Vikan


Vikan - 10.02.1977, Síða 46

Vikan - 10.02.1977, Síða 46
STJÖRNUSPÁ llrúlurinn 2l.mar\ 20. april Það skiptir afar miklu, að þú um- gangist rétta aðila i vikunni, því að þú ert dálítið veikur fyr- ir þessa dagana og gœtir látið stjórnast af illgjörnum mönn- um. NauliA 2l.april 2l.maí Þér gefast mörg tœkifæri, einkum til þess að vinna þér inn aukaskilding, og þau skaltu nota, því að líkur eru á því, að þú munir þarfnast mik- illa peninga á næst- unni. 1 \ihurarnir 22.mai 2l.júni Eitthvað, sem þú gerir á vinnustað, veldur misskilningi, og skaltu reyna að sýna viðkomandi að- ilum fram á, að þú hafir gert það í góðri trú. Heillatala 5. krahhinn 22.jiifii 2J.júli l/jóniú 24.júli 2l.ái<úsl >lc)jiin 24.áiliisl 2J.scpl. Þú reiðist vini þínum í vikunni, en sann- leikurinn er sá, að þú hefur hann fyrir rangri sök. Þótt und- arlegt megi virðast, styrkir þetta aðeins vináttubönd ykkar. Þú skalt ekki vera hræddur við að ráð- ast í ný verkefni, þvi að allt nýtt virðist einmitt leika við þig í þessari viku. Þig hef- ur skort sjálfsgagn- rýni að undanförnu. SlcinUcilin 22.dcs. 20.jan. Þú átt í einhverju stríði við umhverfið þessa dagana, og verður það til þess að þú nærð ekki að sinna ýmsu því, sem þér er nauðsynlegt að sinna. Heillalitur gulur. Þér var lofað einhverju fyrir skömmu, en nú verð- ur þú fyrir einhverj- um vonbrigðum, því að það verður ekki staðið við þetta lof- orð, nema að hálfu leyti. Sporódrckinn 24.okl. !!.Vnó\. Vikan er nokkuð var- hugaverð í fyrstu, einkum er það einn veikleiki þinn, sem gæti orðið til þess að þú kemst í slæma klípu. Þú verður að berjast einn i þessu. \iilnshcrinn 21.j;in. lú.fchr. Það gengur á ýmsu í þessari viku. Þú virðist venju fremur uppstökkur og önug- ur, og stafar það líklega af því að þú varðst fyrir einhverj- um vonbrigðum í vikunni sem leið. Þú ferð liklega i skemmtilegt sam- kvæmi í vikunni, þar sem þú kynnist manni, sem gæti haft mikil áhrif á líf þitt, ef þú kynntist honum svolítið bet- ur. Hoitiiiadiirinn 24.nó%. 21.dcs. Vikan virðist mjög hentug til þess að leggja út í ný ævin- týri — ferðalög, sem farin verða í vikunni, verða afar skemmti- leg, og ekki ætti Amor að bregðast elskendum. I iskarnir 20. fchr. 20. mars Heima við gerist dá- lítið skemmtilegt í sambandi við stór- viðburð í fjölskyld- unni. Þú hefur van- rækt eitt skyldustarf þitt að undanförnu og verður að bæta úr því. honum föngnur? til stríðsloka, en þá var honum sieppt ásamt fjölda annarra. Síðan var hann á flækingi um Evrópu og komst meðal annars til Rússlands, þar sem hann heill- aðist mjög af kenningum byltingar- manna. Eftir þennan flæking tók hann að hugsa til heimferðar, en bréf hans komu til baka með áritun um, að fólkið væri flutt burt og enginn vissi hvert. Til Ameríku kom Kjeld aftur snemma árs 1920. Síðan hefur hann dvalist lengst af í New York, og unnið ýmis tilfallandi störf. Síðast- liðna mánuði hefur hann verið fréttaritari við kvöldblaðið Journal í New York. Gróa segir honum líka eitt og annað af sinum högum. Hún finnur innilega samúð hans og vináttu, er hún segir honum frá Emil og dauða hans. Og það er henni mikil raunabót, að hafa