Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 29.07.1976, Qupperneq 3

Vikan - 29.07.1976, Qupperneq 3
|5g Á móti eitur/yfjum — Mér dettur í hug, þegar talað er um gagnrýni, þegar ég ásamt öðru ungu fólki tók þá afstöðu að vera á móti eiturlyfjum. Okkur var Ijóst, að hætta væri á, að eiturlyfja- neysla yrði útbreidd hér, og því vildum við koma því á framfæri við fjölmiðla til þess að vara fólk við. Við efndum til blaðamannafundar, en hann mistókst eiginlega algjör- lega, því að fjölmiðlar gerðu úr þessu æsifréttir, því miður. — Vmsir brugðust hinir verstu við og kváðu okkur fara með dylgjur einar, og skömmu síðar vorum við bcðaðiráfund I Sigtúni af nokkrum Þessi fat/egi stoll, sem Lolo situr i, er gott dæml um heimili þeirra Sævars. Stóllinn er keyptur erlendis eins og reyndar mörg önnur hús- gógn, sem prýða heimilið. Viö reynum aiitaf aö iata hvort öðru Hða vel. - ----------.... sú ómerkilegasta atvinna er að mínu mati sú að gagnrýna verk annarra í fjölmiðlum. Gagnrýnendur geta komið mörgu góðu til leiðar, en þegar þeir taka upp á því að fara í gáfnaleik og þykjast hafa meira vit en allir aðrir, þá er lítið varið í hana. háskólastúdentum til þess að verja mál okkar. Það var nánast litið á okkur sem glæpamenn og við spurðir spjörunum úr, og því var haldiðfram, að lítil hætta væri á, að eiturlyfjaneysla yrði algeng hér vegna einangrunar landsins. Sem sagt við vorum bara gagnrýndir, og enginn vildi taka okkur trúan- lega. En hvernig fór? Nú er eitur- lyfjaneysla orðin vandamál hér á landi, og daglega les maður um hasssmygl í blöðunum. Ef til vill hefði verið hægt að gera fyrirbyggj- andi ráðstafanir, ef einhver hefði viljað hlusta á okkur. Nú setti Lóló plötu á fóninn, og Jim Ijósmyndari bað hana og Sævar að leyfa sér að taka myndir af þeim. Jú, það var í lagi, og á meðan Jim smellti af, spurði ég Sævar, hvort ekki væru búið að fara allar leiðir í tískunni, og hann áleit svo — Það er ekki ýkja miklu hægt að breyta úr því sem komið er. Síða hárið er ekkert nútímafyrirbæri, strákar eins og Hrafna-Flóki og Ing- ólfur Arnarson höfðu líka sítt hár, og það á eftir að komast aftur og aftur I tísku. Vanc/i að vera saman Lóló bauð upp á ýmislegt góm- sætt, og eins og svo oft, þegar talið berst að matargerð og öðrum heim- ilisstörfum, var farið að tala um jafnrétti og hlutverk hjónabandsins. Þau Lóló og Sævar urðu sammála um, að hjónabandið væri nauðsyn- leg stofnun frá félagslegu sjónar- miði, og að það mikilvægasta í lífinu væri að njóta ástar og vinskapar. — Svo langt sem ástarhugtakið nær, er það undirstaða hjónabands- ins ásamt gagnkvæmri virðingu. Það er mikill vandi að vera saman, búa saman og lifa saman, þvi að þá reynir á samvinnuna og fórnfýsina, ekki bara ástina. — Fyrstu árum hjónabandsins eyðir fólk oft i þrældóm til þess að eignast hús og bíl, og á meðan gleymist að lifa lífinu. Svo þegar erfiðasta tímabilið er búið og tími til kominn að slappa af, er orðið of seint að breyta hlutunum. Við erum kannski á góðri leið með að tortíma sjálfum okkur í þessari endalausu samkeppni. Það er mikill vandi að vera öðru vísi en aðrir, þó að flestir vilji það innst inni. Og enginn vill verða undir í samkeppninni, og þess vegna er unnið og unnið. Það liggur við að fólk fórni sér fyrir hvað sem er til þess að þera sem mest úr þýtum. Lóló er íþróttakennari og hetur kennt íþróttir nokkra vetur Hvort var draumurinn að verða flugfreyja eða íþróttakennari? — Mig dreymdi alltaf um að verða íþróttakennari. Þegar ég kom í fyrsta skipti inn í leikfimissal í 7 ára bekk, varð ég svo hrifin, að ég 31. TBL. V!!- AN 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.