Vikan

Eksemplar

Vikan - 29.07.1976, Side 33

Vikan - 29.07.1976, Side 33
stundi að minnsta kosti þrjátíu sinnum áður en klukkan á Notre- Dame-de Lorette sló tíu. Síðasta hringingin var 1 þann veginn að deyja út, þegar þau heyrðu skrölt í vagni. Hann hægði á sér og ók í gegnum hliðið, sem dyravörður- inn hafði fengið fyrirmæli um að skilja eftir opið. Því næst stansaði hann í dimmum forgarðinum. Marianne hljóp út að glugganum og hjartað hamaðist í brjósti hennar, en Fortunée reis á fætur og ætlaði að fara inn í sitt eigið herbergi. En hún hafði ekki tóm til þess, því að í sömu andrá birt- ist Napóleon. „Ekki hlaupast á brott madame," sagði hann og gestgjaf- inn hneigði sig þarna í dyrum vlðhafnarstofunnar. „Eg get aðeins staldrað við skamma stund.“ Hann fleygði hattinum á sófann, tók Marianne í faðm sér og kyssti hana. „Hvað, aðeins skamma stund?“ sagði hún. „Keisari getur sjaldan hagað sér að vild sinni mio dolce amor. Ég verð að fara aftur til Tuileries. Þar bíður mín mikilvægur sendi- boði, en það er sitthvað, sem ég þarf að segja yður.“ Hann dró skjöl upp úr vasa sínum og rétti henni. „Ég lofaði yður húsi,“ sagði hann brosandi. „Ég ætla að gefa yður þetta og vona, að þér séuð ánægðar með það.“ Marianne fletti í sundur skjöl- unum og um leið og hún las fyrstu setninguna hljóp roði í kinnar hennar. Augun flóðu í tárum. „Þakka yður fyrir,“ stundi hún og þrýsti skjölunum að brjósti sér. í þeim stóð skrifað að hús Asselnatættarinnar, þar sem for- eldrar hennar höfðu verið tekin til fanga og de Chazay ábóti hafði fundið hana, væri hennar eign. Napóleon strauk henni blíðlega um hárið. „Ekki gráta. Umfram allt óska ég þess, að þér séuð hamingju- söm. Ég er þegar búinn að gera ýmsar ráðstafanir. í fyrramálið munu Percier og Fontaine fara og kanna hvaða viðgerðir eru nauð- synlegar, enda hefur húsið staðið autt síðan 1793. Fortunée mun fara með yður og þið getið óskað eftir þeim breytingum, sem þið viljið. Svona nú, ekki gráta. Það er líka dálitið annað, sem ég þarf að segja yður,“ bætti hann ástúð- lega við. Hún herti upp hugann og þurrkaði sér um augun. „Ég er ekki að gráta.“ „Skreytni! En nú verð ég að fara. A morgun mun Gossec koma hingað. Hann ætlar að útvega yður áheyrn hjá stjórnanda óper- unnar. Innan mánaðar mun öll París tigna nýja gyðju, Mariu Stellu. Rödd yðar er undursamleg og hún mun fleyta yður langt!" „Maria Stella?“ sagði hún undr- andi. „Það er nafnið, sem ég hef valið yður. Þér getið ekki komið fram í leikhúsinu undir yðar rétta nafni og þetta Mallerousse er alveg hræðilegt. Auk þess sér almenn- ingur hér ekki sólina fyrir ítöl- um. Framhald í næsta blaði. feria- frniM, T Grensásvegi 7, simar 86511 — 83360 Sendum í póstkröfu. usgoqn liwomB HÚSQÖG 31. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.