Vikan

Eksemplar

Vikan - 29.07.1976, Side 21

Vikan - 29.07.1976, Side 21
staðinn. Og í lok þessarar viku hefði ég verið kominn á fjórar fætur að grátbiðja at- vinnumennina að leggja okkur til einhvern ^eirra ungu, gáfuðu rnanna." MaCulloch hristi höfuðið við tilhugsunina um þá útkomu. „Hefðu þeir ekki enn neitað?" Hvað hafði gert þá í Washington svona ragaí spurði David sjálfan sig’ Hann glápti á McChlloch, sem Tók dagblaðið, breiddi úr þvi og benti á langa frétt. Hann hafði dregið hring um eina málsgrein. Davdi tók við blaðinu og leit á Reutersfréttina frá Prag, dagsetta í gær. Fyrirsögnin var: TVENN RÉTTARHÖLD YFIR BYLTINGARMÖNNUM HEFJAST I TEKKÖSLÓVAKÍU. Hann byrjaði að lesa, en lauk ekki nema við fyrstu setninguna. Kvöldverðurinn var á leiðinni. „Geymdu þér það, þangað til yfir kaffinu," sagði McCulloch. „Lestu það vandlega. Þú munt fá skýringu á ýmsu. Annars er köld steik næstum óæt.“ „Þetta varð víst heldur langur hálftími," sagði flugfreyjan í afsökunartóni. „Ekki nógu langur," hugsaði David og lagði nauðugur frá sér blaðið. „Tók varla eftir því,“ sagði McCulloch stimamjúkurað vanda. „Ætli ég og þessi herramaður, skiptum ekki einni flösku af Bordeauxvíni á milli okkar." Hann snéri sér að David, kur- teisin uppmáluð. „Er ekki svo?“ Á meðan verið var að taka frá þeim bakkana, viðurkenndi David fyrir sjálfum sér, að MeCulloch hefði skorað einn einu sinni. Hinar nánu samræður þeirra, höfðu verið vel tfmasettar, því að málsverði loknum, færðist ró yfir alla. Fólk fór að búa sig undir að hafa hægt um sig það sem eftir var kvöldsins. Þetta sífellda samspil radda og hláturs, hætti. Eftir nokkrar mótbárur fékkst jafnvel litli strákurinn til þess að sofna. David hagræddi leslampanum fyrir ofan sig og tók fram dag- blaðið. Ur sætinu fyrir framan heyrðist hvar stúlkan sagði við flugfrey j.una, sem var á leið fram 1 til flugmannanna. „Höldum við áætlun? Gott. Þá verður lent á réttum tíma?“ Hún stóð nú upp og hélt áfram að tala við flugfreyjuna. „Hvernig er veðurútlitið? Flugfreyjan fullvissaði hana um, að það væri ágætt. „Yndislegt," sagði stúlkan og yfirgaf sætið. Hún gekk aftur eftir vélinni, þannig að David gæti greinilega séð andlit hennar. „öll óþægindn yfirstaðin, vænti ég. „Hún leit á sofandi barnið og þær brosu báðar. Síðan fór Jo fram á snyrtingu. Stúlka? Ef hún væri nú rauðsokka, yrði hún sjálfsagt óánægð með þá lýsingu á sér. En hugsaði David, og var ekki alveg laus við gorgeir karlmannsins, kannski var þetta fulltíða kona, komin vel á þrítugsaldur, og ef til vill snarpari og gáfaðri en hann (McCulloch, refurinn sá, myndi ekki velja heimska tildurrófu í þennan starfa). En hún var aðlaðandi og kvenhormónarnir áreiðanlega í góðum meirihluta. Andlit hennar var egglaga, beinabyggingin góð og húðin slétt og föl. (Vangasvipurinn var skýrt dreginn). Augun voru stór, augnalokin dökk og augna- brýrnar áberandi, allt aðfinnslulaust og svo var það dökkt, gljáandi hárið. Röddin var þýð, ekki þessi ráma hæsi, og óvíst, að hún væri amerísk, ensk? Hvernig hún fór með sér- hljóðanna gat vissulega bent til þess, eða ítölsk (Nafnið var þess háttar)? Mýkst sumra atkvæða gaf það lika til kynna. Og ef hún ætlaði að segja honum fyrir verkum, þá myndi röddin ekki auka á óþolinmæðina. En vonandi gerir hún það ekki, hugsaði hann, best að' hvprugt ráðskist með hitt. En hann var í vafa. Jo var áreiðanlega fær. Hvernig hún hafði borið sig áðan, var aðdáunarvert. Hann tók fram dagblaðið á ný. McCulloch hafði tekið skjala- pappír upp úr möppu sinni og hélt á kúlupenna. Hann setti upp gleraugun og var greinilega djúpt niðursokkinn í eitthvað. David byrjaði að lesa. Hann var fljótur að renna yfir Reutersfréttina, þrír dálkar, sem fylltu fjórðung úr siðu. Fyrirsögnin hafði verið villandi. „Tvenn réttarhöld yfir byltingarmönnum,“ þýddi í raun, áð þau færu fram