Vikan

Tölublað

Vikan - 18.12.1975, Blaðsíða 13

Vikan - 18.12.1975, Blaðsíða 13
verða áskrifendur að Viku-blaðinu. Ég þekki marga, sem alltaf eru að reyna að verða áskrifendur en fá aldrei nein blöð send. T.d. ég sjálf er margbúin að skrifa og hringja í Vikuna og biðja um að verða áskrifandi. Ég fékk eftir langan tíma tvær sendingar, fyrri gamalt blað, síðari tvö eins blöð. Mér finnst þetta fjandi hart og ómerkilegt. Það virðist allt vera í órciðu og vitleysu hjá ykkur, ekki rétt? Ég er reglulega móðguð og ég veit um þó nokkuð marga, sem hafa beðið um það sama og aldrei fengið neitt blað sent. Þarf ekki að fara að gera heilaþvott á þessum skvísum og gxjum, sem vinna þarna hjá ykkur? Ef ég væri vinnandi þarna, þá myndi ég bara segja hreint út við fólk, að ég nennti bara ekki að hafa fyrir að senda þvi blaðið. Það þýðir víst lítið fyrir blessaða Vikuna að ráð- leggja fólki að gerast áskrifendur að öðrum blöðum t.d. Samúel. Ég ætlaði að fara að hafa það reglulega þægilegt heima, og fá blaðið sent upp i hendurnar á mér, en þvi miður virðist það ekki hægt (frá ykkar hendi). Ykkur er óhætt að spara ykkur þessa áskriftarauglýs- ingu. Ætli það þýði nokkuð fyrir mig að biðja ykkur um að lesa úr minni fögru skrift? Og hvernig samband er milli nautskonu og fiskamanns? Reyndu nú Póstur góður, að vera ekki svona skrambi grobbinn og ánægður með sjálfan þig. Má ég spyrja: Hver eru þin vandamál, eða hefur þú engin vandamál? Ein spurning enn: Er hægt fyrir stúlku (svona á kvennaárinu) að biðja strák að giftast sér, ef hrifn- ing er fyrir hendi. Stjörnukveðjur frá einni harð- spældri. Okkur hér á Vikunni þykir leitt að þú skulir hafa lent t erfiðleikum með að gerast áskrifandi. Við kunnum enga skýringu á þessu, en höfum þó tölvuna okkar sterklega grunaða. Hún er fremur ný hér í starfsliðinu, jafnvel yngst, og hefur verið að fremja ýmis barna- brek öðru hverju. Fyrir nokkru tók. hún uþþ á þeim ósóma, ef einhver vildi hætta að vera áskrif andi, að taka áskriftina af mann- inum í næstu línu fyrir neðan. Hins vegar fékk sá, sem hætta vildi, blaðið sitt áfram eins og ekkert hefði t skorist. Skýringin í þínu tilfelli gæti verið eitthvað svipuð. Skrifaðu bréf til okkar þar sem þú getur um nafn, heimilis- fang og frá hvaða tíma þú vilt ger- ast áskrifandi. Sendu okkur bréfið í ábyrgðarþósti og þá ættir þú að verða orðin einn af okkar föstu áskrifendum. Nafnið þitt finnst ] hér hvergi á áskriftarlista svo ein- hver misskilningur hlýtur að hafa átt sér stað, hvort sem það er þín sök eða okkar. Þetta með heila- þvottinn á starfsliðinu tel ég mjög I vafasama uþþástungu. En þér að segja hefur tölvan okkar verið send í ,,tölvuheilaþvott" eftir nokkur af \ hennar alvarlegustu bernskubrek- um og hefur komið hress og end- urnærð til baka. Nú virðist hún sem betur fer, vaxin upp úr þessum brekum sínum og jafnfús og aðnr starfsmenn Vikunnar að vinna les- endum blaðsins fljótt og vel. Or skriftinni les Pðsturinn fljót- færni, glaðlyndi og hrekkvísi. Nautskonu er ráðlagt að láta fiskamanninn í friði með dag- drauma sína annað veifið, þá mun hamingjan öruggari til lengdar. Að síðustu færir þú fram harð- vítuga gagnrýni á Póstinn. Samt virðist þú ekki telja hann með t þeim hðpi starfsliðsins, sem að þínu áliti þarf á heilaþvotti að halda og ef til vill ætti að færa fram þakkir fyrir það? Pósturinn hefur alveg nóg að gera við að leysa vandamál lesenda Vikunnar, þðtt hann leyfi sér ekki þann munað að \ hafa persónuleg vandamál sjálfur. 1 huga Póstsins ganga lesendur Vik- unnarfyrir öllu. Pósturinn telur stúlku alveg óhætt að biðja sér manns, jafnvel þðtt ekki sé kvennaár. Árangur bónorðsins hlýtur samt að fara eftir því hvort hrifning er fyrir hendi á báða vegu. Þakka þér svo fyrir bréfið, þótt harðort hafi verið. Vonandi hefur mitt vingjarnlega svar mildað hug þinn í okkar garð. Pennavinir. Mr. og Mrs. M Douglas-Stuart, Cladwell House, 3 Ne/son Road, Hastings, E. Sussex, England óska eftir pennavinum. Hann er 34 ára, en hún er 29 ára. Þau hafa mörg áhugamál. Öllum bréfum svarað. Mrs. M. Taylor, 221 Cowley Drive, Woodingdean, Brighton BN. 2 - 6TG, Sussex, England óskar eftir bréfaskiptum við íslendinga. Hún svararöllum bréfum. Mrs. Bess Doneyhoo, 2110 Mock- ingbird Lane, Garland, Texas 73042, U.S.A. óskar eftir penna- vinum af báðum kynjum. Hún skrifar skemmtileg bréf. BIPREIÐA EIGEÍIDUIt! Látiö okkur framkvæma VETRARSTILLINGUNA á biln- Eftirfarandi atriði eru innifalin i vetrarstiliingu: 1. Vélarstiliing. 2. Skipt um kerti og platinur. 2. IVlæld þjappa. 4. Athuguö og stillt viftureim. 5. Athuguö eöa skipt um loftsiu. 6. Stilltur blöndungur og kveikja. 7. Mældur startari, hleösia og geymir. 8. Mæid nýtni á bensini. 9. Mældir kertaþræöir. 10. Stilltir ventlar. 11. Hreinsuö geymasambönd. 12. llreinsaöur öndunarventiil. 13. Hreinsuö, eöa skipt um bensinsíu^ 14. Þrýstiprófað vatnskerfi. 15. Stillt kúpling. 16. öll ljós athuguð. , 17. Stillt Ijós. ^ 18. Athugaöur stýrisgangur. VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI + VARAHLUTIR EFTIR ÞÖRFUM: AN VENTLASTILLINGAR: MEÐ VENTLASTILLINGU: 4cyl.kr. 5.900.- 4 cyl. kr. 7.100.- 6 cyl. kr. 6.200.- 6 cyl. kr. 7.500,- 8 cyl. kr. 6.900.- 8 cyl. kr. 8.700,- Vélastilling sf. Stilli- og vélaverkstæði Auðbrekku 51 K. simi 43140 51.TBL. VIKAN 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.