Vikan


Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 18

Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 18
bergi, sem er langur salur. Þar liggja sjúklingarnir ýmist í járn- rúmum eða á bastmottum á gólfinu. Þeir eru fölleitir og angistarsvip- urinn skín út úr andlitum þeirra. Eldri maður, afar smávaxinn, velt- ist um gólfið og virðist vera í anda- slitrunum. Abt snertir aðeins við honum með annarri hendinni og heldur svo áfram. Hann talar ekkert við sjúklingana. „Þeir skynja kraft minn, þegar þeir sjá mig,” segir hann. Hinir nýkomnu sjúklingar hafa nú lokið bænagjörð sinni, en þeir eru samt áfram í sömu stellingum. Nú kemur munkur og færir þeim brúnleitan drykk, sem þeir verða að drekka. Þessi drykkur er búinn til úr sérstökum jurtum og er ákaflega beiskur á bragðið. Þess vegna verkar hann bæði fljótt og vel, ef hreinsa þarf líkamann. Sjúklingarn- ir drekka þetta og einn lítra af vatni, en þeir eru varla búnir að kyngja, þegar allt kemur upp úr þeim aftur. Abt Chamroon útskýrir þetta: „Við beitum þessari aðferð í fimm daga, til þess að hreinsa likamann. Siðan hvíla sjúklingamir sig í aðra fimm daga og eru fullfrískir á eftir.” Nokkrum dögum síðar höfðum við upp á Carmen, vinkonu Jasmin, í Bangkok. Dyravörður á fremur illa þokkuðu hóteli gat gefið okkur upp heimilisfang hennar, en hún býr á litlu, þægilegu hóteli og hefur tveggja herbergja íbúð þar. Hún stundar vændi til þess að sjá fyrir sér. Við hringdum lengi, áður en hún kom til dyra. Hún var aðeins klædd stuttum kimono og virtist fremur lagleg, en það sást greini- lega á tönnum hennar að hún neytti heróíns. „Jasmin var mjög illa farin”, sagði hún við okkur, „hún þoldi ekki við nema 24 stundir, án þess að fá sinn skammt.” Hér látum við lokið þessari frá- sögn af heimsókninni til Bangkok. Ennþá getum við séð fyrir okkur andlitið á Jasmin bak við járn- rimlana í fangaklefanum, þar sem hún afplánar dóm sinn. Vonandi á þetta eftir að breytast tii batnaðar í framtíðinni. Abt Chamron ásamt nokkrum sjúklinga sinna. 18VIKAN 1. TBL. Edelgard, sem er kölluð Jasmin verður að afpláne sex mánaða fang- elsisdóm vegna heróinneyslu. og einn pakki týndist, þá gerði það ekki svo mikið til. Það sem komst á leiðarenda gaf nægilega mikinn gróða, því að heróín er tvöfalt dýr-. ara i Bandaríkjunum en í Bangkok. Eitt kvöld var svo Sylvia að hjálpa vini sínum við að pakka inn þremur kilóum af heróíni. Þá ruddist lög- reglan skyndilega inn og handtók þau bæði. Heróínneysla er mjög útbreidd í Thailandi sjálfu, og á lögreglan mjög oft í höggi við innlenda smygl- hringa. í nokkurri fjarlægð frá fangelsinu, þar sem Jasmin er, er nokkurs konar endurhæfingarstöð fyrir eiturlyfjasjúklinga. Þetta er gamait klaustur, og yfirmaðurinn er Búddhamunkur, sem heitir Cham- roon Parnchan. Hann berst mjög á móti allri neyslu fíkniefna í Thai- landi. Meðferðin, sem sjúklingarnir fá í klaustrinu, tekur aðeins 10 daga, og við lítum þar við til þess að kynnast þessu nánar. Klaustrið er í djúpum og fremur afskekktum dal. Vörður við inn- ganginn skrifar hjá sér nöfn okkar og visar okkur síðan inn í lágreista byggingu. Þaðan berst söngur og hljóðfærasláttur og inni í hálf- dimmu herbergi krýpur Abt Cham- roon á gólfinu við litið borð. Reyk- elsisilmur fyllir vit okkar, og það glitrar á skinandi Búddhamyndir og líkneski. Áður en Chamron gerðist munkur var hann stjómmálamaður, og þá barðist hann á móti allri spillingu innan þjóðfélagsins. Hann lifir nú án allra þæginda í klaustrinu og hefur andúð á allri mengun og ónáttúm. Síðar um daginn kemur hópur ungs fólks til klaustursins, og em þar á meðal bæði heróín- og ópium- néytendur. Sjúklingarnir em allir Iátnir hafa fataskipti og klæðast fötum, sem em eign klaustursins. Rauðar buxur og hvítar skyrtur. Allir em jafnir. Þvi næst er lagst á bæn, og allir biðja saman: „Ég lofa því að snerta aldrei framar við eiturlyfjum og ég veit, að ef ég svík loforð minn, mun ég deyja.” Fólkið heldur áfram að þylja þessa sömu setningu, og á meðan fylgir Abt okkur inn í næsta her-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.