Vikan - 24.03.1977, Blaðsíða 55
ira-
g einn brúnan
óvenjulegu ljósu systkini sín, var
súkkulaðibrún. Bæði Joao Luis og
Maria voru dökkir kynblendingar.
Hvernig gátu þau þá eignast tvö
hvit og eitt dökkt barn? Juracy var
ringluð, en sagði ekkert við Mariu
til að gera hana ekki órólega. Hugsið
ykkur, ef hvítu börnin tvö ættu
annan föður en dökka systirin.
Maria var áköf í að sjá börnin sin,
og Juracy tók þau í fang sér og
sýndi henni þau. Þríburamóðirin
varð furðu lostin. Tvö hvit börn!
Hvernig gat það verið? Þetta var
ómögulegt. Hin börnin hennar þrjú
voru dökk. Hvað myndi maðurinn
hennar segja? Hvað myndi hann
hugsa? Hún skildi ekki, hvernig
þetta hafði getað átt sér stað.
Arnold læknir var sóttur, og hann
sendi strax móður og börn á sjúkra-
hús. Börnin voru rannsökuð vand-
lega. Þau voru fullkomlega hraust
og heilbrigð. Húðlitur þeirra var
það eina, sem stakk í augu. Tvö
þeirra voru algjörlega hvít, en hið
þriðja hafði dökkan, kaffibrúnan
núðiit.
Joao Luis fékk taugaáfall, þegar
hann sá börn sín i fyrsta sinn. Þetta
var óhugsandi. Tvær dökkar mann-
eskjur gátu ekki eignast hvit böm.
Það þyrmdi yfir hann. Maria da
Dores, trygga eiginkonan hans,
sem hann hafði treyst svo gersam-
lega, var honum alls ekki trú. Það
var alveg augljóst. Betri sönnun
var ekki hægt að fá. Það voru
teknar blóðprufur til að fullvissa
hann um, að hann væri sá eini, sem
gæti verið faðirinn. Að lokum var
enginn vafi. Hann sannfærðist —
og varð hetja bæjarins. Bæjar-
félagið lofaði að greiða föt barnanna
og menntun, og að auki áttu þau að
fá mánaðarlegan styrk til annarra
útgjalda. Yfirmaður Joao Luis lét
hann fá helmings launahækkun.
Kinglaði þriburafaðirinn breyttist
úr reiðum og tortryggnum manni í
rigmontinn föður. Það var ekki á
hvers manns færi að framleiða þrjú
börn i einu? Og þar að auki með sitt
hvorn húðlitinn.
Þegar þríburarnir voru tveggja
vikna gamlir hafði engin breyting
orðið á litarhætti þeirra. Læknar
komu hvaðanæva að úr Brasilíu til
heimabæjar Mariu og Joao Luis
Carusru, til að sjá með eigin augum
og rannsaka þessar þrjár undraver-
ur. Þrátt fyrir miklar umræður um
arfgengi, uppruna o. s. frv. hefur
enginn ennþá getað komið með
fullkomið svar eða útskýringu á,
hvernig þetta gat átt sér stað.
Ein skýringin er sú, að kynblend-
ingar geti auðveldlega eignast börn
með mismunandi húðlit. Hinn
rikjandi dökki litur foreldranna
hefur þar af leiðandi erfst sterkt ti'.
elstu barnanna. Ef í báðum
foreldrunum ley nast erfðaeiginleikar
til bæði blárra og brúnna augna eru
25% likurá þvi, að þau geti eignast
barn með blá augu. Að tvö
barnanna fengu einnig ljósan húðlit
getur stafað af því, að margir erfða-
eiginleikar geta haft áhrif á húðina,
og litarhátturinn getur breyst,
þegar börnin eldast. En bláeygð
verða tvö þessara barna eflaust allt
sitt líf.
12. TBL. VIKAN 55