Vikan - 18.12.1975, Blaðsíða 43
-m.
RVÞMI
James Last við upptöku;
með gullplötu; með kven-
aðdáanda; í bí/ á hljóm-
leikaferða/agi; í fríi; þar
sem hljóðfæraleikarar
hans og fjölskyldur þeirra
voru gestir hans.
Sagt frá
partíkóTiginum
James Last.
HONDJH ■
MILLJONUM
Hann hefur verið sæmdur meira
en hundrað „gullplötum", hann
fer í hljómleikaferðalög um allan
heiminn, og hvarvetna er honum
fagnað. James Last, þessi skeggj
aði partíkóngur frá Bremen, er
einn vinsælasti hljómsveitarstjóri,
útsetjari og tónskáld í heiminum.
Ferill hans er einn sá athyglisverð-
asti í gervallri tónlistarsögunni.
Hljómplötur hans eru eins frægar
og tónleikarnir, sem hann og
hljómsveit hans hafa haldið í
Norður- og Suður-Ameríku, Ástr-
alíu, Sovétríkjunum, Kanada og
austurlöndum. James Last leikur
tónlist fyrir milljónir manna á
hverjum degi.
Hljómurinn er vörumerki hans,
stíll hans hrífur alla, og takturinn
er slíkur, að alla langar til að
stappa og klappa með — fjörið
og bjartsýnin einkenna tónlistar-
flutning James Last. Og tónlist
hans nær til allra, hvar sem er í
heiminum. James Last er snill-
ingur í að útsetja næstum hvaða
tónlist sem er fyrir hljómsveit
sína, svo hún fái hinn sérstaka
jameslastblæ, hvort sem um er
að ræða músík eftir Bach, Bítlana
eða einfalt þjóðlag. Last var eitt
sinn spurður, hvernig hann hefði
uppgötvað þennan sérstaka hljóm
og þá svaraði hann, ,,að hann
byggðist fyrst og fremst á tilfinn-
ingunni".
Hljómsveit James Last varð
fyrst fræg af hljómplötum, og
hann leggur mikla .áherslu á, að
nákvæmlega sami hljómur náist á
hljómleikunum og á plötunum.
Last heldur reglulega fundi með
hljóðfæraleikurum sínum, þar sem
rætt er um tónlistina og hvernig
hana skuli flytja. Hann segir meQ
nokkru stolti: ,,Ég hef á að skipa
bestu stórhljómsveit I heimi, hvað
viðkemur heiðarleika og einlægni
meðlimanna hvers til annars, and-
anum í hljómsveitinni og trúnni
á það, sem við erum að gera."
Hljómleikar hljómsveitar James
Last krefjast mikils undirbúnings,
einkum tæknilegs, en áheyrendur
geta líka treyst því, að þeir munu
heyra nákvæmlega sömu tónlist-
ina og á hljómplötunum.
Last semur raunar ekki tónlist
aðeins fyrir hljómsveit sína, held-
ur fjölmarga aðra. Meðal þekktra
laga eftir hann má nefna söng
Elvis Presleys Fool, Irgendwo in
fremden Strassen, sem Karel Gott
hefur gert frægt, Games that Lov-
ers play, sem Nino Rossi syngur,
og kynningarlag Radio Luxem-
burg. Þegar Last hvílir sig frá
hljómsveitarstjórninni og tón-
samningunni, dvelst hann á heim-
James Last ber þess
greinileg merki, að hann
er hamingjusamur maður,
og hið sama er að segja
um tónlist hans, hvort
sem hún er flutt á tónleik-
um eða af hljómplötum.
Hverjir hljómleikar krefj-
ast mikils tæknilegs undir-
búnings.
ili sínu I Hamborg ásamt Waltraud
konu sinni og börnunum Kather-
ine og Ronald.
Last fór snemma að iðka tón-
listina. Hann fékk einkakennslu
í píanóleik mjög ungur, og fjórtán
ára hóf hann nám í bassaleik í
tónlistarskólanum í Bremen. Hann
þótti svo efnilegur bassaleikari, að
hann hóf að leika með útvarps-
hljómsveitinni í Bremen sautján
ára að aldri. Árið 1955 hóf hann
að leika með hljómsveit norður-
þýska útvarpsins í Hamborg, og
fyrir hana gerði hann fyrstu út-
setningar sínar.
James Last og hljómsveit hans
urðu þekkt strax fyrir fyrstu hljóm-
plötur sínar, bæði í Þýskalandi
og utan þess. Árið 1968 var
hljómsveit hans kosin „besta
hljómsveit ársins". Og árið eftir
fór hann í sína fyrstu hljómleika-
ferð — um Kanada.
Margir hafa reynt að líkja eftir
James Last, en engum hefur tek-
ist að ná eins langt og hann, enda
er James Last þekktur og dáður
frá Montreal til Mannheim, frá
Melbourne til Montevideo og frá
Manchester til Madrid. Orðið
„happy" kemur fyrir í mörgum
heitum á hljómplötum hans, og
það er á margan hátt einkenn-
andi fyrir James Last. „Ég verð
hamingjusamur af að sjá ham-
ingjusöm og ánægð andlit kring-
um mig," segir hann.