Vikan - 18.12.1975, Blaðsíða 47
aftur húsfrú í Selton Hall. En und-
angengnar mínútur höfðu kennt
henni að vera tortryggin, og hún
vissi, að langur tími myndi líða
þangað til hún treysti karlmanni á
ný. Hvernig gat hún verið viss um,
að I dögun þegar hann vseri búinn
að fullnægja þeirri girnd, sem jafn-
vel hún, þótt ung vaeri, gat lesið
út úr nöktu, áfergjulegu og þöndu
andliti mannsins, hvernig gat hún
Verið viss um, að hann myndi efna
loforð sitt og láta af hendi þann auð,
sem hann sagðist þarfnast svo mjög?
Fyrir augnabliki hafði hann lofað því
að snerta hana ekki, ef hún aðeins
færi á brott með honum, og nú
dirfðist hann að fara fram á, að þessi
niðurlxgjandi skuld yrði greidd!
Öllu þessu skaut upp I huga
hennar, er Jason nálgaðist hana.
Hann teygði sig I áttina til hennar
og ætlaði að snerta hana, en Mari-
anne hörfaði ósjálfrátt aftur á bak.
„Neil’’ öskraði hún. „Takið allt,
sem til er, þar sem þér lítið svo á,
að það sé yðar, en þér skuluð ekki
snerta mig. Hvorki þér né nokkur
annar! I dögun á morgun getið þér
rekið okkur héðan, Cranmere lávarð
og mig, en þangað til lít ég á rúm-
ið sem mitt eigið.”
Framréttar hendurnar féllu að síð-
um hans. Jason mannaði sig upp,
en hafði mikið fyrir þvl að ná aftur
stjórn á sjálfum sér. Marianne sá
mjóslegið andlitið, sem fyrir andar-
taki hafði verið ástrlðufullt, stirðna
og verða að eins konar steingrímu,
og fyrirlitningin leyndi sér ekki.
Hann yppti öxlum.
„Þér eruð kjáni, lafði Cranmere.
Þegar allt kemur til alls, þá eruð þér
og hinn tigni eiginmaður yðar tigin
hjón. Ég óska yður alls hins besta.
Ég hygg þó, að ekki muni líða á
löngu þangað til þér uppgötvið,
hvernig það er að lifa I örbirgð með
Þú ert heppinn á meðan þú þarft ekki annað en þíða
eftir að hún komi sér í fötin — biddu þangað til þú
þarft að borga þau!
Ég bý hérna á hæðinni fyrir ofan. Gæti ég fengið
stöngina mína aftur?
Vatnsbera-
merkið
Vogar-
merkift
24. sept. —
23. okt.
Nú fara þér að gefast
tækifæri til að sameina
vinnu og leik. Legðu
þig fram við að túlka
hugsanir þínar og fyr-
irætlanir þannig að
þær verði aðgengilegar
fyrir aðra.
Dreka-
merkift
24. okt. —
23. nóv.
Þú virðist eiga I mikl-
um erfiðleikum með
að einbeita þér að
ákveðnu verki. Það
næst aldrei umtals-
verður árangur með
því að flökta úr einu
I annað. Sýndu meiri
hörku I athöfnum.
Bogmanns-
merkift
23. nóv. —
21. des.
Hlustaðu á rödd sam-
viskunnar, ef þú ert
I einhverjum vafa um
réttmæti aðgerða.
Gættu þln á að loka
ekki augunum fyrir
staðreyndum, það
kemur þér I koll síðar.
Sýndu meiri nærgxtni
I samskiptum við þlna
nánustu.
Geitar-
merkíft
22. des. —
20. jan.
Fjárhagsáhyggjur virð-
ast draga úr þér allan
þrótt. Gefðu þér tóm
til umhugsunar, þá
munu erfiðleikarnir
leysast llkt og af sjálfu
sér. Taktu ekki áhyggj
urnar með þér, þegar
þú vilt hvllast.
21. jan. —
19. febr.
Með meiri skipulagn-
ingu I athöfnum ættir
þú að ná talsvert meiri
árangri en nú er.
Blandaðu ekki tilfinn-
ingum inn I allar þln-
ar athafnir. Jákvætt
viðhorf gæti hjálpað
þér töluvert.
Fiska-
merkift
20. febr. —
20. marz
Reyndu að leysa öll
þln vandamál með því
að fara samningaleið-
ina. Jólaskapið er
með betra móti þessi
jól, eyðilegðu ekki það
sem þegar hefur náðst
með augnabliks óþol-
inmæði.
51.TBL. VIKAN 47