Vikan - 18.12.1975, Síða 35
— Það má kannski orða það
þannig, sagði hann. Bætti svo við;
— Ég get ekki meir.
,,Get ekki meir”. Orðin stóðu
kyrr í loftinu. I fyrsta skipti fann
hún ckki aðeins til óttablandinnar
aðdáunar á þessum manni, heldur
sárvorkenndi hún honum líka.
Hann hafði víst talað lengi, þegar
hún tók eftir orðum hans. — Bara
tilbreyting að sjá nýtt andlit. Reyndu
að skilja mig, Lone. Ekki ást.
tilbreyting.
„Tilbreyting”. ,,Ekki nota mig”.
Hver sagði það? Hún mundi það
ekki.
Því meðan hún stóð þarna á
gólfinu og horfði á hann, var eins og
hann eltist og eltist. Skeggrótin
var farin að grána og hún mundi
allt í einu eftir því, að hann litaði
á sér hárið. Það var alls ekki svart,
heldur stálgrátt.
— Sagði hún, að þú vxrir of
gamall?
— Nei, hann hristi höfuðið. Svo
brosti hann til hennar. — Ég held
að þú sért svolítið reið, Lone.
•— Hvað sagði hún þá?
— Það var eins og hann kipptist
HÚSEIGENDUR — ATHUGIÐ
Smíðum staðlaða hringstiga
við allra hæfi
Vélsmiðja Guðjóns Olafssonar
Sími 3-12-80
við og hún sá hann greip andann
á lofti eins og hún hafði gert sjálf
nokkru áður.
— Hún hló, Lone, hún hló.
Hún stóð á gólfinu og fann aftur
meðaumkunarbylgju fara um sig alla.
Og nú vissi hún, að tilfinningar
hennar í garð þessa manns höfðu
aldrei verið sterkari en einmitt nú.
Hana langaði mest að taka hann í
faðm sér og hugga hann eins og
lítið barn.
— Fyrirgefðu mér, Lone.
— Já, sagði hún. — Já, elskan
mín.
Innst inni vissi hún, að nú loks-
ins höfðu þau fengið tækifæri til þess
að hætta að látast hvort fyrir öðru.
Sylvester húsgögain eru sem hugur þinn þau gefa þér alla hugsanlega möguleika á uppsetningu.
Hver eining eða stóll er 90 sm. breyður og kostar AÐEINS kr. 33.300.-
Þú getur valið um 9 mismunandi tískuliti í flauelis áklæði.
Vertu velkomin í okkar sýningarsal og kynntu þér alla kosti SYLVESTER húsgagnanna.
Einkasöluumboð á íslandi
SÚÐARVOGUR 4 (IÐNVOGAR) - REYKJAVlK
SlMAR: 36630 og 30581
51.TBL. VIKAN 35