Vikan - 24.03.1977, Page 21
það hélt ég mér við hugsjónina um
hina mennsku veru — að undan-
skildum litilfjörlegum atriðum”.
Hann þagnaði. Ég sat þögull og
horfði framan í hann.
,,Á þennan hátt hef ég haldið
áfram i samtals tuttugu ár — þar af
var ég níu ár í Englandi — og enn
þá hafa öll verk mín einhverja
eiginleika, sem tákna ósigur fyrir
mig, gera mig óánægðan og skora
á mig að reyna aftur. Stundum
tekst mér óvenjulega vel upp,
stundum mistekst mér, en aldrei
tekst mér að ná þvi marki, sem mig
dreymir um að ná. Nú get ég búið til
hinn mennska líkama, næstum
auðveldlega, svo að hann sé liðugur
og þokkafullur, eða digur og
sterkur; en oft koma fyrir vandræði
vegna handanna og klónna —
sársaukanæm líffæri, sem ég þori
ekki að ummynda of frjálslega. En
aðalerfiðleikar mínir eru vegna
hinnar fíngerðu ágræðslu og um-
myndunar, sem ég verð að fram-
kvæma á heilanum. Vitsmunirnir
eru oft einkennilega litlir með
óskiljanlegum gloppum. Og minnst
fullnægjandi af öllu er eitthvað,
sem ég get ekki fest hönd á,
einhvers staðar — ég get ekki sagt
um hvar — i aðsetri tilfinninganna.
Langanir, eðlishvatir, óskir, sem
eru skaðlegar fyrir /mennskt eðli,
allt er þetta einkennilegur, falinn
undirstraumur, sem skyndilega
streymir fram og gegnsýrir alla sál
verunnar með reiði, hatri eða ótta.
„Þér virtust þessar mannverur
mínar undarlegar og dularfullar,
strax og þú fórst að veita þeim
athygli, en i mínum augum eru þær,
um leið og ég hef búið þær til, óvé-
fengjanlega mennskar verur. Það er
eftir á, þegar ég fylgist með þeim,
að sannfæringin dofnar. Hvert
dýrseinkennið af öðru læðist upp á
yfirborðið og blasir við mér.... En
ég skal sigra síðar meir. I hvert
skipti, sem ég dýfi lifandi veru
niður í bað brennandi sársauka, segi
ég: I þetta sinn skal ég brenna burt
allt, sem dýrinu tilheyrði, i þetta
sinn skal ég búa til skynsamlega
mannveru á eigin spýtur. Hvað eru
tíu ár, þegar öllu er á botninn
hvolft? Maðurinn hefur orðið til á
hundrað þúsund árum”.
Hann var hugsi og skuggalegur.
,,En ég er að verða hraðvirkari.
Þessi púma mín...”
Eftir svolitla þögn sagði hann:
,,Og þeir breytast aftur. Jafn-
skjótt og hönd mín er tekin af þeim,
fer dýrsins að verða vart aftur, fer
dýrið að láta að sér kveða aftur....”
Enn var löng þögn.
,,Þú kemur þá mannverunum,
sem þú býrð til, fyrir í þessum
grenjum?” sagði ég.
„Þeir fara þangað. Ég sleppi
Fermingar-
myndatökur
í lit,
Svart hvítu
og
brúnum lit.
Myndatökur fyrir alla
fjölskylduna.
Passamyndatökur, tilbúnar
samstundis í svart/hvítu.
STÚDÍÓ
GUÐMUNDAR
Einholti 2 /Stórholt,
Sími 20900.
NÝTT - NÝTT
Lady símastóllinn
frá TM-húsgögnum
er algjör nýjung
Lady símastóllinn
er hægt að fá í fjölbreyttu
litaúrvali
HÚSGAGNAVERSLUN AÐ SÍÐUMÚLA 30 SÍMI: 868:
Eigum mikið úrval af
vönduðum húsgögnum
12. TBL. VIKAN 21