Vikan


Vikan - 10.02.1977, Page 61

Vikan - 10.02.1977, Page 61
inum. Hann var hugrakkur maður og sterkur á taugum. En það var sama hvað hann gerði. Hver skrifstofumaðurinn á fœtur öðrum reyndi hæfni sína. Majorinn veðjaði viskiflösku, að gildran kæmist í lag. Majorinn og allt starfsfólkið sat kringum borðið langt fram á dag, en gildran haggaðist ekki. Þau flettu viðskiptaskránni, en gátu ekki fundið framleiðanda músagildrunnar. Það var þó nokkur fjöldi slíkra verksmiðja í Englandi, en enginn gaf upp, að framleitt væri undir merkinu „Skjótur dauðdagi”. Klukkan þrjú sótti major Brown viskiflösku og ískaldan sóda og sagði: — Gjörið svo vel herrar mínir. Major Brown sagðist skyldi taka málið í sínar hendur og afgreiða það sem fljótast. Major Townsend vissi að málinu var vel borgið í hans höndum. Einn af yngstu starfskröftunum sagði, að blökkumaður nokkur niðri í bænum framleiddi alveg sérdeilis góðar músagildrur, en hinir störðu skilningslausir á hann og önsuðu engu. Majorinn fór heim til sín, til Daisy sinnar, sem beið hans með góðan mat. Majorinn sagði, að nú væri málið komið í hendur réttra aðila, það tæki sinn tíma auðvitað að fá leiðréttingu þessara mistaka. hann var ekki í skapi til að ljúka við kaflann, og þegar hann læsti skrif- borðsskúffunni og sagðist ætla að taka sér hvíld um stund, kastaði Daisy sér um háls hans. Vifturnar gengu hljóðlaust, drykkurinn í kælinum ljúffengur, og það var unun að horfa á Daisy unga og ferska, hún var liðug eins og köttur, með glampandi augu, sæt, afskaplega sæt, og frú Towns- end var í öruggri fjarlægð í Engl- andi. Sólin gekk fljótt til viðar, og stjörnurnar blikuðu yfir sjónum, majorinn andvarpaði af vellíðan. Músafjölskyldan tísti inni í veggn- um. Þau eru svo indæl, ég sker ofurlítinn ostbita handa þeim, áður en við háttum, sagði Daisy. — Gerðu það, sagði majorinn vinsamlega. Dagar og nætur liðu. Major Brown var einmana og eyddi kvöld- unum og góðum hluta af nætur- svefni sínum til að ráða gátuna um músagildruna. Major Brown skildi ekkert í tækni, en aftur á móti var hann snillingur við að skrifa langar og nákvæmar frásagnir. Þegar hann hafði gert tilraunir með músagildruna í þrjá mánuði (það viðurkenndi hann siðar), skrif- aði hann langt bréf og sendi með músagildrunni til viðskiptamála- ráðuneytisins í London. Bréfið komst nokkuð fljótt á áfangastað. En það tók lengri tíma að fá pakkann afhentan, tollurinn taldi sig eiga að fá sex pence í toll, en það vildi ráðuneytið ekki greiða. Nú upphófust miklar bréfaskriftir og bréfin gengu fram og aftur á milli ráðuneytanna, og einhverra hluta vegna komst hermálaráðuneytið og lögreglan í málið. Scotland Yard fann það út, að þama væri eitthvað gruggugt á ferðinni og möguleiki væri í því, að pakkinn innihéldi rússneska vítis- vél. Maður, sem hvort sem var átti að hengja, var fenginn til að opna pakkann úti undir beru lofti gegn loforði um náðun, ef hann springi ekki i loft upp. Maðurinn batt hníf á langt skaft, skar á böndin og gegnum pappir og kassa og aftur pappir. Og þarna lá svo músagildran í grasinu og var bara ósköp venjuleg, lítil gildra, og maðurinn slapp við gálgann og vár frjáls maður. Tollurinn sendi reikning upp á sex pence til viðskiptamálaráðu- neytisins í Trinidad og afhenti músagildruna til ráðuneytisins í London eftir níu mánaða umstang, eða nákvæmlega ári eftir að major