Vikan - 06.01.1977, Side 12
til baka - til árs
Þá er komið að þ ví að líta yfir farinn
■ veg og velta ögn fyrir sér, hvemig til
hefur tekist með það blessaða ár
1976. Var það ár, sem við munum
minnast einhverra hluta vegna?
Já, vissulega færðiárið 1976 okkur
margt eftirminnilegt, og nú skulum
við glugga í spádóm okkar frægu og
ágætu völvu fyrir árið 1976 og gæta
að, hversu sannspá hún reyndist.
Við urðum ekki fyrir vonbrigðum
með völvuspána. Þvert á móti hefur
furðu margt komið fram að einhverju
leyti og sumt nákvæmlega eins og
hún spáði. Tökum nokkur dæmi:
Landhelgisdeilan
,,Deilan leysist, en hversu farsæl
sú lausn verður talin, fer eftir því,
hvar í flokki menn standa.” Þetta
sagði völvan um síðustu áramót, og
nokkrum setningum siðar: ,,Við
fáumokkarlandhelgivirta að lokum,
á því er ekki minnsti vafi, þótt
þorskastriðið standi enn um hríð.
Sennilega verða einhver umskipti i
þessum málum að áliðnum vetri.”
Það var samið í landhelgisdeiiunni
um mánaðamótin maí/júní.
Efnahagsmálin
Ekki var völvan mjög bjartsýn,
þegar við reyndum að toga upp úr
henni eitthvað um efnahagsmál
þjóðarinnar. Þósagði hún: „Enþað
má allavega tala um bjartari horfur í
efnahagsmálum þjóðarinnar, og það
er þó alténd betra en verið hefur”.
Ætli við séum ekki sammála um, að
horfurnarhafibatnað. Þeirsemgerst
fylgjast með í þessum málum segja
okkur, að fiskverð hafi hækkað og
gjaldeyrisstaðan batnað. Við gerum
okkur ánægð með það í bili.
Fjármálasvik
...á komandi ári koma stórfelld
fjármálasvik fram í dagsljósið, og er
þar um fleiri en eitt mál að ræða. Eitt
þeirra að minnsta kosti byggist á
stórkostlegum skattsvikum og mun
vekja almenna hneykslun.” Naum-
ast þarf að sannfæra einn eða neinn
um það, að með þessu rataði völvan
sannurlega á það rétta.
Landinn og herinn
Það er varla gleymt, þegar menn
tóku sig til og lokuðu vegum til
Keflavíkurflugvallar og höfðu í
frammi ýmis konar mótmæli gegn
bandarikjamönnum, af því þeim
þótti verndararnir ekki gegna sínu
hlutverki, þegar íslendingar áttu í
höggi við bretana á miðunum.
Sagði völvan eitthvað um þetta?
Já: „Einhvers konar árekstur verð-
ur á milli landans og hersins á
Keflavíkurflugvelli. Ekki get ég
skýrt það nánar, en vera má, að það
sé eitthvað i sambandi við deilur
íslendinga og breta.”
Opinber rekstur
og fjármála-
hneyksli
Þá hitti völvan naglann á höfuðið,
þegar hún sagði eftirfarandi: „Mik-
ið verður rætt um opinberan rekst-
ur á árinu. Verða deilur í
sambandi við yfirmannaskipti í
einni opinberri stofnun og talsvert
sögulegt í kringum það.” Mönnum
er enn í fersku minni, að ekki gekk
svo lítið á við yfirmannaskiptin hjá
Eimskip hf.Og manni verður óðara
hugsað til Ferðaskrifstofu ríkisins
við lestur eftirfarandi orða völv-
unnar: „Og enn ein stofnun verðui
bendluð við fjármálahneyksli.”
Tónlistarlífið
Völvan spáði mikilli grósku í
menningarlífi landsmanna og
klykkti út með því að segja:
Tónlistarlíf verður mjög blómlegt,
og munu íslenskir tónlistarmenn
bera hróður landsins víða.” Hvort
munum við ekki verðlaun Norður-
landaráðs, sem féllu Atla Heimi í
skaut? Og þeir eru raunar fleiri, sem
staðið hafa í sviðsljósinu, og nægir
að nefna Sigríði Ellu, sem stóð sig
'frámærlega í erlendri söngvakeppni
á síðastliðnu hausti, og Gunnar
Þórðarson, sem komst á samning
við bandarískt fyrirtæki.
