Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 5
Sófi
ogþrjú
innfelld
borð
Hér er prýðilega smekklegt og
þarft húsgagn í herbergi unga
fólksins. Þetta er sófi, en undir
honum má hafa þrjá kassa á
hjólum, sem ýmist má nota sem
borð og geymslur undir dót. Á
kössunum eru lok, sem auðvelt
er að lyfta upp. Sófinn og
kassarnir eru gerðir úr 19 mm
spónaplötum, sem eru límdar og
skrúfaðar saman. Takið fyrst
plöturnar, sem mynda bak-,
hliðar- og sæti og skrúfið síðan í
bak- og sætisplötuna, þær tvær
plötur, sem styrkja miðju sófans.
Setjið lista á brún sætisplötunn-
ar til að halda púðunum í
skefjum. Þegar gengið er frá
borð-kössunum, seftjið þá stýri-
lista undir lokið (16x22 mm), ca.
. 77
20 mm frá kanti. Skrúfið muþlu-
hjól undir og borið síðan gripgat
á lokið, ca. 25 mm í þvermál.
Púðalausnin er áberandi
snjöll. Til að halda púðunum í
skefjum eru þeir saumaðir eins
og ,,pylsur" (fimm og þrír) og
fylltir með frauðgúmmíi. Rétt er
að þvo fyrst efnið í púðunum til
að forðast, að það aflagist í
næsta þvotti.
Sápa og shampó í
sama dropa.
Doppeldusch
i steypibaðið
J.S. Helgason sf sími 37450
V0O
45. TBL. VIKAN 5