Vikan - 10.02.1977, Side 9
★ ★ ★
\
„Pabbi."
,,Já, hvað nú?"
,,Það stendur hérna: Maðurinn
þekkist á því, hverja hann um-
gengst. Er það rétt pabbi?"
„Já."
„Jæja, pabbi, ef góður maður
umgengst vondan mann, er þá góði
maðurinn vondur, af því hann
umgengst vondan mann, eða er
vondi maðurinn góður, af því hann
umgengst góðan mann?"
★ ★ ★
,, Kvenfólk er heldur betur undar-
legt," sagði sá kvænti.
„Hvað er nú að, Mikki?"
,, Konan mín rak mig út í morgun
vopnuð kökukefli, og fór svo að
gráta af því ég fór án þess að kveðja
hana með kossi."
★ ★ ★
Hefurðu nokkuð, sem minnir á
lyktina í yfirfullum bar?
★ ★ ★
Sölumaður að norðan átti leið
um suðurfylki Bandaríkjanna og
ásetti sér að fá sér dreitil af
heimabruggi, sem hann hafði heyrt
mikið látið af. Honum tókst
fyrirhafnarlítið að ná sér t pott af
„hvítu eldingunni" og fór með
hana upp í herbergi sitt til að
smakka á miðinum. Einn sopi
reyndist nægja. Verra eiturbras
þóttist hann aldrei hafa bragðað á
æfi sinni. Hann fleygði því þó ekki,
en gaf það gömlum Surti, sem ekið
hafði honum um borgina. Daginn
eftir spurði hann gamla negrann,
hvernig honum hefði líkað drykkur-
inn. „O, hann var alveg mátulegur.
Já, sir, alveg nákvæmlega mátu-
legur." „Hvað áttu við með „alveg
mátulegur"? spurði sölumaður.
„Jú, herra minn hann var alveg
mátulegur, því hefði hann veriö ögn
betri, hefðir þú ekki gefið mér hann,
og hefði hann verið ofurlítið verri,
hefði ég ekki getað drukkið hann."
V
★ ★ ★
J
í NÆSTU VIKU
INGUNN EINARSDÖTTIR
„Sumir eru náttúrlega á móti iþróttum og þá kannski
líka íþróttafólki. Þeim finnst þá alltof mikið gert fyrir
íþróttafólk, en það finnst okkur aftur á móti ekki.
Fjárveitingum til íþróttamála er sniðinn ákaflega
þröngur stakkur.” Þetta segir Ingunn Einarsdóttir
frjálsíþróttakona m. a. i viðtali, sem birtist í næsta
blaði. Allir, sem eitthvað fylgjast með íþróttum,
kannast við Ingunni, sem sýnt hefur miklar og
stöðugar framfarir og var í öðru sæti hjá iþrótta-
fréttamönnum, þegar þeir völdu íþróttamann ársins
1976.
SPRELL EÐA ALVARA?
Hvort skyldi nú vera meira þroskandi og menntandi að
sitja í tímum og teyga viskuna af vörum kennaranna
eða setja upp leikrit sjálfum sér og öðrum til ánægju?
Er leiklist í menntaskóla bara sprell, eða er einhver
alvara á bak við? í næstu Viku er leitast við að svara
þessari spurningu að einhverju leyti. Við fylgjumst með
nokkrum nemendum í Hamrahlíðarskóla. sem um
bessar mundir sýna ævintýraleikinn Drekann eftir
Évgení Schwarts, en hann er einnig höfundur
Rauðhettu, sem vestmannaeyingar sýna, og ösku-
busku, sem fært er upp á Akureyri.
PRJÖNUÐ OG SAUMUÐ
BARNAFÖT
Það er alltaf gaman að hafa eitthvað létt á prjónunum,
eða til að sauma, og í næsta blaði birtum við uppskriftir
og snið af einföldum, þægilegum og einstaklega
snotrum barnafatnaði. Þar verða nákvæmar leiðbein-
ingar um prjónaskap á peysum, húfum og buxum og
saumaskap á kerrupoka eða svefnpoka, buxum,
skyrtum og svuntum ásamt tilheyrandi sniðteikning-
um. Lesendur eru alltaf að biðja um handavinnuefni í
Vikuna, og við gerum okkar besta.
TONY CURTIS
SEM CASANOVA
Hið fræga kvennagull Casanova er viðfangsefni
tveggja kvikmyndaleikstjóra, þeirra Fellinis og Franz
Antel, en myndir þeirra verða víst býsna ólíkar.
„Casanova & Company” heitir mynd Antels, og í henni
ferTony Curtis með aðalhlutverkið. Tony Curtis er sem
sagt enn að leika hjartaknúsara, þótt hann sé kominn
yfir fimmtugt, en þetta er hundraðasta myndin, sem
hann leikur i. Það segir nánar af kvikmyndinni og þó
einkum Tony sjálfum i næsta blaði.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson, Þórdís Arnadóttir. Útlitsteiknari: Þorbergur Knstinsson.
Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing
í Síðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega, kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 13.650 í órsósknft. Ásknftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ógúst.
6. TBL. VIKAN 9