Townsend hafði afhent hana major Brown. En þar með var málið ekki komið i höfn. Deildarstjórinn í viðskiptamála- ráðuneytinu, sem átti að fjalla um málið, var nýr í þjónustu ráðu- neytisins. Hann var alveg ráðalaus og skildi ekki upp eða niður í neinu. Hann sendi síðasta bréfið frá tollin- um út í skjalasafn og stakk músa- gildrunni ofan í skúffu. Málið var ekki tekið upp aftur fyrr en tíu mánuðum síðar. Þá fékk deildar- stjórinn langt bréf fró major Brown, kurteislegt og mjög nákvæmt bréf, þar sem beðið var um að flýta málinu. Deildarstjórinn bað undir- mann sinn að ná í allt, sem að málinu lyti, og hann fann strax þykka möppu i skjalasafninu. Þetta var dálitið spennandi. Deildarstjóranum fannst þetta eins og hver önnur íþrótt. Hann var fyrrverandi krikketleikari, en hafði orðið að hætta vegna meiðsla í hendi. Hann tók nú upp gildruna og fór að reyna, hvað hann gæti. Starfsfólkið kom líka og prófaði, og þau veðjuðu, hvernig fara myndi. Sumir reyndu að ýta með blýanti, aðrir með bréfahnífum og skærum. En músagildran stóð þarna upp- spennt, »g ekkert kom að gagni. Það var ekkert unnið ó deildinni þennan dag og ekki þann næsta heldur. Þriðja daginn sagði deildar- stjórinn: — Ég hata að þurfa að gefast upp, en herrar mínir, finnið framleiðandann. Þar með fór hann 1 mat. Næstu daga vann starfsfólkið við að fletta viðskiptaskránni og öðrum þykkum bókum. Eftir þriggja vikna leit hrópaði einn skrifstofumaðurinn sigri hrósandi. — „Skjótur dauð- dagi” framleitt í Birmingham. Músagildran ásamt löngu og hátiðlegu bréfi var nú strax send til verksmiðjunnar í Birmingham. (Framleiðsla: — 50000 músagildrur ó viku. Markaður: — Ailur heimur- inn). Forstjórinn kallaði í sinn hæfasta mann. Maðurinn hélt á músagildr- unni í hendinni, skrúfaði litla skrúfu með hinni, setti gildruna á borðið og ýtti létt við fjöðrinni með grönnum stálþræði. — Klapp, sagði hún. Forstjórinn tók sér um hjartað og sagði: — Úff, úff... — Það er aldeilis ekkert að henni, smellur, svo maður sér næstum blóðið gusast upp, sagði maðurinn. Forstjórinn hafði gaman af öllu sérkennilegu og lét setja músagildr- una og bréfið i glerkassa á skrif- borðið hjá sér. Hann gaf skipun um að senda þegar nýja músagildru til viðskiptamálaráðuneytisins í Lond- on, ókeypis. Viðskiptamálaráðuneytið i Lond- on sendi pakkann ófram til við- skiptamálaráðuneytisins í Trinidad, og Major Brown hringdi, strax og hann kom til majors Townsend, sem greip sólhattinn sinn og þaut af stað. Klukkan var ellefu fyrir hádegi, og það var óvenjulega heitt í veðri. I ráðuneytinu sat major Brown með nýja músagildru fyrir framan sig ó skrifborðinu, sveiflaði blýantinum og ýtti aðeins í gildruna. — Klapp, sagði hún og hjó í sundur blýant- inn, áður en majorinn náði að draga hann að sér. — Þetta er nú músagildra í lagi, sagði major Brown. — Verksmiðjur okkar framleiða einungis fyrsta flokks vöru, þó að einstaka óhapp geti átt sér stað, jafnvel á Englandi. Þú verður líka að viðurkenna, kæri major, að ráðuneyti okkar vinna óaðfinnanlega, auðvitað tekur það sinn tíma að koma máli í gegn, en árangur næst alltaf... — Alltaf, sagði major Townsend ákveðið. — Kvörnin malar örugg- TRAUST TOYOTA DIESEL 4 strokka 3000 ccm 85 ha dieselvél Towtu ir tninstur hill TOYOTA NYBYLAVEGI 10 KOPAVOGI SIMI 44144 6. TBL. VIKAN61

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.