Vikan - 10.02.1977, Page 71
DÖNSK SKINKUSTEIK MEÐ
EPLUM
Ca. 1 kg beinlaust svínakjöt
ca. 1 1/2 tsk. salt
1/2 tsk. svartur pipar
dál. engifer eða negull
1 súputeningur
2-3 dl vatn
1 dl þurrt hvítvín eða rauðvín
1-2 msk. rifsberjahlaup
kartöflumjöl.
Skerið pöruna á svínasteikinni í
rúður, eða fáið það gert í versl-
uninni. Setjið steikina á steikarrist
og setjið dál. vatn á botninn.
Steikið við 175° í ca. 1 1/2 klst.
Best er að nota steikarmæli.
Mælirinn á þá að sýna 85°, þegar
steikin er tilbúin. Vatninu ausið
yfir, þegar þurfa þykir. Soðið síað
í pott. Teningurinn settur saman
við. Vín og hlaup látið sjóða með
nokkrar mínútur. Jafnið sósuna.
Eplin soðin hálf í víninu, og má
gjarnan láta nokkrar rúsínur sjóða
með.
KARRYKJÚKLINGUR OG EPLI
1 kjúklingur
ca. 1 1/2 tsk. salt
dál. af hvítum eða svörtum pipar
ca. 1 tsk. madras karry
3-4 msk. smjör eða smjörlíki
1 hænsnasoðsteningur
3-4 dl vatn
2-3 epli
kartöflumjöl hrært út í dál. vatni
sítrónusafi og rifið hýði af sítrónu.
Skiptið kjúklingnum í 8 hluta,
saltið þá og piprið. Steikið karrýið
í smjörinu og steikið síðan kjúkl-
ingabitana upp úr því. Setjið síðan
í pott og hellið heitu kjötsoði yfir.
Látið krauma undir loki í ca. 25
mín. Flysjið eplin og fjarlægið
kjarnahúsin og skerið í þunna báta.
Látið þau síðan sjóða með síðustu
10-15 mín. Jafnið sósuna og setjið
sítrónusafann útí og kryddið
meira, ef yður sýnist svo. Berið
fram með soðnum hrísgrjónum
eða kartöflum.
FlN FRÖNSK EPLAKAKA
Deigið er tertudeig flatt út eða
mördeig. Fletjið út í aflanga köku
og skerið utan af köntunum.
Ræmurnar eru síðan settar upp á
kantana. En áður en deigræmurn-
ar eru settar á er gott að pensla
með vatni undir. Setjið flysjaða
eplabáta ofan á og penslið kant-
ana með sundurslegnu eggi. Strá-
ið perlusykri og söxuðum möndl-
um ofan á. Bakið við 200° í ca. 15
mín. Kíkið ekki í ofninn fyrstu 10
mínútur. Takið kökuna út og
penslið með aprikósumauki yfir
eplin. Látið aftur inn í ofninn í 5
mín. Kælið á rist.
6. TBL. VIKAN 71