Vikan - 24.03.1977, Blaðsíða 53
Hengirúm
fyrir ungbarnið
Þessi skemmtilega vagga hangir í
grófum böndum í loftinu og er á
notalegri hreyfingu eftir því hvern*
ig barnið bröltir. Eins er létt fyrir
fóstruna að rugga henni til.
Vaggan er gerð úr sterku bóm-
ullarefni og hvítmáluðum sköft-
um, gluggarnir eru úr mjúku
plasti. Börn þurfa að sjá í kringum
sig, þeim líkar það betur en að
vera á kafi í vöggum sem ekki sér
út úr fyrir blúndum og skraut-
svæflum. Þið sjáið á myndunum,
hvernig vasarnir til endanna eru
notaðir undir ýmsar nauðsynjar, s.
s. pela, bleiur, túttur, klúta
o.s.frv.
Þessi vagga er gerð eftir
hugmynd Leenu Nokela, sem
hannaði hana fyrir sýningu bóm-
ullarvefnaðarfyrirtækja í Finnlandi.
Vaggan er þægileg og einföld og
byggð á reynslu liðinna kynslóða
af að hengja vöggurnar í loftið.
EFNI: Þið þurfið 3 m af 140 sm
breiðu grófgerðu bómullarefni,
(svipað og gallabuxnaefni, sem
hentar auðvitað ágætlega, ef það
er litarekta), og 15 X 60 sm af
glæru plasti. Þið mælið ut, hve
mikið þið þurfið af reipi til að
hengja vögguna upp (ca 3—4 m).
Þið þurfið 3 m af sköftum og 43 X
88 sm krossviðarplötu í botninn.
Athugið nú vel íeikningarnar og
öll mál, áður en bið hefjist handa.
Best er auðvitað að gera pappírs-
snið, áður en þið klippið efnið.
Athugið að sauma með grófum
tvinna og að grófleiki saumavélar-
nálarinnar sé í samræmi við efni
og tvinna.
Vaggan er saumuð úr tvöföldu
efni, með rennum fyrir sköftin,
sem eru skrúfuð saman og krókar
settir í þau, til að þræða í reipið.
Þið merkið fyrir gluggunum og
klippið út, brjótið inn brúnirnar og
smeygið plastinu á milli og saumið
fast.
Þrír vasar eru stungnir á efnið til
endanna.