Vikan - 09.10.1975, Blaðsíða 35
sem helst er að gerast hjá þeim
þessa dagana er, að þeir eru að
vinna í stúdiói við gerð sjón-
varpsauglýsinga fyrir nokkra að-
ila, m.a. Dagblaðið og Karna-
bse. Þá er þetta yenjulega dansi-
ballaspilirí og svo auðvitað æft
af fullum krafti á daginn.
En nú voru rótararnir búnir
að stilla upp, svo hægt var að
fara að tjakka á sándinu og sið-
an að spila af fullum krafti. Þeir
pelicanar voru svo elskulegir að
setja upp byrjunarprógramm
fyrir Babbl, sem eingöngu var
með frumsömdum lögum, og
nú skulum við sjá:
Fyrsta lagið, sem þeir lofuðu
okkur að heyra, heitír Músastig-
inn og er eftir Björgvin G. Þetta
er mjög fallegt og gott instru-
mental hjá Bjögga, og hann fer
á kostum á hljómborðunum, en
þau eru þrjú talsins, moog,
rapsodi og píanó. Geiri tromm-
ari er alltaf að verða betri og
betri, jaðrar við jassánd hjá hon-
um i þessum frasa.
Þá var Ómar Óskars næstur
á ferðinni ,með lag, sem heitir
So Hard To Tell The Truth.
Ómar er heldur betur að sækja
sig sem sólóleikari á gítarinn,
kom með skemmtilega kafla.
Bjöggi góður að vanda og nýtur
sín vel í þessu lagi. Mig skortir
bókstaflega orð yfir hann Geira,
ég veit bara ekki, hvernig þetta
endar með drenginn þann. Mér
fannst áberandi i þessu lagi,
hvað raddanirnar eru farnar að
lagast mikið hjá þeim, komin
meiri fjölbreytni. Þetta er fall-
egt og hugljúft lag, sem Herbert
syngur vel, samt finnst mér enn-
þá vanta einhverja dýpt í rödd-
ina hjá honum i þessu lagi.
Þá var röðin komin að Jóni
Ólafssyni, bassaleikara með lag-
ið sitt I Feel A Change. Ég er
reyndar áður búinn að segja álit
mit.t á þessu lagi hér i þættinum
og hef litlu við það að bæta.
Enn finnst mér eins og vanti
einhverja dýpt í sönginn, get
bara ekki að því gert. Það er
kannski vissum erfiðleikum háð
að vera með þetta lag, sem var
á plötunni og þá við aðrar að-
stæður. Samt er ég ekki sáttur
við þetta lag í núverandi flutn-
ingi miðað við plötuna.
Næsta lag, sem þeir pelicanar
spiluðu fyrir Babbl, var eftir
Ómar óskars og heitir Didn't I.
Þarna kemur Ómar með lag,
sem er gersneytt þessu margum-
talaða pelicansándi, rólegt og
fallegt lag. Herbert nýtur sín
til fullnustu, þetta er sannarlega
lag við hans hæfi. Ég er ekki
í nokkrum vafa um, að þeir eiga
tvímælalaust erindi út fyrir land-
steinana. Bjöggi skemmtilegur
og hress á rapsodíið og Jonni
þéttur að vanda á bassann. Al-
veg gullfallegt lag hjá þeim
köppum.
Þá var næst lag eftirjón ólafs-
son, Simple Song. Hressilegt
og þrumandi rokklag. Jón er
heldur betur að hressa sig í laga-
smíðinni og er ekki ónýtt fyrir
hljómsveitina að hafa svona
lagasmiði á sínum snærum. Ef
mér skjátlast ekki, þá er þarna
á ferðinni reggý sánd hjá þeim.
Og enn skortir mig orð yfir hann
Geira á trommunum. Herbert
syngur þessa þrumu alveg stór-
vel. Gott hjá þeim gaurum.
Þá var það Bjöggi G. með eitt
lagið enn. Einhvernveginn virð-
ist mér Björgvin njóta sín betur
á grtar, fái meira útúr því að
spila á hann, heldur en hljóm-
borðið. Samt kann ég nú alltaf
betur við hann á píanói eða
moog. Þetta er þrælgott lag
hjá Bjögga, og ég tel hann hik-
laust besta lagasmið hljómsveit-
arinnar.
Síðasta lagið, sem Babbl fékk
að heyra hjá þeim k'umpánum,
er eftir ómar Óskarsson. Það
heitir Herman, Jonesy And
Lizzy. Þarna fékk Babbl að
heyra þetta vlðfræga ekta peli-
cansánd. Meira að segja milli-
kaflinn I laginu, þar sem þeir
Ómar og Bjöggi spiluðu sóló
saman, allt með Pelican sándi.
