Vikan - 10.02.1977, Side 2
6. tbl. 39. árg. 10. febr. 1977
Verð kr. 350
GREINAR:
12 Mamma, af hverju slærðu mig?
Grein um misþyrmingar é
börnum.
20 Ökuferð í Escortinum hans
Clarks. Sjá ennfremur viðtal á
bls. 14.
22 Spennið beltin! Ný bók eftir
Ericu Jong.
51 Reynsluakstur á þverofnum
hjólbörðum.
57 Fóstrið verður jafnölvað og
móðirin. Grein eftir Anders
Tuxen.
VIÐTÖL:_______________________
14 Áhuginn verður að vera alveg
óskaplegur. Einkaviðtal Vik-
unnar við rallykappann Roger
Clark.
52 Þrír stórir hjá Ford. Rætt við
þrjá rallykappa og sagt frá
blaðamannafundi hjá Ford.
SÖGUR:
26 Eyja dr. Moreaus. 2. hluti
framhaldssögu eftir H. G.
Wells.
44 Gróa. 6. hluti framhaldssögu
eftir Eddu Ársælsdóttur.
58 Músagildran. Smásaga eftir Arthur Omre.
FASTIR ÞÆTTIR:
43 Tækni fyrir alla.
46 Stjörnuspá.
64 Mig dreymdi.
65 Poppfræðiritið: Electric Light Orchestra.
70 Eldhús Vikunnar: Búið til úr eplum.
ÝMISLEGT:
2 Ætlarðu að kaupa bíl? Upp- lýsingar um verð og annað.
25 Verðsamanburður bíla, sem
kosta innan við 2 milljónir.
68 Tvær góðar. Uppskriftir af
tveimur peysum.
Ætlarða
í þeirri trú að við getum lítils háttar létt lesendum
leitina að hentugum bíl á þessu nýbyrjaða ári, þá
höfum við reynt að safna saman ýmsum upplýsingum
frá hérlendum bílaumboðum um þá bíla, sem á i
markaðinum verða. Misjafnlega miklar upplýsingar voru
tiltœkar, þannig að um sumar bifreiðanna getum við
lítið annað gefið upp en verðið — og meira að segja |
það getur verið breytingum háð, en uppgefnar tölur
munu þó mjög nálœgt lagi.
Menn kunna að sakna ýmissa bílategunda, en hér er
fyrst og fremst miðað við fólksbifreiðir og viljandi |
sleppt ýmsum gerðum ófœrubifreiða, sendibifreiða og
vörubifreiða, sem hinn almenni kaupandi hefur síður
áhuga á, að okkar mati, því einhvers staðar varð að
setja mörkin.
Æskilegast hefði að sjálfsögðu verið að geta birt
okkar eigin dóma um þessar bifreiðar (sumar þeirra
hefur Vikan raunar prófað og birt niðurstöður sínar í
þœttinum Á fleygiferð), en þess er ekki nokkur kostur
eins og er, heldur er hér að mestu stuðst við þœr
upplýsingar, sem glansandi sölubœklingar hafa að
geyma. Segja má, að þessar upplýsingar séu nánast
aðeins til þess að vekja forvitni og áhuga lesenda, og
um frekari upplýsingar vísast beint til sölufyrir-
tœkjanna.
Að svo mœltu óskum við alls góðs um bílavalið.
VOLKSWAGEN (V-Þýskaland).
Umboð: Hekla hf., Laugavegi 170, sími 21240.
Hinn upprunalegi Volkswagen, sem nefndur er ,,The Beetle", eða
Bjallan, er í flestum aðalatriðum eins og hann hefur verið. Hann er að
vísu framleiddur í tveim gerðum, 1200 og 1200L. Þær eru eins útlits og
að öllu leyti eins byggðar, en L-tegundin hefur eitthvað vandaðri
innréttingu og meiri þægindi. Umboðið hér gefur samt aðeins upp verð
á 1200L, sem er 1.465.300.
VW GOLF er auglýstur í 9 gerðum, með 2 eða 4 dyrum og mismunandi
stórum vélum, er auðvitað stærri og vandaðri bíll og fæst einnig með
sjálfskiptingu. Verð er frá kr. 1.760.000 til 2.157.000 eftir útfærslu.
PASSAT er auglýstur í 15 gerðum, 2ja eða 4ra dyra, með mismunandi
vélarstærðum, og verðið er frá 2.020.000 til 2.490.000 með aukagreiðslu
fyrir ákveðna liti, gátt aó aftan eða sjálfskiptingu.
AUDI er auglýstur í 12 verðflokkum, eða frá kr. 2.310.000 til u.þ.b. j
2.500.000 eftir vali um lit, sjálfskiptingu, vökvastýri o.fl.
Rétt er að taka fram, að GOLF, PASSAT og AUDI eru með vélina að
framan og hafa framhjóladrif. AUDI er auðvitað þeirra vandaðastur,
enda sýnir verðið það, og hefur að sögn verið mikið lagt upp úr öryggi í
byggingu hans. Má til gamans nefna, að AUDI 100 gerðin hefur
innbyggða vatnsskolun á framljós í framstuðurum.
Vikan prófaði VW Golf og birti niðurstöður í 48. tbl. síðasta árs.
t/ll/ÁM r* ----
J