Vikan - 09.10.1975, Page 10
i
Flýttu þér að Ijúka gangstéttinni. Við þurfum að fara að rífa
hana upp aftur til að gera við rafmagnið! /
j.
Heidi er ekki lengur viss um, hvort hún leggur bartialæknis
fræði fyrir sig.
HEIDI
SCHULLER
Stulkan, sem sór ólympíueiðinn í Miinchen 1972, var um skeið
íþróttafréttaritari, en starfsbræðrum hennar þótti óviðeigandi, að
kona fengist við slíkt starf, svo hún gafst upp við fréttamennskuna.
Nú gefur hún sig að læknisfræðinni einni.
Nýlega lauk Heidi Sehúller,
stúlkan, sem sór olympíueiðinn
á Ólympíuleikjunum í Múnchen
árið 1972, almennu læknisfræði-
prófi. Heidi er í hópi þeirra
yngstu, sem lokið hafa læknis-
fræðiprófi í V-Þýskalandi, en það
hafði ekki slæm áhrif á einkunnir
hennar, því að í þrettán greinum
hlaut hún hæstu einkunn.
Heidi sver ólympíueiðinn i Múnc-
hen árið 1972.
Heidi vakti fyrst verulega at-
hygli almennings, þegar hún var
valin úr hópi v-þýsku keppend-
anna á Ólympíuleikjunum til þess
að sverja ólympíueiðinn. Pó hafði
hún getið sér gott orð fyrir árang-
ur sinn í íþróttum áður, og á
Ólympíuleikjunum komst hún í
úrslit í langstökki og grindahlaupi.
Nú hefur Heidi hins vegar sagt
skilið við íþróttirnar.
Um tíma annaðist Heidi íþrótta-
fréttirnar í þýsku sjónvarpi, en
kollegar hennar sumir voru því
andvígir, að kona annaðist íþrótta-
fréttir. Þó varð Heidi vinsæll
sjónvarpsmaður, en vegna and-
stöðu samstarfsmanna sinna hætti
hún starfinu — þótti það ekkí
þess virði að berjast fyrir það. Um
þetta leyti sagði Heidi: „Kona
fær aldrei jöfn tækifæri og karl-
menn — og ekki síður kynsystra
sinna.“
Heidi er ákveðin í að leggja
stund á einhverja sérgrein innan
læknisfræðinnar. Um tíma var
hún ákveðin í að verða barna-
læknir, en hún er ekki lengur
viss um, hvort hún velur þá grein.
„Ábyrgðin, sem þvf fylgir, er svo
mikil." segir hún.
10 VIKAN 41.TBL.