Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 11
AÐ PLOKKA AUGABRÚNIR.
Tvær ungar stúlkur skrifa og
biðja okkur um svör við nokkrum
spurningum.
„Er þaö rétt, sem við höfum
heyrt, að þaö eigi ekki að plokka
augabrúnirnar að ofan? Af hverju
ekki? Getur verið hættulegt að
nota túrtappa? Hvort er réttara að
segja vestri eöa vestari? Er eitt-
hvað aö marka andaglas? Hvað er
hjúkrunarnám langt? Hvernig eiga
saman tvö naut? En vog og naut?
Hvaö lestu úr skriftinni og hvað
heldurðu aö ég sé gömul? Biðjum
að heilsa Helgu.
O.S.
Svo langar mig Kka voðalega til
að vita hvort þú getur lesið
eitthvaö úr þessu kroti mínu?
H.Þ.
Ekki veit ég til þess, að þaö séu
til neinar regiur um það, hvort
plokka sku/i augabrúnir ofan eða
neðan frá. Hitt er annað mál, að
það getur verið einstaklingsbund-
ið, hvort plokkunin er æskilegri
ofan eða neðan frá. Ég held það
sé i flestum tilfellum a/veg skað-
/aust að nota svonefnda túrtappa.
Ef þið eruð eitthvað hræddar við
það eða finnst það óþægilegt er
best fyrir ykkur að leita ráða hjá
lækni. Það mun vera rétt að segja
vestari, en vestri er ekki viður-
kennd orðmynd. Það eru ákaflega
skiptar skoðanir manna í sam-
bandi við andaglas. Hallast ég
he/st að þeirrí skoðun, að t flestum
tilfellum sé þetta ímyndun ein og
bölvuð vitleysa. Vil ég ráða ykkur
frá þvíað fikta við al/t þess háttar,
þvl að það getur haft alvarlegar
afleiðingar ( för með sér. Þess eru
(afnvel dæmi, að fólk hafi fengið
taugaáfáll af sllku kukli. Hjúkrun-
arnám tekurþrjú ár. Tvö naut eiga
ágætlega saman. Þau hafa sömu
áhugamál og skortir ekki umræðu-
efni, en eru bæði jafn þrjósk. Vog
og naut geta llka átt nokkuð vel
saman, en vogin verðurþá að vera
tillitssöm. Úr skriftinni les ég
viðkvæmni og vandvirkni. Þú ert
svona 16 ára. He/ga þakkar kær-
lega kveðjuna og biður að heilsa
ykkur.
Úr kroti H.Þ. /es ég kurteisi, en
dálítið kæruleysi.
KINNROÐI.
Elsku Pósturl
Ég vona að bréfiö lendi ekki I
hinni frægu ruslakörfu. Jæja,
svoleiöis er, að ef einhverjir strák-
ar, sérstaklega sætir, eða þá
kennarar segja eitthvað viö mig,
þá eldroöna ég í framan og er
mikiö strltt á þessu. Ég er ekkert
feimin og annað er, aö ef ég er
meö einhverjum strák í partýi, þá
þoli ég hann ekki næsta mánuö-
inn. Ég er aö verða vitlaus á
þessu. Hvað á ég aö gera?
Ein pirruö.
P.S. Hvað á ég að gera til þess að
fá athygli stráka. Hvaö heldurðu
að ég sé gömul og hvað lestu úr
skriftinni.
Eg veit hreint ekki, hvað þú átt að
gera við þessum kinnroða, en ég
held nú, að þetta sé ekki neitt
hættulegt og e/dist senni/ega af
þér. 'Eg átta mig ekki á þessu
ógeði þinu á strákunum, sem þú
hefur verið með / partýum, nema
það stafi af þvl að þú sért ekki
nógu vand/át og skammist þín svo
síðar. Þú spyrð, hvað þú getir gert
ti/ þess að strákarnir taki eftir þér.
Ég held, að þeir taki bara meira en
nóg eftirþér, eftirþvl sem þú segir
/ fyrrí hluta bréfsins. Þú ert líklega
13 ára, og úr skriftinni /es ég skort
á sjálfsvirðingu.
VERÐANDI PABBI.
Kæri Póstur!
Ég er í gagganum f 4. bekk og
bið þig nú að hjálpa mér (
vandræðum mínum. Ég varð fyrir
því óhappi að gera stelpu, sem ég
var með, ólétta. Foreldrar mínir
eru þannig, aö ég get ómögulega
sagt þeim frá þvl. Einnig er það,
að ég get ómögulega borgað
meölagið.
Hvað á ég að gera? Hætta I
skólanum? Fara að vinna eða fara
að heiman?
Láttu þetta bréf ekki lenda I
þinni víöfrægu ruslakörfu og svar-
aöu mér sem fljótast, skýrt og
skilmerkilega.
S.S.
Þú hefur svei mér komið þér I
vandræði drengur minn. Nú eru
góð ráð dýr. Ertu nú alveg viss um
að foreldrar þlnir sér svo ómögu-
legir, að þeir taki ekki skynsam-
lega afstöðu I svona tilfelli? Þú ert
svo ungur, að þér er varía fært að
ráða fram úr þessum vandræðum
þlnum á eigin spýtur. Það er ekki
svo einfalt að bjarga sér, þegar
svona er komið. Þú getur llka átt
von á þvl, að foreldrar þlnir frétti
af þessu og er þá ekki alveg eins
gott að segja þeim það sjélfur? Þú
verður llka að gera þér grein fyrir
þvf, að þú hefur fleiri skyldum að
gegna en bara að borga meðlagið.
Gleymdu ekki barnsmóður þinni.
Sýndu hugrekki og leggðu málin
fyrir fbfeldra þfna. Efþeir ráða þér
ekki hekt, þá hljóta þeir að vera /
meira lagi óeðlilegir.
HANDKLÆOAKASSAR
FYRIR SAMKOMUHÚS
OG VINNUSTAÐI
VERÐ KRÓNUR: 14.950.-
GÓÐ GREIOSLUKJÖR
1. TBL. VIKAN 11