Vikan - 24.03.1977, Page 10
- mf iMÍtl i\ \ \ lltrSl
- fisléttur og hlýr, fóðraður með dralon eða ull.
Ytra byrði úr vatnsvörðu nyloni, innra byrði úr bómull.
Hann má nota sem sæng og það fylgir honum koddi.
Hægt er að renna tveimur pokum saman og gera úr
þeim einn tvíbreiðan.
Gefjunar svefnpokinn
fyrir sumarið.
GEFJUN AKUREYRI
PÓSTIJRIW
SAMRÝMDAR VINKONUR?
Kæri Póstur!
Ég er hérna í vandræðum með
eina vinkonu mína. Sko, það
virðist vera, aö þegar ég yrði á
hana, þá er hún rokin upp í fússi.
En yfirleitt erum við mjög sam-
rýmdar. Hvað á ég að gera kæri
Póstur? Hvernig er skriftin, og
hvað lestu úr henni? Hvað heldur
þú að ég sé gömul? SúsíJ.
Samrýmdar vinkonur, sem geta
ekki talað saman? Hefurðu reynt
að yrða ekki á hana og sjá þá,
hvort hún situr ekki bara kyrr? En
svona í alvöru talað, hefurðu þá
ekki bara sagt eitthvað, sem særir
hana? Reyndu nú að tala við
þessa vinkonu þina í ein/ægni og
komast að því, hvort henni Hður
ekki bara i/la út af einhverju. Það
er svo oft /it/i dropinn, sem fyllir
bikarinn, kannski er það eitthvað,
sem angrar hana, og þá þarf að
tala varfærnislega við hana.
Skriftin er alveg prýðileg, og úr
henni má /esa traust/eika og mik/a
viðkvæmni. Þú ert á aldrinum
15-18 ára.
SPURT UM ABBA....
Elsku hjartans Póstur!
Viltu vera svo vænn að svara
örfáum spurningum.
1. Geturðu nokkuð frætt okkur
meira en við vitum um hljómsveit-
ina Abba?
2. Hvernig stendur á því, að
foreldrar mínir (annarrar stelpunn-
ar) eru svona hrædd um mig,
þegar ég er með strákum?
3. Hvað er hægt að gera til þess
að fita sig? Eru til aðrar aðferöir að
fita sig heldur en að éta kjöt?
4. Hvernig fara vatnsberi
(stelpa) og steingeit (strákur)
saman, og hvaða merki á best við
Ijónsstelpu?
5. Hvað merkja nöfnin Steinunn,
Bryndís og Rósa ?
Og svo þetta venjulega: Hvað
lestu úr skriftinni, og hvað heldur
þú, að ég sé gömul?
Tvær með Abba-æði.
1. Hvaö vitið þið um ABBA, og
hvað vitið þið ekki um ABBA? Í
stuttu máli sagt eru þau fjögur,
sem skipa hljómsveitina, Björn
Ulvaeus, Benny Anderson, Frida
Lyngstad og Anna Faltskog.
Meðal vinsælustu laga, sem
ABBA hafa sungið inn á plötur,
má nefna hið geysivinsæla lag
„Water/oo," „Dancing Queen"
og „Money, money, money."
Þetta er nú bara svona mála-
myndasvar, en allar frekari upplýs-
ingar um ABBA er að finna í
poppfræðiritinu 151. tbl. Vikunnar
1976.
2. Foreldrar eru nú bara einu
sinni svona, litlu stelpurnar þeirra
eru stundum of ungar til að vera
með strákum, og sennilega á það
við i þessu tilviki.
3. Kauptu þér eitthvert blað,
sem inniheldur efni um megrunar-
fæðu — og borðaðu siðan þver-
öfugt við það sem þar er gefið
upp.
4. Vatnsberastelpa og stein-
geitarstrákur geta virt hvort ann-
að, en hæpið, að náin kynni takist
vel. Hrútsmerkið á einna best við
Ijónsstelpu.
5. Nafniö Brynd/s merkir brynj-
uð dls. Steinunn er dregið af
orðunum steinn og unnur (alda).
Rósa er dregið af blómaheitinu rós
og hefur tiðkast a.m.k. slðan á 17.
ö/d. Ja, ef þú bara vissir, hvað
ég les úr skriftinni.... Ég held ég
geymi það hjá sjálfum mér. — Þú
ert svona 11-12 ára. Ruslafatan
þakkar fyrir matinn, sem þið
senduð.
FÓSTURNÁM 0. FL.
Kæri Póstur!
Ég vona að ruslakarfan ykkar,
hvað sem hún nú heitir, sé nýbúin
að borða, þegar þið fáið þetta
bréf. Þannig er nú mál með vexti,
að ég er svo agalega heimsk, að
ég veit ekki, hvað brókarsótt er né
lekandi. Hvað er það? Er það
hættulegt? Getur hver sem er
fengið hana? (Æ góði Póstur,
viltu nú vera svo vænn að svara
þessu, þó það sé kannski asnalegt
10 VIKAN 12. TBL.