Vikan


Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 22

Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 22
GÁLGIVFIR FÍFLUM Kæri draumráðandi! Eftirfarandi draum dreymdi mig ekki alls fyrir löngu, og hef ég mikinn áhuga að fá hann ráðinn, því mér finnst hann heldur óhugnanlegur. Mérfannst ég vera stödd úti á túni, rétt hjá sveitabæ, sem ég var á.þegar ég var barn. Ég var þarna að tlna fífla til að gefa manninum mínum. Þá heyrði ég a!lt í einu dimma rödd segja fyrir ofan mig: Varaðu þig á gálgan- um." Þá var mér litið upp, og fyrir ofan mig hékk stór gálgi. Ég hljóp eins hratt og ég gat heim að bænum, en þegar ég var komin þangað var mér orðið öllu rórra og ákvað að láta ekki á neinu bera. Þá uppgötvaði ég, að ég hafði gleymt öllum fíflunum úti á túninu, en settti í mig kjark og fór þangað aftur. Þá var ga'ginn horfinn, en fíflabunkinn var á sínum stað. Ég tók hann upp og fór aftur heim að bænum, og hitti manninn minn þar fyrir utan. Ég réíti honum fíflana, og hélt að hann yrði ánægður, en hann horfð' bara á mig reiðilegur á svip og sagði: ,,Ég kæri mig ekki um nein blóm frá þér, ég vil fá hjónaskilnað." — Ég hélt að hann væri bara að reyna að vera fyndinn, en sá svo að honum var alvara með þessu. Það kom mikið á mig, því hjónaband okkar er í rauninni mjög gott. Ég fékk mikið grátkast þarna, og við það vaknaði ég. Ég vona að þú getir lesið eitthvað úr þessum draumi fyrir mig, draumráðandi góður, því hann situr mikið í mér. Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna. V.K. Einhver vinur þinn biður þig um aðstoð, sem þú ættir ekki að hika við að veita honum. Þér verður mikill heiður sýndur og þin bíður gæfurik framtíð. Hjónaskilnaður i draumi boðar yfirleitt alltaf giftu- rikt hjónaband, og því ættir þú ekki að hafa áhyggjur af þessum draumi. Tár i draumi eru einnig ávallt fyrir gleði. STÚLKA TEKUR i NEFIÐ FYRIR REF Sæll draumráðandi góður! Nú sendi ég þér enn einu sinni draum, sem mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig. — Mér fannst ég vera stödd einhvers- staðar uppi í sveit, og hélt á tóbaksdós. Þá kom til mín refur, og sagði við mig, að ef ég tæki dreymdi ekki í nefið, mundi hann rífa mig í tætlur. Ég gat ekki hugsað mér að fara að taka neftóbak, og hló bara að honum. Þá sagði hann að sér væri alvara, og gerði sig líklegan til að ráðast á mig. Ég þorði þá ekki annað en hlýða, og varð mér mjög illt af þessu. Þá rétti refurinn mér vatnsglas, og bað mig að drekka úr því. Ég ætlaði í fyrstu ekki að þora að drekka þetta, því ég hélt að þetta væri eitthvað eitur, en gerði það samt, því ég var svo hrædd við refinn. Þetta var þá bara ískalt vatn, og leið mér mun betur eftir að hafa drukkið það. Þá kom til mín lítil, gömul kona, og var mjög reið, og ásakaði mig fyrir að hafa drukkið allt vatnið sitt, þetta væri eina vatnið, sem hefði verið til heima hjá henni. Þá fékk ég mikið samviskubit, og reyndi að útskýra fyrir henni að refurinn hefði neytt mig til þess að gera þetta, en hún trúði mér ekki. Þá ætlaði ég að láta refinn segja henni eins og var, en hann var þá allur á bak og burt. Ég vonast eftir ráðningu á þessum draumi sem allra fyrst. Með kærri kveðju og þakklæti. Dóra. Þú mátt vara þig á fláráðum vinum, því einhver situr á svikráðum við þig. Þó muntu sigrast á óvinum þínum, og færð einnig viðurkenningu fyrir störf þín. Þú verður aðnjótandi mikillar gleði innan tiðar. NEITAÐI AÐ DREKKA Kæri draumráðandi! i sumar dreymdi mig draum, sem ég