Vikan - 10.02.1977, Page 13
Mamma,
af hverju slœrðu
ekki óalgengar, ósamkomulag er
oft milli hjónanna, og oft er áfengi
með í spilinu...
— Lögreglan finnur oft börn á
slíkum heimilum, sem búa við
algjörlega óviðunandi aðstæður.
Þeir senda skýrslu til barna-
verndarráðs. Við rannsökum mál-
ið nánar, segir barnaverndarráðs-
formaðurinn, — og þá kemur það
fyrir, að við verðum að grípa inn í,
hafa t.d. eftirlit með heimilinu.
Stundum verðum við að koma
börnunum annars staðar fyrir. Það
kemur líka fyrir, að lögreglan
verður að taka börnin með sér
strax og koma þeim fyrir á
barnaheimilum okkar, kannski
bara yfir eina nótt.
Það var /jótt að sjá sjö
ára barn háöskrandi.
— Tekur barnaverndarráð börn
frá móður sinni með valdi? Við
lásum í Oslóarblöðunum um móð-
ur, sem var meðlimur í ofsatrúar-
samtökum. Börnin hennar þrjú,
7—9 ára, áttu ekkert fast heimili,
fengu ekki læknishjálp og fóru
ekki í skóla. Tvö eldri börnin fylgdu
móður sinni af fúsum og frjálsum
vilja, en yngsta barnið mótmælti
fullum hálsi...
— Já, það leit ekki fallega út í
blöðunum, þegar fulltrúi okkar bar
barnið öskrandi út. Það var skelfi-
legt fyrir þann sem neyddist til
þess. Okkur fellur illa að láta segja
svona frá, eins og blöðin útmál-
uðu allt saman.
— Það er erfitt að vita, hvernig
bregöast skuli við slíkum vanda-
málum. Það er barninu fyrir bestu
að vera hjá foreldrum sínum, og
við reynum að stuðla að því í
lengstu lög. í umræddu tilfelli
vorum við búin að bjóða móður-
inni íbúð á fjölskylduheimili, hún
afþakkaði boðið. Að lokum var
ekki um annað aö velja en koma
börnunum á barnaheimili, þangað
til móðirin fengi sér samastað.
— En er barnaheimili rétti
staðurinn fyrir óhamingjusöm
börn?
— i svona neyðartilfellum verða
þau að fara á barnaheimili. Ef um
lengri tíma er að ræða, reynum við
að útvega fósturheimili fyrir þau.
Það er auðvelt, þegar um yngri
börn er að ræða, en það er
erfiðara að koma unglingunum
fyrir. Þeir skapa meiri vandamál,
eiga við erfiðleika að stríða og
skapa fósturforeldrum sínum
vanda. Stundum gefast þeir upp,
og við verðum að finna nýtt
heimili.
— Slíkir unglingar eru svo illa
farnir sálarlega, að erfitt er að
vista þs á stofnunum. Við viljum
líka gjarna, að börn séu á fóstur-
heimilum, vegna þess að börnum
líður best á venjulegum heimilun,
og oftast gengur þetta vel.
— Hvernig eiga góðir fóstur-
foreldrar að vera?
— Fullorðnar, sjálfstæðar
manneskjur, og ástúðlegar. Og
sem kunna að halda aga...
Eins og hafís,
meiri hlutinn í kafi.
— Það er sagt að börnum sé
misþyrmt, án þess að upp komist.
— Því er líkt við hafísjaka:
Meiriparturinn sést ekki, það litla
sem við sjáum er bara toppurinn,
sem stendur upp úr hafinu. Eftir
því sem mér skilst á læknum, er
ástæða til að ætla, að miklu meira
sé um misþyrmingar á börnum en
upp kemst. Það er óskemmtilegt
að kæra foreldra fyrir stíkt. Lækn-
irinn gerir það ógjarnan, hann
kynni að hafa á röngu að standa.
En það versta er þó, að foreldrarn-
ir þora ekki að leita læknis, svo að
barnið verður að bera sitt mein.
Kannski varanlegan heilaskaða.
— Er ekki algengt, að barnið fái
taugaáfall og sálarheill þess sé í
hættu.
