Vikan - 09.10.1975, Side 8
ERTU ORUCCÍUR)
I UMREROINNI ?
Nýtt próf til að mæla
viObragðsflýti
Allir þekkja þetta: Mikil um-
ferð er á aðalbraut ogfallt i einu
hemlar næsti ökumaður á undan.
Og þetta: Götuvitinn skiptir á
grænt og allir ökumenn aka af
stað — allt i einu hleypur maður
yfir gatnamótin.
Þetta tvennt og margt fleira
hendir næstum hvern ökumann
daglega. Sé ökumaðurinn með
allan hugann við umferðina og
nægilega viðbragðsfljótur, tekst
honum að koma i veg fyrir
árekstur og slys. Sé hann hins
vegar „sofandi”, er hætta á ferð-
um.
Joseph Block, sálfræðingur i
New York, hefur samið próf, ,,þar
sem unnt er að greina milli
athugulla og miður athugulla
ökumanna”. Rannsóknir leiddu i
ljós, að þetta próf reyndist mark-
tækt við að greina milli þeirra,
sem hætti við að lenda i
umferðaróhöppum, og hinna, sem
voru öruggari i umferðinni.
Prófið er einfalt. Allt, sem til
þarf, er tafla með tölunum frá 10
upp i 59 og úr með sekúnduvisi.
Verkefnið er aðeins eitt: Að finna
tölurnar á töflunni og nefna þær i
réttri röð — byrja á 10 og enda á
59. Timavörður fylgist með tim-
anum, sem það tekur þann, sem
prófaður er, að finna hverja tölu.
Dæmi: Frá 37 til 38 — 14
sekúndur.
Block telur þann vera góðan
ökumann, sem finnur tölurnar á
bilinu frá 10 upp i 20 sekúndur.
beim er einnig óhætt, sem eru að-
eins fljótari og nokkru lengur —
allt upp i minútu — að finna
hverja tölu.
Þeir, sem seinir eru — ef það
tekur þá meira en minútu að
finna hverja tölu — eru óliklegir
til að vera nógu viðbragðsfljótir,
þegar á riður i umferðinni. Hinir,
sem eru afar fljótir, og hlaupa á
örskotstundu yfir allar tölurnar,
ofmeta gjarnan viðbragðsflýti
sinn og ættu þvi að athuga sinn
gang. Block getur þess sérstak-
lega, að þeir, „seinu” hafi gjarn-
an numið staðar við tölurnar til
þess að vera vissir i sinni sök.
t prófinu á að lesa tölurnar frá 10
til 59 i réttri töiuröð og nefna þær.
Æskilegur timi til að finna hverja
tölu er frá 10 upp i 20 sekúndur.
8 VIKAN 41. TBL.