get ekki gleymt, og langar mig að biðja þig að ráða hann fyrir mig, ef þú getur. Mér fannst ég vera í veislu með samstarfsfólki mínu, og fannst mér eins og það væri forsetinn, sem héldi veisluna. Þjónustustúlka kom með bakka með vínglösum á, og bauð mér glas, sem ég afþakkaði. Þá kom yfirmaður minn og var mjög reiður og sagði að það væri ókurteisi að drekka ekki áfengi í svona veislum. Ég varð mjög reið, því hann vissi ósköp vel að ég smakka aldrei vín. Ég var að rífast við hann þegar ég vaknaði. Með fyrirfram þakklæti. Gugga. Framundan eru bjartar stundir í lífi þínu, og heilsa þin mun verða með afbrigðum góð. Þér verður gert ti/boð, sem á eftir að hafa miklar breytingar i för með sér fyrir þig og þína, og þá ti! góðs. LAMAÐUR í LAUFGUÐUM SKÓGI Kæri draumráðandi! Mig dreymdi að ég væri orðinn lamaður og ég sat í hjólastól í skógi, sem var fullur af laufguðum trjám, en þó var þetta um hávetur. Allt í kringum mig voru hermenn, sem síðan tóku mig og báru mig inn í eitthvert hús, sem mér fannst eiga að vera einhver klúbDur eða félag fyrir lamaða. Eftir að hafa dvalið þar í nokkra daga, fékk ég aftur mátt í fæturna, og ákvað ég þá að fara að sækja vatn í brunn, sem var þarna skammt frá, því mér fannst vera orðið vatnslaust í húsinu. Þegar ég var búinn að sækja vatnið og ætlaði að fara að snúa við, sá ég að við brunninn sat brúður og grét ákaft. Ég reyndi að hugga hana, en hún sagði ekki eitt einasta orð, heldur rétti mér bara bréf. Þegar ég fór að lesa bréfið, fannst mér það vera ástar- bréf til mín frá gamalli vinkonu minni. Ég vona að þú getir ráðið þennan draum. Þökk fyrir, Halli. Þessi draumur er fyrirboði þess, að tíf þitt muni tengjast Hfi annarrar persónu á sérstakan hátt. Hermennirnir eru fyrirboði mikilla breytinga, sem verða á lífi þinu innan skamms. Þú munt óvænt endurnýja gamlan kunningsskap, og fyigir honum mikil hamingja. Þin bíður gæfurík framtið og farsæld í ástum. Þó er ekki ólíklegt að þú lendir í minniháttar rifrildi, en fljótlega bætir þú það upp og mikil gleði fy/giri kjölfarið. Að lesa ástarbréf í draumi er yfirleitt fyrir- boði þess að þú hittir eða kynnist persónu, sem síðar meir á eftir að verða þér hjartfólgin, og með ykkur takast náin kynni, en persóna sú, sem bréfið ritaði í draumnum muni bundin öðrum eins og sakir standa. GRAUTUR MEÐ HVÍTUM FJÖÐRUM Kæri draumráðandi! Mig dreymdi að ég væri að borða graut inni í stofu hjá móður- systur minni. Grauturinn var mjög góður á bragðið lengst framan af, en allt í einu kom eitthvert einkennilegt bragð af honum. Ég hrærði þá lengi í honum og bætti mjólk út í, en alltaf versnaði bragðið. Þá tók ég eftir því, að það var komið fullt af hvítum fjöðrum ofan í diskinn minn. Ég var ekki lengi að henda grautnum, en ég var svo svöng, að ég ákvað að búa mér til eitthvað að borða. Móðursystir mín var ekki heima, en ég fór inn í svefnherbergið hennar og leitaði þar að mat. Þá fann ég búðing þar, og ákvað að fara fram í eldhús og fá mér búðing að borða. Ég fór og bjó hann til, og borðaði hann með bestu lyst. Ég vonast eftir ráðningu á þessum draumi, því þessi móðursystir mín er búsett erlendis, og ég hef ekki séð hana í mörg ár. Virðingarfyllst. G.R. Þú mátt búast við gestakomu, sem verður þér ti/ mikiHa óþæg- inda. Þér verður sýndur mikill virðingarvottur, og mikit upphefð biður þin. Þin bíður ennfremur auðsæld og hamingja, og allt gengur þér í haginn á næstunni. 22 VIKAN 45. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.