Skákin og
meistararnir
„Friðrik ölafsson og Guðmundur
Sigurjónsson standa sig báðir vel í
skákinni, og annar þeirra nær
fyrsta sæti í skákmóti á erlendri
grund.” Svo hljóðaði spádómur
völvunnar, en þeir félagar bættu
um betur og náðu báðir fyrsta sæti í
Síðan fyrsta spá völvunnar okkar
birtist fyrir árið 1973 hefur hún
verið mjög umrædd, og eftir því
sem árin hafa liðið og spádómum
hennar fjölgað, hafa æ fleiri viljað
eigna sér þessa frægu völvu, sem
svo oft hefur reynst sannspá.
Sjálf vill hún ekki fyrir nokkra
muni koma fram í eigin persónu, og
með því hefur hún auðvitað að
nokkru leyti ýtt undir ýmsar sögu-
sagnir. Margar sögur hafa borist
okkur til eyma um, að þessi fræga
völva hafi verið á hinum og þessum
staðnum og spáð fyrir fólki, en við
nánari athugun hefur ævinlega
komið í ljós, að ekki var um hina
einu sönnu völvu Vikunnar að
ræða.
Þetta skiptir kannski ekki miklu
máli, en þó finnst okkur óviðkunn-
anlegt, að aðrir séu að reyna að not-
færa sér frægð okkar nafnlausu
völvu. En hún er ósveigjanleg sem
fyrr.
— Ég get ekki hugsað mér að
koma fram í eigin persónu, enn
síður nú en áður, sagði hún ákveðin.
þegar við gengum á hennar fund
viku af desember. Við verðum að
láta okkur það lynda sem fyrr og
snúum okkur bara beint að spá-
dómnum.
Völvan var hin hressasta yfir
framtíðarhorfunum.
— Árið 1977 verður dálítið sér-
stakt ár, ár mikilla viðburða, sem
leyna kannski á sér, en við munum
kunna að meta síðar.
erlendum mótum, og Friðrik var
auk þess efstur á móti hér heima.
Útlöndin og Maó
,,...ég er sannfærð um það, að við
fáum stórfréttir frá Kina á árinu,
sennilega kveður Maó formaður
þennan heim, og einhver átök verða
um eftirmann hans.” Og „...það
verður afskaplega heitt í kolunum í
löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs
vonandi þó ekki stríð.” Ekki varð
henni að von sinni, en hún sagði
einnig: „Bandaríkin verða náttúr-
lega mikið í fréttunum vegna for-
setakosninganna. Nýr maður skýt-
— Ef ég byrja á því að reyna að
spá um veðurfar, þá verður kalt í
veðri og snjóþungt, og við megum
eiga von á hafís, þegar líða tekur að
vori. Sumarið verður hins vegar
ágætt, þegar það loksins kemur, og
loks fá sunnlendingar svolítið meiri
sól en þeir hafa átt að venjast
að undanförnu. Við fáum að
minnsta kosti einu sinni yfir okkur
ofsastorm, sem gerir umtalsverðan
óskunda, sennilega verður það í
febrúar, en jafnvel oftar.
— Sjávarafli verður heldur rýrari
en gott þykir, þó kemur góð skorpa
með mokfiski, sennilega í apríl,
og það eru minni bátar, sem fá þar
góðan hlut. Þessi skorpa bjargar
miklu hjá sjómönnum, en orsaka
lélegs hluts þeirra er að leita í verk-
falli, sem þeir gera á árinu. Fiskverð
fer enn hækkandi, síðan heldur
niður á við, en hækkar aftur, þegar
líður á árið. Það verður ekki af
neinum samningum við breta um
veiðar í íslenskri fiskveiðilandhelgi
en það kemur til árekstra á miðun-
um við aðra þjóð.
— Árið 1977 verður fremur hag-
stætt landbúnaði, að vísu ögn mis-
jafnt eftir landshlutum. í norðaust-
urhluta landsins verða skemmdir af
kali í vissum sveitum og heyfengur
því minni þar en í meðalári. Hins
vegar geta kartöfluræktendur litið
björtum augum til næsta hausts,
uppskera verður miklu betri hjá
þeim í ár en í fyrra. Einhverjar
hræringar eru í landbúnaðarmálun-
Hvaö geri
12 VIKAN-1. TBL.