Vikan

Issue

Vikan - 18.12.1975, Page 3

Vikan - 18.12.1975, Page 3
*v ÖLJÚLASVEINNINN er ákaflega einfaldur að allri gerð. Líkami hans er einfaldlega ölflaska, og höfuðið er hneta. Eyrun og nefið eru úr korktappa, skeggið, húfan og jakkinn úr filti. Öljólasveinn- inn á auðvitað best heima á jóla- ölflöskunum. RA FMA GNSJÓLA S VEINNINN er úr pappasívalningi innan úr salern- ispappírsrúllu eða öðrum álíka. Hendur og gætur eru úr rafmagns- vír, en klæðin og skeggið úr filti. í hendur og fætur má eins nota pípuhreinsara, en þá skiptir jóla- sveinninn að sjálfsögðu um nafn og heitir eftir það pípujólasveinn. SERVÍETTUJÖLAS VEINNINN er laglegasti piltur. Hann er alltaf svolítið hissa og spyrjandi á svip- inn, en það stafar líklega af því, hve ungur hann er að árum. Hann er nefnilega ekki hættur að nota smekk eins og þið sjáið. Smekkurinn Og húfan eru húin til úr servíettum, sem brotnar eru á baki servíettujólasveinsins og hnakka. Nefið er korktappi, en augun og rauðu kinnarnar eru mál- aðar á pappasívalninginn (úr sal- ernispappírsrúllu eða eldhúspapp- írsrúllu), sem er skrokkur hans og höfuð. SKOGARJOLASVEINNINN er fín- astur með sig þeirra félaga og svo lírið hégómlegur, en besta skinn fyrir það. Hann er úr tveimur grenikönglum, sem límdir eru sam- an. Skeggið og augabrúnirnar eru úr skinnpjötlum, handleggir og fótleggir úr pípuhreinsurum, og hann er með fallega brúna hanska á höndunum. Það eru þó ekki nema allra flottustu skógarjóla- sveinarnir, sem heimta hanska. Fæturnir eru úr tálgaðri grenigrein og nefið er hneta. PO TTAJÓLA S VEINNINN er úr tveimur blómsturpottum, sem snúa botnum saman og eru reyndar límdir saman á botnunum, þegar um vandaðan pottajólasvein er að ræða. Á efri pottinn er límt bóm- ullarskegg og korktappanef, og máluð andlit. Hattur pottajóla- sveinsins er skreyttur með greni- greinum. KRAMARHÚSSJÚLASVEINNINN er ákaflega auðvelt að búa til, og hann er líka svo skapgóður, að hann hlýtur að vera öllum til ánægju. Skegg, augu og munnur eru máluð á hann, en nefið er pappírssnepill, sem límdur er á. Topphúfan hans er til mikillar prýði. Þennan jólasvein getur hvert barn búið fil.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.