Vikan

Útgáva

Vikan - 18.12.1975, Síða 18

Vikan - 18.12.1975, Síða 18
hundrað og tuttugu og hundtað og þrjátíu þúsund krónur. Oddný: Og þeir, sem kæra sig um morgunverð, borga hundrað krónur fyrir hann í hvert sinn. __Er aðstaða tilþvotta? Bryndís: Nei, á vistinni er engin síík aðstaða fyrir hendi. Páll: Maður verður bara að sjá sér út góðhjartaða konu úti í bæ. Þeg- ar ég kom hingað fyrst, þekkti ég ekki kjaft, en maður varð að reyna að bjarga sér, svo ég réðist bara á næstu konu, og það gekk ágætlega. Jón Reynir: Annars er gert ráð fyrir því það komi þvottahús hérna á vistinni í framtíðinni. __ Hvernig er rcestingu háttað á vistinni? Jðn Reynir: Við ryksugum öll teppi hér, og það er gert annan hvern dag, en ræstingakonur sjá um þrif á salcrnum, stigum og göngum, þarsem ekki eru teppi. __Og þetta erþegnskylduvinna? Jón Reynir: Já, við vinnum þetta endurgjaldslaust og undir stjórn ræstingastjóra á hverri vistareiningu scm raðar verkinu niður á íbúa og fylgist með því, að það sé unnið. Oddný: Og herbergin þrífum við sjálf, nema hvað bónað er hjá okkur einu sinni I mánuði. __ Umgangist þið hæjarbúa að ráði? Páll: Maður kynnist vitaskuld mörg- um á þessu tímabili, en samt verða kunningjar manns aðallega á vist- inni, og maður heldur dauðahaldi hver í annan og leitar lítið eftir kunningsskap úti í bæ. Samt lítur fólkið í bænum okkur alls engu hornauga. Oddný: Það eru þá ekki nema litlu krakkarnir, sem kalla: Mennta- skólaskríll! á eftir okkur. Jðn Reynir: Á fyrstu árum mennta- skólans hér held ég sumir bæjar- búar hafi verið hálfhræddir við, að , .mcnntaskólaskrlllinn” myndi setja leiðinlegan blæ á bæjarlífið. Nú held ég, að það viðhorf sé alveg horfið, cnda hefur mennta- skólinn frekar lyft bænum upp en hitt, til dæmis með sólrisuhátíð- inni, sem haldin er hér á hverju vori. Hún stendur í eina viku og er eins konar listahátíð. 'Ólafur: Úr því að þú minnist á sólrisuhátíðina, vil ég koma grósku- dögunum að. Víð fellum niður eig- inlcga skólavinnu í nokkra daga og vinnum þá að ákveðnum verk- efnum I staðinn. í þessu taka allir nemendur skólans þátt — ým- ist í hópum eða sem einstaklingar. Sumir fara á sjó, aðrir á bónda- bæi — sumir í frystihús og svo framvegis. Páll: I sambandi við tengsl mennta- skólans og bæjarbúa almennt má alls ekki gleyma kvöldskólanum, Bryndís: ...langaði bara að breyta til... Ölafur: Við neitum að svara þess- ari sþurningu. sem ekki hefði orðið til án mennta- skólans. Ólafur: Ji, í honum eru jafnmarg- ir, ef ekki fleiri nemendur en í menntaskólanum, fólk á öllum aldri, sem ekki stefnir að prófi, en fýsir að bæta við sig lærdómi íeinhverjum greinum. __ Er ekki gefið út blað hér í skólanum? Ólafur: Jú. Annars hefur verið svolitlum erfiðleikum bundið að gefa út blað hér, því að við höfum þurft að kaupa setningu á þvi, en nú höfum við aðgang að offseti, svo þá hlið getum við annast sjálf. Nú er meiningin að taka upp þá stefnu að gefa út nokkur lítil blöð á vetri í stað eins til tveggja stærri, eins og tíðkast hefur hingað til. ___Eru nemendur hér áhugasam- ir um þólitík? Oddný: Ég vil nú helst ekki úttala mig um það... Það eru menn hérna sem hafa vægast sagt ákaflega