Herbert syngur þetta lag af
stakri prýði, og Jonni er pott-
þéttur bassaleikari. Einhvern-
veginn finnst mér settið hans
Geira alltaf vera að stækka, en
það er kannski einhver ofskynj-
un. Sem sé lag I ekta pelican
stíl.
Þá var Babbl ekki til setuhnar
boðið lengur, því ætlunin var að
kíkja aðeins við á Hótel Sögu
og skoða menningarstarfsemina,
sem þeir Demants kappar reka
þar á sunnudagskvöldum. Babbl
þakkar Pelican fyrir ánægjulega
kvöldstund og árnar þeim heilla
með nýtt prógramm.
Þá lá leið Babbls og fylginauta
á Hótel Sögu. Þar hefur undan-
farin sunnudagskvöld verið rek-
in allmerk menningarstarfsemi
af hálfu umboðsfyrirtækisins
Demant.
Þetta kvöld var boðið uppá
tvær hljómsveitir, Dögg og
Change, að ógleymdum hinum
frábæru Hálfbræðrum.
Babbl smaug lipurlega inn
ásamt konunni sinni og ljós-
myndaranum, honum Hall-
grími. Er við gengum x salinn,
voru þeir gaurar í Dögg I óða
önn að fremja músík. Eftir
nokkra leit voru góðviljaðir koll-
egar svo elskulegir að bjóða
okkur sæti við borð hjá sér. Með-
al annarra var við borðið mesta
kyntákn poppbransans I dag:
Áslákur Eyrnalangur (Gísli
Sveinn Loftsson stórplötusnúð-
ur) og fagnaði hann Babbli og
hans liði innilega.
Ekki náðum við að hlusta á
nema tvö-þrjú lög með Dögg-
inni, áður en þeir hurfu af svið-
inu, en satt að segja kvaddi ég
þá félaga ekki með neinum
söknuði. Nóg um það, við ger-
um þeim betri skil hér í þætt-
inum seinna.
Eftir nokkurt hlé voru hinir
frábæru Hálfbræður kynntir og
tróðu svo upp við mikinn fögn-
uð og kátínu viðstaddra. Þess-
ir bræður samanstanda af fjórum
ungum og hressum mönnum,
og einhver fræddi mig á því,
að þeir kumpánar væru allir I
stjórn einhvers nemendafélags I
einum af menntaskólum borgar-
innar (huggulegur skóli það).
Hvað um það, þeir kappar hlutu
afburðagóðar viðtökur fólks, og
menn veltust um af hlátri. Þeir
nota svipað system og þeir Halli
& Laddi, nema íslenskt efni er
svo til allsráðandi hjá þeim og
er það vel. Mesta hrifningu
vakti s’á þeirra, sem er stærstur
og þreknastur, er hann llkti
eftir Engilbert Jensen á háu nót-
unum. Frábært hjá þeim gaur-
um. Við fáum svo að sjá við-
tal við þá Hálfbræður einhvern-
tíma á næstunni.
Næstir voru þeir kumpánar I
Change, sólbrúnir og hressileg-
ir eftir sumarfríið á Kanarleyj-
um. Þeir hafa aðeins stutt stopp
hér heima að þessu sinni og
munu fara til Englands upp úr
mánaðamótunum næstu.
Sem sagt hressilegt kvöld hjá
þeim Demants gaurum. Sumir
voru að kvarta yfír þvl, að þetta
væri dýrt spaug, kostaði sex
hundruð krónur inn. Það mætti
kannski benda mönnum á, að
ef þeir bregða sér á sveitaball,
er eins gott að þeir hafi meira
I pyngjunni. Algengt er nú
orðið, að miði á sveitaball kosti
allt að 1.500,- krónur. Þá cr
eftir að reikna rútuferð, ef menn
eru ekki akandi á sínum einka-
bíl.
Nóg um þetta að sinni.
Babbl vill aðeins lýsa yfír ánægju
sinni með þessa menningarstarf-
semi Demant og hvetja þá
kappa til frekari dáða á þessu
sviði I framtíðinni.
*
ÍVAR ORÐSPAKIJR.
F.g u-k fyrir' orðatihækið: Að fara xil deildar.
Þeita orðatiltæki er mjög niikið notað al popp-
tirttnt og kemur t stað þcss að segia. ettts
og sagt var t mínu ungdæmi. að sota hjá
kvenmamti. Nú er bara sagi, að menti séu
að fara til deildar með píu, ef þeir popparar
hyggja á slíkt. Næst mun ég taka fyrir
orðið Bömmer. Veriðisæl.
HálfbrœÖur
41. TBL. VIKAN 35