Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 11
VANTREYSTIR ÖLLUM
Elsku Póstur!
Ég á við vandamál að stríða og
hef engan til að ráðfæra mig við,
nema þig. Þess vegna þætti mér
vænt um, ef þú gætir hjálpað mér.
Þannig er mál með vexti, að ég er
búin að vera með strák í tvo
mánuði, og ég er mjög hrifin af
honum. Þegar við erum saman,
þá er hann svo góður við mig, og
mér líður svo vel með honum.
Hann virðist vera yfir sig hrifinn af
mér, en ég veit, að hann er með
öðrum stelpum. Hann er mjög
vinsæll, og hann dylur ekki, að
hann er með öðrum stelpum líka
og segir mér allt um þær. Það fer
mjög í taugarnar á mér, því að
eðlisfari er ég mjög afbrýðisöm.
Ég hef oft ætlað að tala um þetta
við hann, en við erum svo sjaldan
ein saman, og þá við ég ekki eyði-
leggja þær fáu, en hamingjusömu
stundir, sem við erum saman.
Hann er töluvert eldri en ég, og ég
veit, að hann hefur orðið fyrir
aðkasti hjá vinum sínum þess
vegna. Svo er það annað. Ég hef
verið með svo mörgum strákum,
að ég man ekki einu sinni hvað
mörgum. Þeir vilja allir komast
upp á mig, en ég vil það ekki. Þá
taka þeir mig bara með valdi og
henda mér svo bara út. Ég er of
ung til að nota pilluna, og þeir
nota oftast smokka, en ég er samt
dauðhrædd. Ég hef ekkert á móti
því að gera það.... en með
skítugum strákum einhversstaðar
inni í bíl, það finnst mér hræðilget.
Elsku Póstur, hvað á ég að gera?
Ég er orðinn dauðhrædd við alla
stráka, vantreysti öllum og þori
ekki út fyrir dyr. Ég hef reynt að
tala við vinkonur mína, en þær eru
svo afbrýðisamar, af því að ég á
svo marga sjénsa. En ég held, að
ég sé farin að hata stráka. Þeir eru
allir svo vondir við mig, nema X,
en ég hitti hann svo sjaldan.
Hvernig er stafsetningin?
Stína
Mín kæra Stína! 7/7 að byrja með
/angar mig að benda þér á að X er
ekkert góður við ÞiG, hann er
fyrst og fremst góður við sjálfan
sig. Hann segir þér frá hinum
stelpunum, sem hann er með, —
en heldurðu, að hann segi þeim
ekki /íka frá þér? Finnst þér
hjartagæska að vera að tala um
aðrar stelpur við stú/ku, sem hann
ermeð (eftirþvísemþú segir)? Og
hvers vegna eruð þið svona
sjaldan tvö ein, ef þið eruð bæði
svona yfir ykkur hrifin? Er það ekki
vegna þess, að annað hvort ykkar
er ekkert svona yfir sig hrifiö og
vill he/st ekki vera eitt með hinu??
Þú segist vera ofung tilað taka pill-
una — en ertu þá ekkilíka of ung til
aö vera með skítugum strákum inni
í bíl?
— Ég held þú megir taka þig
ærlega á, mín kæra, og hugsa ráð
þitt vel og vandlega, áður en þú
/endir i einhverjum ógöngum, sem
kannski verður hægara sagt en
gert að komast úr aftur. Hvað
vinkonum þínum viövíkur, te/ ég
ekki, að þær vilji ekki tala við þig,
vegna þess hve marga sjensa þú
hefur. Sjá þær ekki bara, á hversu
hála braut þú ert komin? Og það
er engin stú/ka öfundsverð af því
að vera misnotuð af strákum, en
þaö er það, sem mér virðist þú
vera, eftir lestur bréfs þíns. Þú ert
full örugg með sjálfa þig, og ég vii
benda þér á eitt, sem ein
fræg leikkona sagði í blaðaviðtali:
,,Það er al/taf hægt að neita
karlmönnum." Ég á líka heldur
bágt með að trúa, að þú látir taka
þig með va/di hvað eftir annað án
þess að kæra nauðgun. Taktu þig
nú á, og hættu að vorkenna sjálfri
þér svona, þetta er sjálfskaparvíti.
— Það er ekkert hægt að lesa úr
þessum fáu Hnum, sem þú
skrifaðir með penna. Stafsetning-
in er mjög góð.
SNYRTISÉRFRÆÐINGUR
Kæri Póstur!
Mig langar að fá svör við
nokkrum spurningum. i hvaða
skóla á ég að fara til að læra að
verða snyrtisérfræðingur? Hvað
þarf ég að vera orðin gömul, og
hvaða prófi þarf ég að Ijúka?
Hvaða merki passar best við
hrútinn (stelpu) og svo þetta
vanalega: Hvað lestu úr skriftinni,
og hvað heldurðu, að ég sé
gömul? Með þökk fyrir birtinguna.
N.S.
Það er enginn sérstakur skóli hér,
sem útskrifar snyrtifræðinga, en
Margrét Hjálmtýsdóttir hefur verið
með námskeiö í þessu fagi,
(kvöldskó/a), og útskrifar hún
snyrtifræðinga. Þú finnur nafn
hennar og símanúmer í slma-
skránni. Snyrtinám geturöu einnig
/ært á snyrtistofum, en þá þarf
viðkomandi he/st að vera orðinn
18 ára og hafa lokið gagnfræða-
prófi. Á stofunni lærirðu t.d.
hand- og fótsnyrtingu, en þú þarf
að taka próf í Hffærafræði, sem
læknir dæmir svo um. Ljónið eða
nautið eiga best við hrútsstelp-
una, skriftin ber vott um mikla
fljótfærni, og þú ert 15-16 ára.
Ath. Greiðsluskilmálar
KJÖRGARÐI
Gluggatjaldadeild
Blúndustóresar
Velúrefni
Svissnesk
gluggatjöld
Eldhúsgluggatjöld
Dúkar og fleira
45. TBL. VIKAN 11