Vikan


Vikan - 10.02.1977, Side 57

Vikan - 10.02.1977, Side 57
ANDERS TUXEN: ÁFENGI TIL GÓÐS OG ILLS Fóstrið verður jafn ölvað og móðirin Það er staðreynd, að fóstrið verður nákvæmlega jafn ölvað og móðirin. Skýringin er sú, að allt áfengi, sem maður drekkur — sama hvort um öl, létt vín eða sterk er að ræða — fer frá maga og þörmum út í blóðið. Áfengið berst með blóðinu út um allan líkamann og í lifrina, sem brennir áfengið meö ákveðnum hraða. Það tekur um það bil 1 1/4 klukkutíma að eyða áfengis- magni í einni bjórflösku eða einum snafs. Blóð ófrískrar konu — og áfengið með, ef hún hefur neytt þess — berst auðvitað líka til legsins, þar sem fylgjan er. Þar liggur blóðrás móður og fósturs mjög þétt saman, en þó aðskilið. Það er ekki sama blóð hjá móður og fóstri. Fylgjan vinnur efni úr blóði móðurinnar fyrir blóð fóstursins, þannig að næringarefni og súrefni fari inn í blóðrás fóstursins. Úr- gangsefni fara svo aftur frá fóstr- inu út í blóð móðurinnar, sem hreinsar þau ásamt eigin úrgangs- efnum gegnum nýru og lungu. Fylgjan lætur ekki hvaða efni sem er fara til fóstursins, sumum er afneitað, öörum ekki. Fyrirfram getur maður ekki vitað með vissu, hvernig eitthvert ákveðið efni muni haga sér. Fylgjan hefur tilhneigingu til að láta efni með smáar sameindir fara óhindrað til fóstursins. Áfengið er einmitt slíkt efni, og það fer óhindrað framogtil baka, þannig að móðirog fóstur eru nákvæmlega jafn ölvuð. Ef móðirin — nú og faðirinn einnig — eru ölvuð þegar getnað- ur á sér stað, hefur það aftur á móti engin áhrif, því bæði eggið og sæðisfruman hafa myndast fyrir löngu, og það er enginn fótur fyrir því, að áfengi hafi áhrif á samruna eggs og sæðisfrumu. Hins vegar eru fyrstu vikurnar eftir getnað hættulegur tími fyrir fóstrið. Þá er eggiö að skipta sér, og þá þegar myndast fyrsti vísirinn að öllum aðal líffærakerfum lík- amans. í sambandi við þetta má nefna, að ef fóstrið er stúlka, myndast þegar á þessum fyrstu vikum ekki aöeins eggjastokkarn- ir, heldur líka eggin, sem einni kynslóð síðar, þegar hún er full- orðin, verða hennar börn. Meö öðrum oröum: Óheppileg áhrif á fóstrið á meðgöngutímanum geta ekki einasta skaðað hið ófædda barn, heldur kannski líka barna- börnin. Við höfum mörg dæmi um svona skaðleg áhrif, en þekktust eru þau örkuml, sem lyfið Thali- domid olli, en það lyf var í notkun kringum 1960. Það efni fór úr blóði móðurinnar yfir til fóstursins og gerði skaða, en það gerir þó aðeins skaöa á fyrstu sex vikunum — þegar hendur og fætur mynd- ast — annars er efnið meinlaust. Við vitum líka, að konur sem reykja eignast minni börn heldur en þær konur, sem ekki reykja. Það er þó tæplega sjálfu nikó- tíninu að kenna, heldur kolvetna- innihaldi reyksins. Hann fer nefni- lega líka frá blóði móðurinnar til fóstursins og bindur sig rauðu blóðkornunum, sem flytja súrefn- ið, og hefur þetta þau áhrif, að fóstrið fær of lítið súrefni. C' 'lllll;!;! I !l|i II «1 Lifíð heil En ef við snúum okkur aftur aö áfenginu, þá veröur að segjast, að ekki er ástæða til að óttast, að áfengi í litlum mæli skaði fóstrið. Ófrískar konur geta því kvíðalaust leyft sér að dreypa á víni við hátíðleg tækifæri. 6. TBL. VIKAN 57

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.