þig,
hvort þú teljir okkur eiga von á is-
lenzku litsjónvarpi i náinni fram-
tið?
— Ég tel það mikla skammsýni
af ráðamönnum, ef ákv.örðun um
aö hefja sjónvarpsútsendingar i
litum, verður ekki tekin innan
árs. Meðalending sjónvarpstækja
er ekki nema sjö til tiu ár, svo að
nú eru sjónvarpstækin, sem til
eru i landinu farin að ganga úr
sér, þó að aðeins sé miðað við þau
tæki, sem keypt voru eftir að Is-
lenzka sjónvarpið tók til starfa.
Margir þurfa þess vegna að fara
að endurnýja sjónvarpstæki sin
og eiga þess vegna heimtingu á að
vita, hvort og hvenær útsendingar
i litum hefjast. Ákvörðun um lit-
sjónvarp þarf að taka töluvert
löngu áður en útsendingar eiga að
hefjast, þvi að áhorfendur þurfa
sinn aðlögunartima og sjónvarpið
sjálft og starfsmenn þess einnig.
Kannski er það mikilvægasta þó
enn ótalið, Rikisútvarpið fær öll
aðflutningsgjöld af sjónvarps-
tækjum til starfser°: innar og
viðhalds. Dreifing. kerl útvarps
og sjónvarps er i miklum ólestri
og þess vegna þarf rikisútvarpið
að fá tekjur af innflutningi sjón-
varpstækja nokkru áður en það á
að hefja útsendingar i litum til
þess að geta staöið undir kostnað-
inum við að koma litsjónvarpi á,
en hann er að miklum hluta fólg-
inn i dreifingarkerfinu. Einnig er
vert að geta þess, að m'ikill hluti
erlends efnis, sem .sýnt er i sjón-
varpinu, er i litum og fyrir það er
greitt I samræmi við það.
— Þú ert búinn að starfa all-
lengi við fréttamennsku. Kemur
aldrei fyrir, að þú óskir þess, að
engar fréttir væru til?
— Þá veit ég ekki, hvað ég ætti
að gera. Auðvitað óska ég og
flestir fréttamenn býst ég við, —
þess að þurfa ekki að skrifa nei-
kvæðar fréttir — fréttir af þvi,
sem aflaga fer i þjóðfélaginu og
lifinu. En sem betur fer held ég,
að slikar fréttir hafi yfirleitt verið
i minnihluta hjá islenzkum fjöl-
Þessi mynd var tekin á fyrstu dögum sjónvarpsins af þeim Ólafi
Ragnarssyni og Asthildi Sigurðardóttur, þar sem þau voru að vinna aö
undirbúningi fréttatima.
Ólafur Ragnarsson, Sigurður Sverrir Pálsson og Marinó ölafsson í
kvikmyndaleiðangri viö lsafjarðardjúp á vegum sjónvarpsins.
i
28 VIKAN 10. TBL.