Vikan - 10.02.1977, Blaðsíða 45
eftir íslenskan höfund »
Bœði ættingjar Emils og hennEir
eigin reyndust henni eins og best
var á kosið. Foreldrar hans fengu
henni umráð yfir húsinu í Wash-
ington, sem þau Emil ætluðu að
búa í. Og eftir að hafa selt það er
henni ekki fjár vant. En gleði finnur
hún hvergi.
Það var Douglas Cramer læknir,
sem ráðlagði henni að takast þessa
ferð á hendur. Og hún sér ekkert ráð
vænna en að reyna það. Ef til vill
gerir það henni gott að breyta um
umhverfi.
Hún dvaldi á Sundale til apríl-
loka, þá fór hún norður til Winnipeg
og var þar í mánuð. Reyndar
hresstist hún töluvert við dvölina
þar. Hún heimsótti sína gömlu
vinkonu Kate O’Mallory og óbilandi
glaðværð hennar og bjartsýni gerði
Gróu mikið gott. Kate leggst alltaf
eitthvað til. Eftir að hún hætti að
vera vændiskona og giftist Stuart
sínum hefur hún ofan af fyrir sér og
öðrum með þvi að lesa í spil og segja
fyrir um framtíð fólks. Og nú er
straumur virðulegra kvenna og
fagurra yngismeyja að húsinu henn-
ar. Þær eru ekki síður áfjáðar í að
njóta þjónustu hennar, en karl-
mennirnir voru áður.
Gróa spurði hana, hvort hún sæi
nokkra framtíð hjá sér og Kate lét
hana draga nokkur spil úr bunka.
Svo rýndi hún í þau nokkra stund,
raðaði þeim upp og sagði:
,,Það eiga þrír menn eftir að
koma mikið við sögu i lífi þínu, mín
kæra. Einn þekkirðu, en hefur ekki
séð lengi, hann er ungur. Annar er
gamall maður, langt í burtu og ber
þungar byrðar. Sá þriðji er á barns-
aldri ennþá, þú átt eftir að veita
honum mikla hamingju. Ég sé ekki
betur, en þú eigir eftir að dvelja
undir sama þaki og þeir allir þrír.”
Gróa brosir i kampinn að þessum
fáránlega spádómi, hún er ákveðin í
að lifa og dqyja ein síns liðs og
einbeita sér að kennslustörfum.
Eftir að hafa kvatt vini sína í
Kanada fór Gróa til New York og
steig um borð i skip á leið til
Islands. Þetta er nýtt íslenskt skip
og ber nafnið Goðafoss. Það siglir
beint frá New York til Reykjavíkur,
þannig að Gróa má búast við að
verða skemur á leiðinni, en þegar
hún fór frá fslandi.
Fyrstu dagana um borð heldur
hún sig mikið neðan þilja og
blandar lítt geði við samferðafólk
sitt. En brátt fer hún að gefa sig að
hinum farþegunum og vera meira á
ferli.
Snemma morguns stendur hún á
þilfari og horfir yfir ólgandi hafið.
Þá er hún skyndilega ávörpuð á
ensku:
,,Er þetta ekki Gróa litla úr Oak-
street?”
Hún snýst á hæli og stendur
frammi fyrir ungum manni, sem
hún hefur nokkrum sinnum séð
bregða fyrir i matsalnum. Hún
virðir hann fyrir sér með undrun en
kannast ekkert við svip hans. Hann
horfir í augu hennar og bros færiat á
andlit hans. Og um leið þekkir hún
hann. Þetta er Kjeld Jensen.
,,Er þetta raunverulega þú?”
spyrhúnundrandi. ,,Allir héldu, að
þú hefðir fallið í stríðinu eins og
Kaj. Og foreldrar þínir seldu húsið
ykkar og fóru til Danmerkur. Hvað
i ósköpunum ertu að gera hér?”
Kjeld brosir sínu gamalkunna
brosi. Hann er á leið til Danmerkur
til að hafa upp á foreldrum sínum.
Um leið ætlar hann að nota tæki-
færið og skoða sig um í höfuðstað
fslands í nokkra daga.
Hann segir Gróu ýmislegt af
sinum högum frá því leiðir þeirra
skildu fyrir hálfu áttunda ári.
Þeir bræður höfðu i fyrstu verið
með herdeild sinni í Frakklandi og
þar féll Kaj við Verdun í nóvember
1916. Skömmu áður höfðu þeir
bræður orðið viðskila og Kjeld frétti
ekki hið sanna um örlög bróður síns
fyrr en að stríði loknu. Sjálfur fór
hann með félögum sínum til Belgíu
og í október 1917 var hann við
Passchendale, þar særðist hann og
féll í hendur þjóðverja. Þeir héldu
Missið
«ekki
fótanna
§ »
0 Stáltáhetta
0 SvamptápúAi
0 Ytri sáli
0 HlifAarbrún
OVatnsvarAir
reimkrókar
I — .
labeur
■r
Ih
O SvamppúAi
© FóAur
O YfirleAur
O Hælkappi
O Sterkur blindsóli
© llstoA
Nýjor
gorði
illegra
Jallatte öryggisskórnir
Ivéttir og liprir. LeóriO sérstaklega vatnsvariö. Stálhetta yfir tá.
Sólinn soðinn án sauina. Þolir hita og frost.
Stamur á is og oliublautum gólfum
Hagstætl verft — Sendum um allt land.
Dynjandi sí:
SOFTAHE
Þolir
25 þúsund
Wolta
spennu
Skéifunni :ill ' Kcykjavik
Simar íi 26-70 & li-26-71
JALLATTE S.A.
Bifreiðaeigendur
Látið ekki salt, tjöru og önnur óhreinindi skemma bif-
reiðina.
Við hreinsum og bónum bilinn meðan þér biðið.
Vel hirtur bíll eykur ánægju eigandans.
Bón og þvottastöðin,
Sigtúni 3, simi 84850.
6. TBL.VIKAN45