Vikan

Issue

Vikan - 29.07.1976, Page 34

Vikan - 29.07.1976, Page 34
Kállström á Datsun 160 J SSS í Acropolis rally. ,.. ARNI BJARNASON * A FLEYGI FERÐ ACROPOUS RALLY í GRIKKLANDI Harry Kallström og Claes-Göran Andersson sigruðu Acropolis rally- ið á Datsun 160 J SSS. Datsun var með tvo bíla í þessu rally, öórum ók Harry Kállström en hinum Shekhar Metha. Báðir bílarnirvorumeðtvoofanáliggjandi knastása, svo að mótorarnir gáfu 200 Din hestöfl. Lancia Stratos kom með þrjá 24 ventla, 280 hest- afla bíla, en þeim óku þeir Björn Waldegárd, Raffaele Pinto og Mauro Pregliaxco. Toyota mætti með Ove Andersson í fararbroddi á Celica 16 ventla og tveggja lítra og Hannu Mikkola á Corolla með 1600 cc 16 ventla vél. Þarna voru flestir bestu rally ökumennirnir saman komnir og meira að segja Johnny Pesmazuglou sem er orð- inn 63ára, en hann vann Acropol- is rallyið þegar það var haldið í fyrsta skipti árið 1952. Hann ók Opel ‘Ascona sem var rally bíll Walter Rörhls í fyrra. Björn Waldegárd á Stratos náöi strax forystu í keppninni með Raffaele Pinto næstan á eftir, svo Lancia menn urðu kampakátir og héldu að nú myndi ganga vel. Fljótlega eftir að keppnin hófst byrjaði að rigna svo að vegirnir urðu eitt drulluflag. Toyotan hans Ove Andersson bilaði á þriðju sérleið- inni, afturöxullinn brotnaði og vin- ur hans Hannu Mikkola varð líka að hætta keppni, því dælan sem stjórnar rennsli inn á beinu innspýt- inguna bilaði. Björn Waldegárd var nú í öruggri forystu þrátt fyrir að sprungið hafði hjá honum svo að hann varð að keyra á felgunni síðasta spölinn á einni sérleiðinni. En á sérleið 10 bilaði olíuslanga hjá Waldegárd svo að vélin ofhitnaöi og hann var úr keppni. Þetta var áttunda árið í röð, sem hann náði ekki að Ijúka keppni í Acropolis. En þetta var ekki allt því að Pinto sem ók einnig Stratos braut öxul og var úr keppni á sömu sérleið. Björn Waldegárd kemurá tlmastöð á felgunni i orðsins fyllstu merkingu. 34 VIKAN 31. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.