— Andleg misþyrming á barn-
inu er fyrst og fremst afleiðing
óöryggis, ótryggöar, vansældar
og ósamkomulags milli foreldr-
anna, þannig að barnið líður
mikið. Slík misþyrming er á öðru
sviði og erfiðari við að fást.
Venjulega tekur maður ekki eftir
neinu, fyrr en barnið fer að hegða
sér afbrigðilega. Stundum verður
vart við slíka erfiðleika hjá börnum
í leikskólum og á dagheimilun, en
það er þó venjulega fyrst þegar
barnið hefur skólagöngu og þarf
að uppfylla vissar kröfur, að í Ijós
kemur, að það á við erfiðleika að
etja. Það er áríðandi að ná sem
fyrst í þessi börn og ekki síður
foreldra þeirra og hjálpa þeim.
Er maður skyldugur að ti/kynna,
e! barni er misþyrmt
— Próressor Bratholm var með
athygligverða tillögu í sjónvarpinu
um, að eftirlit væri haft með öllum
heimilum, þar sem börn eru.
Sumum kann að þykja nokkuð
langt gengið, en væri það nokkurð
annað en að hjúkrunarkona geng-
ur í hús og skoðar nýfædd börn til
að gefa ráð og leiðbeiningar.
Kærkomin heimsókn fyrir marga,
sem eru óöruggir með sitt fyrsta
barn til dæmis. Hvernig væri að
auka starfssvið hjúkrunarkonunn-
ar? Hún á tiltrú fólks, og ég held
að flestir yrðu ánægðir með að fá í
heimsókn hlutlausan aðila, sem
gæti gefið ráð af öryggi um allt,
sem að þroska barnsins lýtur.
Reynd hjúkrunarkona myndi kom-
ast að því, ef um erfiöleika væri að
ræða, og gæti veitt aðstoð.
— Ættu ættingjar, vinir eða
nágrannar að segja frá, ef þeir
verða einhvers vísari?
— Fyrst og fremst eiga læknar
að láta vita, ef þeir hafa grun um,
að barni hafi verið misþyrmt. Það
er ekki nóg að veita barninu
læknishjálp og senda það svo
heim, það hendir oft, að barninu
er misþyrmt á ný. Svo lætur lög-
reglan vita, þegar þeir eru kallaðir
á heimilin. í þriðja lagi getum við
reiknað með „öðrum", en það eru
nágrannar.og nánasta fjölskylda.
Það er erfit^t að skylda menn til að
tilkynna slíkt, en ég tel það skyldu
hverrar mþnneskju að tilkynna
misþyrminpu í börnum. Barna-
verndarráð verður að athuga allar
aðstæður. Við byrjum oft á því að
skrifa foreídrunum, sumir bregð-
ast illa við, sem kannski er ekkert
einkennilegl. Það hendir líka, að
nafnlausar ttlkynningar eru sendar
okkur að óhugsuðu máli, við
tökum meina mark á því, þegar
fullt nafn er gefið upp í slíkum
tilfellum.
Örvæntingarfullir foretdrar,
sem var misþyrmt i æsku...
— Er hægt að gera eitthvað til
að fyrirbyggja, að börnum sé
misþyrmt?
Það er mikilvægt, að foreldrar
geti leitað á einhvern ákveðinn
stað, allan sólarhringinn, það er
góð reynsla af slíkum miðstöðv-
um. Það er afskaplega mikilvægt
að hafa einhvern til að tala við, þó
það sé bara í síma, þegar taugarn-
ar eru að gefa sig og allt virðist
vera vonlaust. Við erum með slíka
símavakt. Þegar það er orðið vel
kynnt, hefi ég trú á, að margir
þeirra, sem í örvinglan misþyrma
börnum sínum, muni hringja til
okkar að leita hjálpar. Oftast er
þetta mjög óhamingjusamt fólk.
Það er eins og það gangi í arf, að
margir, sem hlutu misþyrmingu
sem börn, misþyrma sjálfir sínum
börnum — þó að fyrirfram væru
þeir ákveðnir í að „svona skal mitt
barn ekki þurfa að líða, ég fékk að
kenna á því, hve skelfilegt það
er". En það er mikið að, þegar þeir
misþyrma, án þess að vilja það.
Þess vegna er svo áríðandi að ná
sambandi við þessa foreldra og
veita sálfræðilega aðstoð — einn-
ig þeirra sjálfra vegna.
M * *