fundið þennan góða vin sinn að nýju. Er skipið kemur til Reykjavíkur fara þau Kjeld og Gróa saman upp i bæinn. Þau fá inniá Hótel Islandi og þar ætla þau að dvelja í nokkra daga. Gróu tekst fljótlega að ná sam- bandi við Þóreyju frænku sína á Sauðárkróki og boðin velkomin þangað við fyrsta tækifæri. Hún ákveður að fara með skipi, því það er henni mun léttara en ferðast landveg. Á meðan hún bíður eftir strand- ferðaskipi og Kjeld bíður fars til Danmerkur eyða þau tímanum sam- an við að skoða höfuðstaðarlífið á íslandi og þykir þeim það allkátlegt og ólikt því, sem þau eiga að venjast. Þau njóta saman þeirra skemmtana, sem boðið er uppá. Það eru tvö bíó á staðnum auk annarra Kveikjuhlutir í flestar tegundir bíla og vinnuvéla HLOSHI? Skipholti 35 Simar: B 13 50 verilun 8 13 51 verkstæði B 13 52 skritstota D menningarstofnana og samkomu- staða. Þótt þeim þyki gaman að dvelja með öðru fólkið i gleðskap, þá njóta þau þeirra stunda best, sem þau eiga tvö ein. Þau fara i gönguferðir þegar vel viðrar og spjalla saman, eins og tveir mjög góðir vinir best geta. Það er eins og eðlilegt og sjálfsagt, þegar Kjeld tekur Gróu í faðm sér eitt kvöldið og kyssir hana heitum kossum. Hún finnur að vísu ekki til þeirrar tilbeiðslu-hrifningar, sem Emil vakti með henni, en í faðmi Kjelds finnur hún til öryggis og hlýju. Hún býst við, að þvi sé svipað varið með Kjeld. Hann hefur sagt henni frá þýsku hjúkrunar- konunni, sem hann heillaðist af, er hann særðist í stríðinu. Hennar vegna sneri hann ekki strax heim að striði loknu, heldur flæktist um Evrópu í leit að henni. Reyndar komst hann á slóð hennar, en þá var hún gift, svo hann lét staðar numið og fór í þess stað til Rússlands með enskri hersveit. Er skilnaðarstund þeirra Gróu og Kjelds rennur upp hafa þau heitið hvort öðru því, að hafa samband sín á milli, þegar þau komi aftur vestur um haf. Þau kveðjast með söknuði og halda hvort til sinnar áttar. Gróu er vel fagnað á heimili Þóreyjar og Andrésar og þar dvelur hún í góðu yfirlæti um skeið. Hún segir Þóreyju, að sig langi til að komast að faðerni sínu og spyr, hvort hún viti nokkur deili á því. Þórey segir, að faðir hennar hafi heitið Jón og verið bóndi á Vallholti í Hlíðarhreppi, þegar hún fæddist, en fáum árum síðar hafi hann selt jörð sína og flutt burtu og hún veit ekkert. hvað af honum hefur orðið. Halla er dáin, svo ekki er hægt að spyrja hana og Gróa er litlu nær um uppruna sinn. Frá Þóreyju fer hún landveg um fjöll og dali, fyrst í bíl og svo á hestum heim að Gili. Henni finnst, að hún hverfi aftur í aldir, er hún kemur heim í fæðingar- sveit sína. Þótt ekki séu nema 17 ár síðan hún fór hafa þau verið henni svo viðburðarrík, að þau eru sem óratími. Nú gengur hún hér um hlað og varpa, þar sem hún skreið og veltist sem ósjálfbjarga barn. Hún heyrir fuglasöng, finnur lykt af nýslegnu grasi og horfir yfir gamal- kunnugt landslag, hrjóstrugt og gróðurrýrt. I hjarta hennar skiptist á fögnuður og tregi. Þótt umhverfið sé hið sama og áður, þá er fólkið henni framandi og hún er í þess augum útlendingur og einkennileg. 46VIKAN 6. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.