Vikan - 18.12.1975, Blaðsíða 30
.WJ’stunftræti 14
Póstsendum
honum fimm þúsund krónur, full-
viss þess, aö það fyrsta, sem Jak-
ob, þessi strangheiðarlegi maður,
myndi gera, væri að greiða skuld
sfna við húsbóndann. Ég verð
auðvitað að geta mér þessa til,
þvi Jakob vill ekki ljóstra upp,
hvernig hann fékk peningana. Og
i sannleika sagt — hefði nokkur
trúað honum?
— Og hvaða ástæða var til þess
aö láta húsið brenna ofan af okkur
i nótt? Hinn raunverulegi morð-
ingi var ekki i neinni hættu... og
þó . Hann hafði nefnilega á tilfinn-
ingunni að við, þessar tvær gömlu
kerlingar værum aö snuðra i
bókaherberginu og værum reiðu-
búnar að láta lögregluna vita, ef
við yröum einhvers visari. Þér
sáuð mig taka þráðinn upp af
gólfinu i bókaherberginu, Bern-
hardt lögfræðingur, og þér urðuð
náfölur, þegar ég spurði, hvort
Jakob hefði eignast velgerðar-
mann.
— Þér myrtuð Ravn, ófétið yð-
ar, og þær fimm þúsund krónur,
sem þér fórnuðuð, til að leiða
sektarlamb fram i dagsljósiö,
voru ekki nema litið brot af þvi,
sem þér hafið svindlað og dregið
að yður á kostnað húsbóndans.
Bernhardt er staðinn upp úr
stól sinum valdsmannslegur svip-
ur hans er horfinn og andlitiö orð-
ið náhvitt.
— Þegar við vorum farin að
hátta, heldur hún áfram reiði-
lega, kveiktuð þér bál beint undir
herberginu mínu, svo að hugsan-
leg sönnunartákn og grunsamleg-
ir pappirar brynnu með okkur
hinum. Og þér voruð skipaður
verjandi Jakobs!
V erzlunarmaimaf élag
Reykjavíkur
óskar öllum félögum sinum gleðilegra jóla
með þökk fyrir liðna árið.
Henni gefst ekki næði, til að
halda áfram. Bernhardt er lagður
af stað fram að dyrum. Bruna-
verðirnir tveir, sem setið hafa
þögulir og fylgst með ræðu henn-
ar, sjá hvað verða vill og hafa
snör handtök við að leiða lögfræð-
inginn aftur til sætis.
Þau standa skjálfandi úti i
húsagarðinum, fyrir framan lög-
reglubilinn, en i honum situr lög-
fræðingurinn milli brunavarð-
anna tveggja. Fyrsti eiginlegi
jólasnjórinn fellur til jarðar, og
sviðnu bjálkana i álmunni, sem
uppi stendur, ber tignarlega við
himin.
— Ég er stórhrifinn, segir Mad-
sen enn einu sinni, áður en hánn
setur bilinn i gang.
— Munið nú að sleppa Jakobi
út, um leið og þér komið i fangels-
iö, segir ungfrú Abildgrf áminn-
andi. — Og berið honum kveðju
okkar og segið, að honum sé vel-
komið að dveljast hjá okkur á að-
fangadagskvöld ef hann hafi ekk-
ert betra að gera.
— Það held ég að hann geti
varla haft, segir Madsen og bros-
ir breitt. — Gleðileg jól, minar
kæru... og takk fyrir hjálpina.
— Sömuleiðis, sömuleiðis,
svara ungfrúrnar tvær og flýta
sér inn i hlýjuna til að taka til.
KAUPFELAG
BORGFIRÐINGA
BORGARNESI
SENDIR BEZTU JÓLA- OG
NÝÁRSÓSKIR TIL STARFSFÓLKS
FÉLAGSMANNA OG
ALLRA VIÐSKIPTAMANNA
KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA
30 VIKAN 51. TBL.