Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 50
Fururnála bað
jafn ómissandi
fæst um land allt
Heildsölubirgðir: Kristjánsson HF
Símar 12800 og 14878.
Sadolin
V0Bgge
&tegtrnaling
V,, *"<■«. bruo
>99olin
Síðumúla 15. Sími 33070
^H 'i'. m :
»/■ ■ ’ ^ /i
■S*: MíJXLI K BAD J
leiðinleg ár. Ástin hafði bliknað, og
Nelson gekk langar gönguferðir
einn síns liðs og starði löngunar-
augum út til hafsins.
Hann hafði þjónað föðurlandinu í
orrustum á hafinu í sautján ár — nú
var hann kominn á eftirlaun löngu
fyrir aldur. Hann hélt hálfum
launum, ogbrátt fór Frances — eða
Fanny, eins og hún var kölluð — að
kvarta yfir naumum fjárhag þeirra.
Til að láta timann líða las hinn
atvinnulausi kapteinn bækur um
hernaðarlist — nokkuð, sem kom
honum að góðu gagni síðar. En
hann þráði að komast burt — burt
frá leiðinlegu smábæjarlífinu og
burt frá konunni, sem hann hafði
gifst af viðkvæmni og haldlausri
ást. Og loksins fékk hann tækifærið
árið 1792. England fór i stríð við
lýðveldið Frakkland.
HIN GUÐDÓMLEGA EMMA
Nú var Nelson aftur á réttum
stað — yfirmaður á góðu skipi.
Einn af ungu sjóliðunum var Josiah
Nisbet, sonur Fannyar frá fyrra
hjónabandi. Stjúpsonurinn olli
Nelson miklum vonbrigðum, og
nokkrum árum síðar varð hann að
yfirgefa sjóherinn með vansæmd.
Skip Nelsons fékk skipun um að
slást í lið með Miðjarðarhafsflot-
anum. Á leiðinni suðureftir gengu
þeir á land á Spáni, og Nelson fékk
tækifæri til að sjá nautaat. Honum
fannst þetta fyrirlitleg iþrótt. ,,Ég
vildi óska, að nautabaninn hefði
líka hlotið bana af,” skrifaði hann
heim til föður sína, ,,— og ekki
aðeins vesalings skepnurnar.”
Skömmu eftir komuna til Mið-
jarðarhafsins var Nelson sendur í
opinberum erindagjörðum til kóngs
ins í Napoli. Hershöfðinginn taldi,
að Nelson kynni að vera sá rétti til
að sannfæra kónginn um, að hann
ætti að slást i lið með Englending-
um á móti Frökkum. En til að fá
aðgang að hirðinni varð Nelson
auðvitað að leita aðstoðar í breska
sendiráðinu hjá sir William Hamil-
ton. Þannig hitti hann konuna, sem
varð honum svo mikils virði i lífinu.
Emma Hamilton var þegar orðin
fræg — að endemum fyrir Iauslæti.
í undirheimum Lundúna var hún
þekkt sem hin „guðdómlega
Emma,” og i sóðalegum verslunum
i Soho gátu menn keypt klám-
fengnar teikningar af henni. Hún
hafði lifað ljúfu lifi, þegar hinn aldni
elskhugi hennar, sir William Hamil-
ton, gerði hana að eiginkonu sinni.
Nelson lét sig engu varða fortíð
Emmu. Fyrir honum var hún
fegursta kona heims, og auk þess
hafði móðurleg framkoma hennar
og reynsla sérstakt aðdráttarafl á
hinn tilfinninganæma mann, sem í
starfi sínu fékk aðeins að reyna
hörku og valdbeitingu. Hver var hún
svo þessi ,,guðdómlega Emma?”
HÚSHJÁLP OG HJÁSVÆFA
Emma Lyon var dóttir járns-
smiðs í Wales, og í æsku lifði hún
við sárustu fátækt. Hún byrjaði að
vinna sem húshjálp þrettán ára
gömul og fór skömmu síðar til
London. Þar lenti hún fljótlega í
klónum á ríkum glaumgosa, sir
Henry Fetherstonehaugh. Er hún
hafði verið ástkona hans i eitt ár,
var hún rekin á dyr, vegna þess að
hún vænti sín. Þar með hófst
eirðarlaust líf hennar sem einskonar
atvinnuástmey hinna ríku. Við
munum ef til vill áfellast slíkt líferni
í dag, en því má ekki gleyma, að
alveg fram á okkar daga áttu
fátækar konur ekki annað til að
selja en sinn eigin líkama.
Einn af þeim, sem lagði hug á
Emmu, var hinn frægi málari John
Romney. Hún varð eftirlætis fyrir-
sætan hans, og þar með lagði hún
grundvöllinn að þeirri ,,frægð,”
sem hún hlaut i hópi þeirra, sem
stunduðu hið ljúfa lif. Hún var
fyrirsæta á yfir þrjú hundruð
málverkum, og það var litið upp til
hennar sem fegurðardisar, þó með
vafasamt mannorð.
Þegar fundum þeirra Nelsons bar
saman, var hún gift Sir William
Hamilton, og í sögunni er hún
þekkt sem Lafði Hamilton. Sir
William áttaði sig fljótt á því, að
sem sendiherra við hirðina í Napolí,
gat hann haft mikil not af sinni
fögru, aðlaðandi konu. Hún varð
trúnaðarvinkona Mariu drottningar
og fékk smám saman viss pólitísk
áhrif.
Það var sjálfgefið, að Nelson félli
fyrir jafn fallegri og gáfaðri konu.
Eina samband hans við Fanny konu
sína voru bréf skrifuð i umhyggju-
sömum tón, þar sem hún áminnti
hann um að nota hlýja ullarsokka á
sjónum. En það var erfiðara að sjá
það fyrir, að Emma myndi elska
hinn veiklulega og dálítið hlédræga
sjómann, það sem eftir væri
ævinnar.
NELSON LÁVARÐUR -
ÞJÓÐHETJAN
Frá þessum tíma var Emma mið-
depillinn i lífi Nelsons. Hann var
eins oft með henni og hann gat, og
þegar hann barðist i sínum frægu
orrustum, bar hann mynd hennar á
brjósti. Honum lá í léttu rúmi, þó
samband þeirra yrði lýðum ljóst —
hann elskaði hana og vildi, að allur
heimurinn vissi það. Til allrar
guðsmildi var Sir William umburð-
arlyndur eiginmaður — hann var
50 VIKAN 45. TBL.