á tveimur stöðum, Prag og Brno. 1 síðar- nefndu borginni voru nokkur réttarhöld, er snertu hina frjáls- lyndari meðal kommúnista. Þau höfðu staðið yfir alla síðustu viku og gerðu enn. Hinir ákærðu voru allt menntamenn eða -konur, læknar, sagnfræðingar, heim- spekingur, tveir verkfræðingar, prestur og lögfræðingur. Þeir höfðu verið handteknir rétt fyrir kosningar í nóvember. Þeim var gefið að sök að hafa dreift bæklingum, sem minntu fólkið á rétt þess, samkvæmt stjórna- skránni til að kjósa. Sumir höfðu veitt vestrænum fréttamönnum viðtöl. Þeir máttu eiga von á allt að tíu ára fangelsi. Samkvæmt málsgreininni, sem McCulloch hafði dregið hring um, var þetta „tilraun til þess að afmá alla starfandi stjórnarandstöðu í eitt skipti fyrir öll. Þetta hefur greini- lega tekist, vegna þess að vestrænir fréttamenn hafa heyrt æ minna frá neðanhreyfingunm. Og önnur athyglisverð staðreynd kom fram: Núverandi formaður kommúnistaflokksins, sem réði raunar öllu innan stjórnarinnar, reyndi að láta sem minnst á þessum réttarhöldum bera. Hann vildi ekki æsa upp hinn almenna borgara eða veita harðlínu- kommúnistum tækifæri til þess að „skerast í leikinn og beita meiri hörku.“ Þarna kom ef til vill skýringin á því, hvernig öryggisþjónusta okkar hegðar sér i þessu máli.en hann skildi þetta samt ekki alveg. Hann las fréttina aftur. Skýringin var þarna, en hann náði ekki tangarhaldi á henni til fulls. En hann hafði samt lært ýmislegt. í Tékkóslóvakíu voru fjórir stjórn- málahópar. I fyrsta lagi, minni- hlutinn, sem nú var við völd. Þeir fóru bil beggja, reyndu að sýna Rússum, að þeir voru líka tryggir kommúnistar. Takið bara eftir, við getum haldið góðum aga! 1 öðru lagi var það meirihlutinn. valdalaus núna en álíka frjáls- lyndur, en þó ekki eins áræðinn og Dubcek í Prag vorið 1968. Hann hafði raunar fengið fyrirmæli um að segja þeim að hafa sig hæga. í þriðja lagi, hópurinn sem minnst bar á, harðlínumennirnir, nýstalínistar. Þeir voru reiðubúnir að „beita hörku,“ sem þýddi að komast til valda. Hefndarverkastarfsemi var þeirra aðferð Þeir hefðu haldið stærri og betri réttarhöld, sett á svið sýningar með ákærum um landráð, rétt eins og hér áður fyrr. I fjórða lagi voru það andkommúnistarnir og fyrrverandi kommúnistar, sennilega alminnsti hópurinn, sem nú var búið að þagga niður í. Þannig hafði þeirra að minnsta kosti verið getið í Reuters- fréttinni: siðustu mánuðina fyrir réttarhöldin, höfðu vestrænir fréttamenn heyrt óvenju lítið frá neðanjarðarhreyfingunni. David braut saman blaðið og setti það við hliðina á McCulloch Hann lokaði augunúm og reyndi að finna lausn á gátunni. Neðanjarðarhreyfingin var ekki með öllu útdauð, því að þá væri Irina ekki komin til Vínar. En þeir voru greinilega varkárir og gættu þess að draga ekki að sér athygli opinberlega. Bandaríska öryggisþjónustan og einnig sú breska vildu ekki koma nærri tékknesku andspyrnuhreyf- ingunni. La' fiskurinn þar grafinn? Engin leið að rekja slóðina frá vestrænum stjórn- völdum til tékknesku neðan- jarðarhreyfingarinnar? Harðlínu- kommúnistar fengju þar með ekkert tækifæri til þess að setja á svið réttarhöld, hrifsa til sín völdin og koma þannig á full- komnum aga. Ekki var hægt að heimta stærri og meiri réttarhöld nema hafa gott tromp á hendi, eitthvað til þess að þagga niður í umheiminum. „Auðvitað," varð fólk að segja, „auðvitað eru þeir sekir. Sjáið bara hvernig CIA stendur á bak við þetta allt saman,#gnir til mótþróa og skilur svo vesalings fólkiö eftir i súpunni." Það myndi ekki sjá annað enafleiðingarnarafþessari angist, handtökur, refsiaoma, ef til vill lífstíðarvist i þrælabúðum eða hreinlega aftökur, það myndi aldrei komast að hinu sanna. Aurskriða áróðursins myndi sjá fyrir því. Og einmitt þetta vildu HELEN MACINNES SXUJU FUCL- ARHNS 31. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.