gaman af pólitík, en almennt held ég fólk sé bara á móti pólitík hér... Ólafur: Það cr allt of lítill áhugi á pólitík hér. Jón Reynir: Ég tek undir það. Oddný: ...svo það veigrar sér við að taka þátt I nokkru, sem heitir pólitík. ___Af hverju heldur þú, að þessi litli áhugi stafi, Oddný? Oddný: Ég veit ekki, hvort það er Jón Reynir: Okkur gefast tækifæri til að kynnast svolttið öðrum skól- um. tilviljun, hvernig fólk hefur valist hingað, en það liggur við, að fólk verði hrætt bara við orðið pólitík eitt. ___Er jafnrétti milli kynjanna hér í skólanum? Bryndís: Já, það held ég að segja mcgi. Oddný: Mér finnst strákarnir nú vera óþarflcga áhrifamiklir í nefnd- um og því um líku. Jón Reynir: Það má benda á, að í átta manna íþróttaráði í fyrra voru tómir strákar, svo það var gert að skilyrði núna, að það skipuðu fjórar stelpur og fjórir strákar, því að þcim fannst í fyrra, að ekki væri hægt að starfa á þcssum karlmanna- grundvelli einum. ___Er mikill íþróttaáhugi í skðl- anurn? Jón Reynir: Það er nokkuð stór hópur stráka, sem hefur mikinn áhuga... Páll: ...já, það má kalla töluverð- an hóp algera íþróttaidjóta... Oddný: ...já, það er hreint ekki hægt að tala við þetta fólk. Allt gengur út á sportið; Hefurðu séð nýja skíðagallann minn? Ætlarðu ekki að kaupa þér árskort í skíða- lyftuna? Það er fótboltaæfing á föstudaginn? Ætlarðu ekki í frjálsa tímann niðri í húsi á eftir? __ Er nokkuð athugavert við íþróttaáhuga? Oddný: Það má nú fyrr vera. Jón Reynir: I fyrra fórum við í skólaferðalag til Ítalíu, og einn í hópnum var alveg I öngum sínum af því, hve illa honum gekk að fá fréttir af ensku knattspyrnunni í ferðinni. Oddný: Þetta er sjúklegt. __ Er drykkjuskaþur algengur meðal nemenda hér? Páll: Ég held það sé ósköp svipað og hjá öllum öðrum. __Megiðþið drekka á vistunum? Páll: Nei. __Hvar drekkið þiðþá? Ólafur: Við neitum að svara þessari spurningu. Páll: Við reynum að fela okkur ofan í næsta rúmfatakassa og drekka þar... En svo ég tali í alvöru, held ég að skólinn og ráðamenn hans geti verið mjög ánægðir með, hve nemendur hér nota áfengi lítið og þó sérstaklega, hve vel þeir fara með það. Oddný: Það ber aldrei neitt á áfengisneyslu menntaskólanema hér... Páll: ...í kringum hana eru aldrei nein læti... Jón Reynir: ...enda eru mjög ströng viðurlög við áfengisneyslu á vistum, og ég held áfengisnotkun komi varla fyrir innan veggja þeirra. __En hvað um önnur nautnalyf? Jón Reynir: Menn neyta ckki annars hér en áfengis og tóbaks. Ólafur: Ég hcld það væri líka litið niður á þann, sem væri að fikta við annað. Oddný: Hass og því um líkt þrif- ist aldrei hér, enda þckkja allir alla hérí plássinu. Jón Reynir: Ég fór sem skiptinemi í annan menntaskóla I fyrra, og þar fannst mér bera þó nokkuð á nautnalyfjaneyslu og mun meira á drykkjuskap en hér. Maður verður alls ekki var við það hér, að nem- endur séu fullir hér alla föstudaga, cn þar var byrjað að drekka um leið og skólinn var búinn á föstudögum. Náttúrlega þarf þetta ekki að vera algilt t þeásum ákveðna mennta- skóla, þótt það tíðkaðist f þeirri klíku , sem ég kynntist. Tról. * 18 VIKAN 51. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.